Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Ráðgjafar Bandraíkjaforseta vilja sjá til þess að forsetinn haldi átökum á Hormússundi í lágmarki fram að þingkosningum í nóvember, í von um að draga ekki enn frekar úr stuðningi við Repúblikana. Engu að síður hafa árásir færst í aukana við sundið undanfarna daga. Erlent 2.9.2026 23:54
Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Íranir skutu í nótt flugskeytum og drónum að bandarískum herstöðvum í Jórdaníu, Kúveit, Íraq og Barein. Voru árásirnar gerðar í kjölfar þess að Bandaríkjamenn hófu árásir á Írani að nýju í gær. Erlent 2.9.2026 06:42
Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Bandaríkjaher hóf árásir á skotmörk íranska byltingarvarðarins í Íran í dag. Árásirnar eru svar Bandaríkjahers við tilraunum byltingarvarðarins til árása á kaupskip á Hormússundi að sögn hersins. Erlent 1.9.2026 17:51
Hótar þeim hörmungum sem eiga í viðskiptum við Íran Donald Trump virðist hafa ákveðið að breyta um taktík til að neyða stjórnvöld í Íran að samningaborðinu. Til viðbótar við stöðugar árásir stendur nú til að einangra landið efnahagslega og hefur Bandaríkjaforseti hótað hverjum þeim sem eiga í viðskiptum við Íran alvarlegum afleiðingum. Erlent 20. ágúst 2026 07:36
„Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Donald Trump segir að sér liggi ekkert á þegar kemur að því að binda enda á stríðið gegn Íran. Hann hvetur ráðamenn þar þó til að gefast upp hið snarasta. Um Óman, sem hefur átt í viðræðum við Íran um framtíðarstjórn á Hormússundi, segir forsetinn ráðamönnum þar að standa ekki í vegi sínum. Erlent 17. ágúst 2026 13:01
Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hótað því að gera Hormússundið, sem er við Íran, að yfirráðasvæði Bandaríkjanna. Friðarsamningur milli ríkjanna er enn ekki í höfn. Erlent 15. ágúst 2026 08:33
Blaðamenn og aðrir farþegar notaðir sem tálbeita? Vísbendingar voru uppi um að Íranir hefðu í hyggju að gera eldflaugaárás á Air Force One, flugvél Bandaríkjaforseta, í Tyrklandi fyrr í sumar, sem varð til þess að Donald Trump var fluttur í aðra vél þegar hann yfirgaf landið. Erlent 12. ágúst 2026 07:18
Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Donald Trump krafðist þess í dag að klerkastjórnin í Íran greiddi skaðabætur vegna þeirra sem hann sagði ríkisstjórnina hafa banað í stríðum, árásum og mótmælum í gegnum árin. Þá ættu þeir einnig að greiða skaðabætur til íbúa Líbanon, Sýrlands, Jemen og á Gasa. Þetta sagði Trump í kjölfar þess að ráðamenn í Íran fóru fram á skaðabætur vegna árása á Íran og að refsiaðgerðir yrðu felldar niður. Erlent 10. ágúst 2026 23:04
Írönsku fótboltakonurnar fengu ástralskan ríkisborgararétt Tvær íranskar fótboltakonur sem stungu af þegar íranska landsliðið keppti á Asíumeistaramótinu í Ástralíu í mars hafa nú fengið ástralskan ríkisborgararétt. Fótbolti 6. ágúst 2026 22:33
Íranir segja viðræður á lokametrunum Ráðamenn í Íran segja að samkomulag um framtíðarstjórn Hormússunds sem erindrekar ríkisins hafa unnið að í Óman vera á lokametrunum. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur gefið til kynna að samkomulag gæti verið opinberað í þessari viku. Opnun sundsins gæti verið stórt skref í að binda enda á átök Bandaríkjanna og Íran. Erlent 6. ágúst 2026 16:31
Viðræður við Íran hefjist á morgun Donald Trump Bandaríkjaforseti segir viðræður við Íran um að binda enda á stríðið í Persaflóa munu hefjast á morgun, mánudag. Þær munu líklega fara fram í gegnum milliliði. Erlent 2. ágúst 2026 22:48
Trump boðar hlé á árásum og fullyrðir að samkomulag sé í sjónmáli Bandaríkjaforseti segist ætla að fyrirskipa bandarískum hersveitum að bíða með frekari árásir á Íran og fullyrðir að bandamenn í Mið-Austurlöndum hafi náð saman um útlínur að samkomulagi sem muni binda enda á stríðið sem hefur staðið yfir í fimm mánuði. Erlent 2. ágúst 2026 08:36
Harðar deilur innan klerkastjórnarinnar Hlé á árásum Bandaríkjamanna og Írana í Mið-Austurlöndum varði stutt. Árásirnar hófust aftur eftir óvæntar árásir Írana á bandaríska hermenn í Jórdaníu og skip á Hormússundi. Árásir þessar voru gerðar af harðlínumönnum í Íran sem vilja ekki viðræður við Bandaríkjamenn og eru raknar til deilna innan stjórnvalda í Teheran. Erlent 1. ágúst 2026 16:01
Nítján ára Norðmaður dæmdur fyrir að taka að sér leigumorð á Englandi Norskur maður, Johannes Kongsnes Natland, hefur verið fundinn sekur um að hafa ferðast til Englands til að fremja launmorð fyrir alþjóðlegt glæpagengi sem er sagt hafa tengsl við stjórnvöld í Íran. Athygli vekur að Natland er aðeins nítján ára gamall. Erlent 30. júlí 2026 11:44
Segjast hafa gert harða hríð að byltingarverðinum Bandaríkjaher segist hafa gert harða hrinu árása á Íran í hefndarskyni fyrir tilraunir Írana frá því á þriðjudaginn til að skjóta eldflaugum á bandaríska hernaðarinnviði í Jórdaníu og fyrir árásir þeirra á skip á Hormús-sundi. Erlent 30. júlí 2026 08:16
„Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir að árásum Írana á bandaríska hermenn í Jórdaníu í nótt verði svarað af mikilli hörku. Bandaríkjamenn svöruðu árásum Írana með árásum á írakskar sveitir sem sæta skipunum klerkastjórnarinnar í Teheran en Trump segir þær árásir hafa verið gerðar í samráði við yfirvöld í Bagdad. Erlent 29. júlí 2026 13:08
Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Íranir virðast hafa gert árásir á herstöð Bandaríkjanna í Jórdaníu í nótt en samkvæmt hermálayfirvöldum vestanahafs tókst að skjóta niður allar flaugar sem skotið var á loft. Þá hefur verið greint frá því að Bandaríkjamenn og Sádar hafi gert árás á skotmörk í Írak, þaðan sem sveitir fjármagnaðar af Íran hafa gert árásir síðustu daga. Erlent 29. júlí 2026 06:58
Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segist hafa átt góðan fund með kollega sínum Donald Trump í Hvíta húsinu í dag. Þeir hafi meðal annars talað um mögulega framleiðslu flugskeyta í Patriot-loftvarnarkerfi í Úkraínu, mögulegar friðarviðræður og hvernig þeir gætu varið líf Úkraínumanna. Erlent 28. júlí 2026 15:57
Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Ráðamenn í Óman hafa kynnt tillögu að framtíðarstjórn Hormússunds fyrir klerkastjórninni í Íran. Tillaga þessi er studd af leiðtogum annarra ríkja við Persaflóa og felur meðal annars í sér valfrjáls gjöld fyrir að sigla um sundið. Viðskipti erlent 28. júlí 2026 13:03
Árásirnar haldi áfram skili viðræðurnar ekki sínu Donald Trump Bandaríkjaforseti segist eiga í góðum viðræðum við stjórnvöld í Íran og að möguleiki sé á samkomulagi í deilum þeirra. Hann hótaði samt sem áður áframhaldandi árásum skili viðræðurnar ekki árangri. Erlent 27. júlí 2026 20:32
Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés Verð á Brent-hráolíu hefur fallið um níu prósent það sem af er degi eftir að hafa einnig lækkað í gær. Verðið stendur nú í 88 Bandaríkjadölum eftir að hafa rofið 100 dala múrinn fyrir helgi. Ástæða lækkunarinnar er sú að Bandaríkin og Íran hafa gert hlé á átökum sínum og flutningaskip geta því siglt um Hormússund. Viðskipti erlent 27. júlí 2026 11:32
Engar íranskar árásir gerðar á meðan sprengjuhlé Bandaríkjanna varir Íran mun gera hlé á árásum svo lengi sem Bandaríkin gera slíkt hið sama. Þetta hefur Reuters eftir háttsettum írönskum embættismanni en Bandaríkin gerðu hlé á sprengjuárásum sínum eftir að ráðgjafar Donalds Trump forseta tjáðu honum að listi skotmarka færi þverrandi og þeir hefðu áhyggjur af stöðu vopnabúrs Bandaríkjanna. Erlent 27. júlí 2026 07:56
Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Bandaríkjamenn gerðu engar árásir á Íran í nótt, eftir tæplega tvær vikur af daglegum árásum. Donald Trump, forseti, hefur íhugað að auka umfang árása gegn Íran enn frekar en JD Vance, varaforseti, Dan Caine, formaður herforingjaráðs Bandaríkjanna, og aðrir ráðgjafar forsetans eru sagðir hafa lýst yfir áhyggjum vegna þeirra ætlana. Erlent 26. júlí 2026 08:38
Ekkert lát á árásum Bandaríkjanna og Íran Bandaríkin gerðu árás á kaupskip sem reyndi að rjúfa hafnarbann íranskra hafna, að sögn Bandaríkjahers. Jafnframt beindu Íranir áfram spjótum sínum að bandarískum herstöðvum og mannvirkjum á Persaflóa. Sádi-Arabar gerðu hefndarárás á Jemen fyrir árásir Húta á sádi-arabísk olíuskip. Erlent 25. júlí 2026 00:20