Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kjötborg í valdar verslanir Verðlaunamyndin Kjötborg er komin út á DVD. Hún verður þó ekki til sölu í hefðbundnum verslunum heldur í völdum búðum. Þeirra á meðal eru herrafataverslun Kormáks og Skjaldar, Skaftfell á Seyðisfirði, Brynja og Ranimosk á Laugaveginum og svona mætti lengi telja; allt verslanir sem ekki eru hluti af stórum verslanakeðjum. Enda segir Hulda að þeir bræður séu síðasta vígi smákaupsverslunar á Íslandi. „Og þeir berjast fyrir að halda henni á lífi með kímnigáfuna og kærleikann að vopni,“ bætir Hulda við. 22.12.2008 06:00
Björk og Jón Gnarr í Norræna Jóladagatal Norræna hússins býður upp á tvo landskunna listamenn síðustu dagana fyrir jól, en allan þennan mánuð hafa ýmsir troðið þar upp og hefur ekki verið tilkynnt hvaða gestir verða á ferðinni þar til nú. Dagatalið fer þannig fram að á hverjum degi kl. 12.34 eru ýmsir listamenn með uppákomu í 15-20 mínútur. Eins og vera ber í jóladagatali veit maður ekki fyrirfram hvað er bakvið hvern glugga, en víst er að listamennirnir sem taka þátt í dagatalinu eru meðal þeirra fremstu á Íslandi. 22.12.2008 06:00
Drepur ekki vini sína „Þetta er algjör óþarfi og í raun rakinn óþverraskapur að gera „mig“ að Haukamanni. Og hann viðurkennir að það var með vilja gert!“ segir Gunnar Viktorsson, sjúkraþjálfari og FH-ingur fram í fingurgóma. „Sagðist meira að segja hafa hlegið upphátt þegar hann skrifaði það!“ 22.12.2008 05:30
Reisir Eiffelturn Suðurnesja Guðmundur Rúnar Lúðvíksson varð þekktur á níunda áratugnum fyrir lög á borð við Súrmjólk í hádeginu. Nú er hann með nýtt verkefni á teikniborðinu sem á eftir að vekja mikla athygli. 22.12.2008 05:00
Krimmar gefa krimma í jólagjöf Fangar á Litla-Hrauni fá góðan glaðning í dag þegar fulltrúar frá Félagi bókaútgefanda mæta með hundruð bóka sem ætlað er að verði pakkað inn til ættingja og vina, komið fyrir á bókasafni fangelsisins auk þess sem kokkarnir fá sinn skerf; úrval matreiðslubóka. Fangarnir á Litla-Hrauni eru nefnilega með sitt eigið eldhús og geta því gripið í uppflettiritin þegar svo á við. 22.12.2008 04:00
Fékk stóra köku í afmælisgjöf Leikkonan Katie Holmes varð þrítug síðastliðinn fimmtudag. Hátíðarhöld voru þó af skornum skammti vegna þátttöku hennar í leikritinu All My Sons í New York-borg. 22.12.2008 04:00
Loftkastalinn opnaður á ný Nýtt atvinnuleikhús hefur göngu sína í Reykjavík í vor: Bjarni Haukur Þórsson leikhúsmaður hefur náð samkomulagi við eigendur Loftkastalans við Seljaveg um leigu á leikhúsaðstöðu þar og hyggst reka þar alþýðuleikhús og stefnir á fyrstu frumsýningu í vor. 22.12.2008 03:00
Þorgrímur Þráinsson í guðatölu á Skagaströnd Þorgrímur Þráinsson las upp úr nýrri bók sinni á Skagaströnd á dögunum. Óhætt er að segja að hann hafi fengið höfðinglegar móttökur. 22.12.2008 03:00
Fengu bætur Bresku grínistarnir Matt Lucas og David Walliams hafa unnið skaðabótamál sem þeir höfðuðu gegn breska tímaritinu The Daily Star Sunday. Í frétt þess frá því í september voru þeir sakaðir um að hafa misboðið samtökum samkynhneigðra í þætti sínum Little Britain USA. 22.12.2008 02:00
Draumur margra kvenna varð að veruleika „Ég held að það hafi verið draumur margra kvenna að vera „personal shopper" en enginn hafi látið sér detta í hug að gera þetta," segir Andrés Jónsson lífskúnstner og upplýsingafulltrúi Iceland Express. Þegar gjaldeyriskreppan skall á ákvað Iceland Express að markaðssetja Reykjavík sem verslunarborg. 21.12.2008 17:02
Alba og eiginmaður fögnuðu hjónavígslunni Jessica Alba og eiginmaður hennar, Cashole Warren, héldu brúðkaupsveislu á heimili sínu nú um helgina. Parið lét pússa sig saman hjá dómara í Los Angeles fyrr í mánuðinum. Hamingjusömu hjónin höfðu nýfætt barn sitt hjá sér þegar að þau fögnuðu hjónavígslunni. 21.12.2008 14:39
Sigur Rós á lista með Beyoncé og Coldplay Með suð í eyrum við spilum endalaust, nýjasta plata Sigur Rósar, er í tíunda sæti á árslista bandaríska tímaritsins Entertainment Weekley yfir bestu plötur ársins. 21.12.2008 09:15
Réttur er settur Tökur á spennuþáttaröðinni Réttur eru hafnar og ganga að sögn Magnúsar Viðar Sigurðssonar, framleiðanda, mjög vel. Eins og komið hefur fram í Fréttablaðinu eru lögfræðingar í aðalhlutverki í þáttunum og fara tökur í dómsal fram í héraðsdómi Reykjanes. „Við fengum góðfúslegt leyfi hjá forsvarsmönnum hússins að fá að taka upp þegar ekkert væri að gerast í sölunum,“ segir Magnús. 21.12.2008 09:00
Alþýðukona leggur útrásarforsetann „Jú, jú, þetta eru nánast landráð. Og ég vona að forsetinn fyrirgefi mér þetta,“ segir Sigmundur Ernir Rúnarsson, rithöfundur og sjónvarpsmaður. Og bætir við: „En það er í takt við tíðarandann að alþýðukona leggi útrásarforsetann.“ 21.12.2008 07:00
Allar flottustu svíturnar upppantaðar um áramótin Allar dýrustu svítur Reykjavíkur eru upppantaðar yfir áramótin. Fréttablaðið hafði samband við hótelstjóra fjögurra frægustu hótela höfuðborgarinnar og alls staðar var sama sagan; hvergi var hægt að panta svítu á gamlárskvöld, þær væru upppantaðar. 21.12.2008 06:00
Þriðju kynslóðar lúðraþeytir „Þetta gekk mjög vel. Mjög gaman og frábær lífsreynsla,“ sagði Baldvin Oddsson, fjórtán ára trompetleikari, eftir að hafa spilað einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands í gær. 21.12.2008 06:00
Úr þinginu í orgelleik um jól Illugi Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, hefur fengið það vandasama verkefni að vera organisti í Flateyrarkirkju á aðfangadag. „Ég var organisti þarna meðfram öðrum störfum eftir snjóflóðið 1995 en þá vann ég í verksmiðjunni Skelfiskur,“ segir Illugi. „Ég hafði svo sem ekki mikinn bakgrunn í orgelspili en ég tók þetta að mér að spila í messunum og ætli mér hafi ekki orðið einstaka sinnum á í messunni líka,“ segir hann og hlær við. 21.12.2008 04:00
Melrose Place pía situr fyrir í Playboy Hin hálffimmtuga Lisa Rinna sem þekktust er fyrir leik sinn í Melrose Place þáttunum hefur samþykkt tilboð Hughs Hefner um að sitja klæðalítil fyrir í Playboy. 20.12.2008 19:44
Brotist inn hjá Paris Hilton Brotist var inn á heimili Parisar Hilton í gær og er talið að skartgripum að andvirði tveimur milljónum bandaríkjadala hafi verið stolið í innbrotinu. Lögreglan segir að sést hafi til grunsamlegs manns koma inn um framdyrnar og ráðast inn í svefnherbergi Hiltons þegar að hún var stödd fjarri heimili sínu. 20.12.2008 12:08
Samningur RÚV og Ólafsfells í hönk Ólafsfell, fyrirtæki Björgólfs Guðmundssonar, mun á næstu dögum fara þess á leit við forsvarsmenn Ríkisútvarpsins að tvíhliða samningur þeirra um framleiðslu á leiknu efni verði tekinn til endurskoðunar. Samningurinn var gerður til þriggja ára og átti að tryggja fjármagn til sjálfstæðra framleiðenda sem vildu framleiða leikið efni fyrir RÚV. 20.12.2008 09:45
Slökkviliðið fækkar fötum Slökkviliðsmenn á höfuðborgarsvæðinu útbjuggu dagatal með myndum af fjórtán fáklæddum slökkviliðsmönnum og selja í fjáröflunarskyni. 20.12.2008 09:30
The Sun vandar Íslendingum ekki kveðjurnar „Heyra mátti öskur frá blóði drifnum Upton Park þegar Íslendingarnir tilkynntu að þeir hygðust selja West Ham.“ Svona hefst stór úttekt sem birtist í breska blaðinu The Sun. 20.12.2008 09:00
Íslenskir Guns N‘ Roses gítarleikarar slást í eftirpartíi „Þetta var bara eitthvað orðaskak. Já, það má kannski segja að þetta hafi verið pólitískur tónlistarlegur ágreiningur," segir Grétar Bulgretzky annar gítarleikara hinar íslensku Guns N' Roses hljómsveitar. Grétar er annars þekktur fyrir að hafa spilað undir hjá Kalla Bjarna Idolstjörnu á sínum tíma og er sagður með síðasta hárið í bransanum um þessar mundir. 20.12.2008 08:00
Styrkur til Borgarleikhússins skorinn niður Að ósk Reykjavíkurborgar hefur verið gert samkomlag, milli borgarinnar og Leikfélags Reykjavíkur í Borgarleikhúsi, um nær 50 milljóna króna lækkun framlaga borgarinnar til leikhússins á næsta ári frá gildandi samningi en framlag borgarinnar var áætlað 431 milljón. 20.12.2008 07:30
Anita Briem í stjörnupartíi Íslenska leikkonan Anita Briem var meðal boðsgesta þegar hinn glæsilegi staður, The Conga Room, var enduropnaður eftir miklar breytingar fyrr í þessum mánuði. 20.12.2008 07:00
Rúnar Júl á stuttermabol Listamaðurinn Jón Sæmundur Auðarson er í óða önn að hanna stuttermaboli með myndum af Rúnari Júlíussyni. Ágóði bolanna rennur til nýs minningarsjóðs Rúnars. 20.12.2008 06:45
Með burðardýr í startholunum Fyrsta upplagið af plötu FM Belfast, How to Make Friends, er í þann mund að klárast og vinnur hljómsveitin nú hörðum höndum að því að útvega fleiri eintök. 20.12.2008 05:30
Jólaplönin í háaloft hjá Madonnu og Guy Hjónakornin fyrrverandi, Madonna og Guy Ritchie, höfðu tilkynnt börnum sínum að þau hygðust halda jólin saman. Svona rétt til að smáfólkið fengi eitthvað fyrir sinn snúð eftir að hafa upplifað erfiðan skilnað. Nú er það skipulag í lausu lofti eftir að enski leikstjórinn neitaði Madonnu um að gista á gamla sveitasetrinu þeirra í Wilt-skíri. The Sun greinir frá málinu og segir að Guy hafi óttast að of margar minningar frá hveitibrauðsdögunum myndu rifjast upp í kjölfarið. 20.12.2008 05:15
Stjúpmóðir Whitney Houston höfðar mál Stjúpmóðir Whitney Houston hefur höfðað mál gegn söngkonunni vegna milljón dollara líftryggingar sem faðir Houston lét eftir sig þegar hann dó fyrir fimm árum. 20.12.2008 05:00
Jim Carrey kann enn að djóka Það er ekki bara Tom Cruise sem kann þá list að skandalísera í sjónvarpi. Jim Carrey hefur hugsanlega fylgst með framgöngu hinnar smávöxnu stórstjörnu í sjónvarpi undanfarin ár og ákveðið að leika sama leik. Carrey er hins vegar mun meiri húmoristi en Cruise litli og gerði því áhorfendur spjallþáttastjórnandans Ellen deGeneres kjaftstopp þegar hann bað unnustu sinnar, Jenny McCarthy, í beinni útsendingu. 20.12.2008 05:00
Engin börn hjá Scarlett Bandaríska leikkonan með skandinavíska eftirnafnið, Scarlett Johansson, hefur útilokað barneignir í nánustu framtíð. Hún segist einfaldlega ekki hafa tíma til þess. Scarlett og leikarinn Ryan Reynolds gengu í það heilaga í september á þessu ári en börn virðast ekki á næsta leiti. „Ég er 24 ára gömul, ég á enn mikið eftir ógert og hef nægan tíma til að spá í börn," sagði Scarlett í samtali við Entertainment Tonight. Scarlett útilokar hins vegar ekki að verða mamma einn daginn. „Einhvern tímann, en ég er ekki tilbúin fyrir það núna." 20.12.2008 04:30
Hilton líkt við Monroe Slúðurblöð væru fátækleg ef Parisar Hilton og hennar yfirlýsinga nyti ekki við. Hinn 27 ára hótelerfingi hefur nú upplýst heimsbyggðina um að hún hafi alltaf vitað að hún yrði fræg ljóska. „Ég var elsta barnabarnið og amma mín var alveg viss um að ég yrði næsta Marilyn Monroe eða Grace Kelly. Hún hélt þessu statt og stöðugt fram alla mína æsku. Og svo var alltaf verið að taka myndir af mér,“ útskýrir Paris. 20.12.2008 04:15
Fergie í hjónaband Söngkona Black Eyed Piece, Fergie, hyggst ganga í það heilaga með leikaranum Josh Duhamel í næsta mánuði, að sögn vefsíðunnar Access Hollywood. Parið trúlofaði sig í desember í fyrra og hefur nú ákveðið dagsetningu fyrir stóra daginn. Fergie hefur rætt um hversu mikið hana langi að eignast fjölskyldu og nú virðist stóri dagurinn innan seilingar. Access Hollywood segist hafa heimildir fyrir því að vígslan fari fram í Suður-Kaliforníu helgina 9.-11. janúar. 20.12.2008 04:00
Grunaði ekki að Freddie væri hommi Gítarleikari rokksveitarinnar Queen og góðvinur Nylon-flokksins, Brian May, hefur stigið fram með merkilegar upplýsingar. Hann segist nefnilega aldrei hafa grunað að Freddie Mercury væri hommi. 20.12.2008 03:45
Stafakarlar á söngleikjaplötu „Platan er sérstök að því leyti að hver stafakarl í sögunni fær sitt eigið lag, þannig að allt stafrófið er kynnt til sögunnar,“ segir Bergljót Arnalds, en hún gaf nýverið út 35 laga plötu um Stafakarlana. „Stafakarlinn sem syngur í hvert skipti fjallar um það sem hefst á þeim staf.“ 20.12.2008 03:45
Rafrænt rokk og ról Rafræna rokksveitin Ratatat frá Bandaríkjunum spilar á Broadway í kvöld á tónleikum sem eru skipulagðir af Jóni Jónssyni ehf., sem heldur upp á eins árs afmælið sitt um þessar mundir. 20.12.2008 03:45
X-mas í Hafnarfirði Hinir árlegu jólatónleikar X-ins 977, X-Mas, verða haldnir á Dillon sportbar í Hafnarfirði á mánudagskvöld. Á síðasta ári voru tónleikarnir haldnir á Nasa og því ljóst að X-ið hefur minnkað aðeins við sig. 20.12.2008 03:30
Veitt úr Dungalssjóði Í gær voru veitt árleg verðlaun úr Dungals-sjóði sem Gunnar Dungal og Þórdís Sigurðardóttir stofnuðu til minningar um Margréti og Baldvin Dungal kaupmann. Sjóðurinn hefur árlega styrkt unga myndlistarmenn til dáða með fjárhæð. 20.12.2008 03:00
Ullarhattar í ellefta sinn Hljómsveitin Ullarhattarnir verður með árlega jólatónleika sína á Þorláksmessukvöld á skemmtistaðnum Nasa. Þetta er í ellefta skipti sem Hattarnir stíga á stokk en eins og margir vita spila þeir bara einu sinni á ári. Bæði jólalög og þekktar dægurperlur verða á dagskránni og meðal annars mun Jens Hansson flytja sína útgáfu af laginu White Christmas. 20.12.2008 03:00
Robbie Williams gerir nýja plötu Breska ólíkindatólið Robbie Williams er á leiðinni í upptökuver til að taka upp nýja plötu. Þetta þykir sæta nokkuð tíðindum því breskir fjölmiðlar hafa verið uppfullir af fréttum um að hann vildi ganga til liðs við Take That-flokkinn á nýjan leik. Nú hefur þeirri endurkomu verið ýtt út af borðinu og Robbie hyggst gera plötuna í byrjun janúar. „Ég myndi byrja fyrr ef ég gæti en upptökuverið er upptekið og ég verð því bara að bíða þótt ég sé ekkert sérstaklega þolinmóður maður að eðlisfari,“ segir Robbie. 20.12.2008 03:00
Borgarleikhúsið heldur sjó þrátt fyrir 50 milljóna niðurskurð Að ósk Reykjavíkurborgar hefur verið gert samkomlag, milli borgarinnar og Leikfélags Reykjavíkur í Borgarleikhúsi, um nær 50 milljóna króna lækkun framlaga borgarinnar til leikhússins á næsta ári frá gildandi samningi. 19.12.2008 13:54
Les ennþá DV Fyrrum blaðamaður DV, Jón Bjarki Magnússon, var mættur til að mótmæla í Fjármálaeftirlitinu og útibúi Glitnis við Suðurlandsbraut í morgun. Það vakti óneitanlega athygli að meðan mótmælendur voru í útibúi Glitnis sat hann hinn rólegasti og gluggaði í DV. 18.12.2008 21:56
Þrýstnar varir Ásdísar Ránar - myndband Mikið hefur verið rætt um varir Ásdísar Ránar eftir að hún var gestur Loga Bergmanns síðstliðinn föstudag. Ásdís skartaði einstaklega þrýstnum og girnilegum vörum sem vöktu mikla athygli. Í kjölfarið útskýrði hún leyndarmálið bak við varirnar þokkafullu á blogginu sínu. 18.12.2008 17:07
Móðir "millionær" opnar búð á Laugaveginum Fríða Thomas hefur opnað nýja búð á miðjum Laugaveginum þar sem hún selur skartgripi sem hún hannar sjálf og sérsaumuð föt frá Danmörku. 18.12.2008 14:55
Varir Ásdísar „Mér hefur svo sannarlega tekist að hrista upp í þjóðinni í heimsókn minni og það sem brennur nú á vörum flestra á klakanum eru VARIRNAR á mér," skrifar Ásdís Rán á bloggið sitt. 18.12.2008 11:21