Lífið

Rúnar Júl á stuttermabol

Jón Sæmundur Auðarson í stutt-ermabol sem hann hannaði með mynd af Rúnari Júlíussyni. Bjartmar Guðlaugsson saknar Rúnars sárt.
Jón Sæmundur Auðarson í stutt-ermabol sem hann hannaði með mynd af Rúnari Júlíussyni. Bjartmar Guðlaugsson saknar Rúnars sárt.
Listamaðurinn Jón Sæmundur Auðarson er í óða önn að hanna stuttermaboli með myndum af Rúnari Júlíussyni. Ágóði bolanna rennur til nýs minningarsjóðs Rúnars.

„Þetta er hugmynd sem við ákváðum saman, ég og fjölskylda hans, og ég veit að hann hefði líka fílað þetta sjálfur," segir Jón. „Rúnar kom alltaf hérna ef það voru tónleikar, þá dressaði ég hann upp," segir hann. „Hann var hér fastagestur og kom oft hérna á mánudagsrúntinum."

Mismunandi myndir af Rúnari verða á bolunum, þar á meðal portrett og mynd af honum með bassann. Salan á fyrstu bolunum er hafin og smám saman munu fleiri tegundir bætast við. Verðið er í kringum fimm þúsund krónur.

Orðrómur hefur verið uppi um að minningartónleikar um Rúnar séu fyrirhugaðir. Bjartmar Guðlaugsson, einn besti vinur Rúnars, segir að ekkert hafi verið ákveðið um það en býst við að slíkir tónleikar verði haldnir. „Það er minningin sem hann skilur eftir sig, þetta frábæra þriggja diska safn sem er bara innihald og umbúðir, alveg meistaraverk. Það er það sem maður vill að sé haldið fram í minningunni í dag," segir Bjartmar. „Hann lifir með þjóðinni í verkum sínum alla tíð. Hann víkur ekki úr huga manns þessa dagana, þessi dásamlegi maður. Höggið er mikið og söknuðurinn mikill, það finnur maður svo víða."

Bjartmar segir að útgáfufyrirtæki Rúnars, Geimsteinn, sé í miklum blóma um þessar mundir. „Þessar afurðir sem hafa komið frá honum hjá elsta útgáfufyrirtæki landsins hafa verið svakalega flottar á síðustu árum. Svo var það sem hann hafði gefið út sjálfur. Maður horfir sjálfsagt svolítið öðruvísi á það núna en maður gerði. Hann var ofboðslega kaldur að fjalla bæði um dauðann og ástina. Hann virtist ekki óttast neinar tilfinningar," segir Bjartmar, sem er í góðu sambandi við fjölskyldu Rúnars. „Það er svo mikið af góðum minningum sem má ekki gleyma því það koma svo mörg bros fram í sorginni."

freyr@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.