Slökkviliðið fækkar fötum 20. desember 2008 09:30 Slökkviliðsmenn prýða myndir fyrir mánuðina tólf. Það er bráðatæknirinn Sveinbjörn Berentsson sem tók myndirnar í dagatalið.
Slökkviliðsmenn á höfuðborgarsvæðinu útbjuggu dagatal með myndum af fjórtán fáklæddum slökkviliðsmönnum og selja í fjáröflunarskyni. „Við erum slökkviliðsmenn á höfuðborgarsvæðinu sem förum þessa fjáröflunarleið í stað þess að fara í fyrirtæki að biðja um peninga,“ segir Kristmundur Carter slökkviliðsmaður. Hann er einn þeirra fjórtán slökkviliðsmanna sem prýða dagatal slökkviliðsmanna. „Við gerðum þetta í fyrsta skipti fyrir tveimur árum og það tókst afbragðsvel.“ Slökkviliðsmennirnir eru að afla fjár til þess að fara á heimsleika lögreglu- og slökkviliðsmanna, sem verða haldnir í Vancouver í Kanada í júlí á næsta ári. Þangað fara 32 slökkviliðsmenn frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, auk lögreglumanna. „Þar er keppt í 64 keppnisgreinum, bæði greinum sem tengjast slökkviþættinum og líka í íþróttum,“ segir Kristmundur. Slökkviliðsmennirnir létu prenta þrjú þúsund eintök af dagatalinu, og Kristmundur segir að vel hafi gengið að selja það. „Það hefur gengið rosalega vel og dömurnar taka vel í þetta. Við erum aðallega að selja þetta í Smáranum og á bás í Kringlunni, frá fjögur til tíu fram að jólum. Við erum sprækir og otum þessu svolítið að fólki.“ thorunn@frettabladid.is
Mest lesið Þessi tíu lög komust í úrslit Lífið „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikil sorg“ Lífið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið Fjölskylda truflaði flutning Ísraela Lífið Sjóðheitar skvísur í íslenskri hönnun Lífið Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Lífið VÆB bræður á forsíðu BBC Lífið Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Lífið Brando ekki að lóða og fisléttur Dylan Lífið Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Lífið Fleiri fréttir Sjóðheitar skvísur í íslenskri hönnun Fjölskylda truflaði flutning Ísraela Þessi tíu lög komust í úrslit VÆB bræður á forsíðu BBC „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikil sorg“ Brando ekki að lóða og fisléttur Dylan Banna meinta kynferðisbrotamenn á rauða dreglinum Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Sendi ræningjunum skýr skilaboð þakin demöntum Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Stefán Teitur á skeljarnar Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Hera Björk mun kynna stigin Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ár í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum Sjá meira