Loftkastalinn opnaður á ný 22. desember 2008 03:00 Leiklist Bjarni Haukur opnar Loftkastalann á ný til leiksýninga.
Nýtt atvinnuleikhús hefur göngu sína í Reykjavík í vor: Bjarni Haukur Þórsson leikhúsmaður hefur náð samkomulagi við eigendur Loftkastalans við Seljaveg um leigu á leikhúsaðstöðu þar og hyggst reka þar alþýðuleikhús og stefnir á fyrstu frumsýningu í vor. „Þetta verður engin leigubúlla, þetta verður atvinnuleikhús með alvörunöfnum," segir Bjarni Haukur. Thorson productions - Íslenska leikhúsgrúppan mun standa fyrir rekstri í húsinu sem hefur verið ónotað um nokkurt skeið: „Nú eru þarna komnir inn iðnaðarmenn og byrjað að taka til. Húsið verður tekið algerlega í gegn, byrjað á anddyrinu og farið svo inn úr." Húsnæðið er mörgum leikhúsgestinum kunnugt. Í gamla vélasal vélsmiðjunnar Héðins sá leikhúsáhugafólk möguleika á lausn á leikhúsi svo snemma sem 1986 en þá var verið að rýma húsið. Það var leikflokkur Guðjóns Pedersen og Hafliða Arngrímssonar sem settist loks þar að og hélt þar úti starfsemi um nokkurra ára skeið. Eftir sýningar á Hárinu í Gamla bíói sumarið 1994 tók Flugfélagið Loftur við húsinu, kallaði það Loftkastalann og hóf þar rekstur, en að því stóðu Baltasar Kormákur, Hallur Helgason og Ingvar Þórðarson. Var húsið mikilvirk viðbót við rekstur atvinnuleikhúsa í Reykjavík á þessum tíma og nutu margar sýningar á þeirra vegum verulegra vinsælda. Þar áttu aðrir leikhópar innkomu. Eftir að þeir hurfu frá rekstrinum var húsið áfram í notkun þar til ljóst var að eigendur hygðust rífa alla blokkina og byggja þar stórt íbúðarhús. Með sviptingum á fjármálamarkaði hefur þeim áformum verið slegið á frest. Bjarni er ekki tilbúinn á þessu stigi að greina frá verkefnum en er þegar búinn að tryggja sér verk til sýninga, söngleiki, gamanleiki og verk fyrir alla fjölskylduna. Hann stefnir að þrem til fjórum verkefnum á ári og verður húsið falt til tónleikahalds og annars samkomuhalds. Salurinn tekur rúmlega 400 gesti í sæti og er því sambærilegur að stærð og stórir salir Borgarleikhúss, Þjóðleikhúss og Austurbæjarbíós. Mikill skortur hefur verið á leiksýningaraðstöðu í Reykjavík undanfarin misseri. Tjarnarbær er enn í endurbyggingu, Austurbæjarbíó lokað og er því Loftkastalinn kærkomin viðbót í leikhúsflóru höfuðborgarsvæðisins. Bjarni Haukur segir verkefnið stórt og hann vænti ekki framlags til reksturs hússins. „Yfirbygging verður í lágmarki, þetta verður sjálfbært atvinnuleikhús."
Mest lesið Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Lífið „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikil sorg“ Lífið Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Lífið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið Stefán Teitur á skeljarnar Lífið VÆB bræður á forsíðu BBC Lífið Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Lífið Joe Don Baker látinn Bíó og sjónvarp Frumsýning: Ólafur Darri og Hera Hilmar í glænýrri seríu Bíó og sjónvarp Sendi ræningjunum skýr skilaboð þakin demöntum Lífið Fleiri fréttir Fjölskylda truflaði flutning á ísraelska atriðinu Vaktin: Seinna undankvöld Eurovision VÆB bræður á forsíðu BBC „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikil sorg“ Brando ekki að lóða og fisléttur Dylan Banna meinta kynferðisbrotamenn á rauða dreglinum Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Sendi ræningjunum skýr skilaboð þakin demöntum Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Stefán Teitur á skeljarnar Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Hera Björk mun kynna stigin Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ár í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Sjá meira