Lífið

Anita Briem í stjörnupartíi

Meðal gesta við opnun The Conga Room voru auk Anitu, Eva Longoria, Jessica Alba, Andy Garcia og fyrrum Boston Legal-hetjan Dylan McDermott og October Road-leikkonan Laura Prepon. Eigendurnir Baron Davis og Jimmy Smiths voru að sjálfsögðu meðal gesta en lítið sást til Jennifer Lopez sem á víst í hjónabandsvandræðum um þessar mundir.
Meðal gesta við opnun The Conga Room voru auk Anitu, Eva Longoria, Jessica Alba, Andy Garcia og fyrrum Boston Legal-hetjan Dylan McDermott og October Road-leikkonan Laura Prepon. Eigendurnir Baron Davis og Jimmy Smiths voru að sjálfsögðu meðal gesta en lítið sást til Jennifer Lopez sem á víst í hjónabandsvandræðum um þessar mundir. MYND/Nordicphotos/Getty

Íslenska leikkonan Anita Briem var meðal boðsgesta þegar hinn glæsilegi staður, The Conga Room, var enduropnaður eftir miklar breytingar fyrr í þessum mánuði.

Meðal eigenda The Conga Room eru sjónvarpsleikarinn Jimmy Smiths sem áhorfendur Skjáseins kannast við úr Caine, söng-og leikkonan Jennifer Lopez og körfuboltahetjan Baron Davis. Enginn hörgull var á stórstjörnum í partíinu en meðal þeirra sem skemmtu sér konunglega voru leikkonurnar Eva Longoria og Jessica Alba. Þá skorti ekkert upp á smástirnin sem þrífast á mannfögnuðum á borð við þennan en þeirra á meðal var fyrrum Boston Legal-stjarnan Dylan McDermot.

Kvikmynd Anitu, Journey 3-D, mæltist vel fyrir og fékk ágætis viðtökur í bandarískum kvikmyndahúsum. Leikur hennar í annarri seríu af The Tudors hefur einnig vakið mikla athygli og samkvæmt síðustu fréttum mun Anita leika eitt aðalhlutverkanna í kvikmyndinni The Storyteller á móti Idol-stjörnunni Katherine McPhee.

The Conga Room er á besta stað í Los Angeles, beint á móti Staple Center, heimavelli Los Angeles Lakers. The Conga Room var upphaflega hugsað til að koma tónlistarmönnum frá Suður-Ameríku á framfæri og var starfræktur á árunum 1997 til 2006. Nýir eigendur staðarins hafa í hyggju að færa aðeins út kvíarnar og bjóða upp á aðeins „almennari“ skemmti-atriði.

freyrgigja@frettabladid.is

Jimmy Smiths og frú
Jessica Alba og Byron Davis


Eva Longoria og Amaury Nolasco
Andy Garcia





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.