Samningur RÚV og Ólafsfells í hönk Freyr Gígja Gunnarsson skrifar 20. desember 2008 09:45 Samningur RÚV og Björgólfs Guðmundssonar var undirritaður fyrir rúmu ári og var hann til þriggja ára. Hann verður endurskoðaður á næstum dögum. fréttablaðið/GVA
Ólafsfell, fyrirtæki Björgólfs Guðmundssonar, mun á næstu dögum fara þess á leit við forsvarsmenn Ríkisútvarpsins að tvíhliða samningur þeirra um framleiðslu á leiknu efni verði tekinn til endurskoðunar. Samningurinn var gerður til þriggja ára og átti að tryggja fjármagn til sjálfstæðra framleiðenda sem vildu framleiða leikið efni fyrir RÚV. Ásgeir Friðgeirsson, talsmaður Ólafsfells, vildi ekki staðfesta hvort samningnum yrði rift, eingöngu að hann yrði tekinn til endurskoðunar. Hann sagði á hinn bóginn að nú væri leitað allra leiða til að standa við þann samning sem gerður var við framleiðslufyrirtækið Pegasus vegna spennuþáttaraðarinnar Hamarinn. „Ólafsfell ætlar að reyna að efna þann samning, það verður smá dráttur á greiðslum en við stöndum við samninginn,“ segir Ásgeir. Þannig mun samningur RÚV og Björgólfs skila af sér þremur þáttaröðum; Mannaveiðum, Svörtum englum og Hamarnum. „Ég hef ekki heyrt frá þeim formlega að þeir ætli sér að rifta samningnum og því hef ekkert um málið að segja,“ voru viðbrögð Þórhalls Gunnarssonar, dagskrárstjóra RÚV, við þessum fréttum. Hins vegar verður sýningum á Hamrinum hugsanlega frestað fram á næsta haust. Upphaflega stóð til að þeir yrðu settir í sýningu í byrjun næsta árs. Þórhallur Gunnarsson staðfesti að það væri verið að skoða það mál. „Við erum að endurskoða fjárhagsáætlunina fyrir árið 2009 og þetta er eitt af því sem kemur til greina,“ segir Þórhallur. Leikstjóri þáttaraðarinnar, Reynir Lyngdal, segir að hugsanlegar tafir á sýningunum hafi engin áhrif á framvindu verksins. „Við erum búnir að klippa fyrsta þáttinn af fjórum og hann lítur bara mjög vel út,“ segir Reynir.
Mest lesið Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Lífið „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikil sorg“ Lífið Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Lífið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið Stefán Teitur á skeljarnar Lífið VÆB bræður á forsíðu BBC Lífið Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Lífið Joe Don Baker látinn Bíó og sjónvarp Frumsýning: Ólafur Darri og Hera Hilmar í glænýrri seríu Bíó og sjónvarp Sendi ræningjunum skýr skilaboð þakin demöntum Lífið Fleiri fréttir Fjölskylda truflaði flutning á ísraelska atriðinu Vaktin: Seinna undankvöld Eurovision VÆB bræður á forsíðu BBC „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikil sorg“ Brando ekki að lóða og fisléttur Dylan Banna meinta kynferðisbrotamenn á rauða dreglinum Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Sendi ræningjunum skýr skilaboð þakin demöntum Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Stefán Teitur á skeljarnar Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Hera Björk mun kynna stigin Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ár í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Sjá meira