Lífið

Úr þinginu í orgelleik um jól

Illugi Gunnarsson við píanóið Þingmaðurinn mun sjá um orgelleik í messunni á aðfangadag í Flateyrarkirkju. Fjárlögin verða ekki á efnisskránni.
Illugi Gunnarsson við píanóið Þingmaðurinn mun sjá um orgelleik í messunni á aðfangadag í Flateyrarkirkju. Fjárlögin verða ekki á efnisskránni.

Illugi Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, hefur fengið það vandasama verkefni að vera organisti í Flateyrarkirkju á aðfangadag. „Ég var organisti þarna meðfram öðrum störfum eftir snjóflóðið 1995 en þá vann ég í verksmiðjunni Skelfiskur,“ segir Illugi. „Ég hafði svo sem ekki mikinn bakgrunn í orgelspili en ég tók þetta að mér að spila í messunum og ætli mér hafi ekki orðið einstaka sinnum á í messunni líka,“ segir hann og hlær við.

Að þessu sinni mun hann þó koma með dýrmæta reynslu að orgelinu í Flateyrarkirkju. „Ég fór út og var nokkra mánuði í Róm árið 1997 þar sem ég lærði hjá James Edward Goettsche sem var yfirorganisti í Vatíkaninu. Þetta var alveg ógleymanlegur tími. Svo var ég svo lánsamur að fá að taka þátt í páskamessunni í Vatíkaninu. Framlag mitt var reyndar ekki svo ýkja mikilfenglegt en ég hafði það hlutverk að fletta nótnablöðunum fyrir organistann. En hvað sem því líður þá hef ég allavega upplifað það að vera við messu hjá Jóhannesi Páli páfa II.“

Illugi hefur verið, eins og aðrir þingmenn, í karpi um fjárlögin og gefst því ekki mikill tími til undirbúnings við orgelleikinn. Í gamansemi segir hann það miður að ekki skuli vera hægt að slá þessu tvennu saman og spila fjárlögin.

Aðspurður hvort hann kvíði því að spila í messunni vegna lítils tíma til undirbúnings segir hann, „nei,nei. Það er nú venjulega þannig að ef réttu nóturnar eru fleiri en feilnóturnar þá er manni alveg óhætt að láta sjá sig meðal fólks á eftir,“ segir hann hógvær. Þeir sem vilja heyra fínpússaðan hljóðfæraleik þingmannsins geta eflaust gert það þótt hann sé önnum hlaðinn en hann gaf út geisladisk með píanóleik sínum árið 2004.

Hann vann til margra ára á Flateyri og fer þangað oft enda giftur Brynhildi Einarsdóttur sem er þaðan; dóttur Einars Odds heitins Kristjánssonar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.