Lífið

Þorgrímur Þráinsson í guðatölu á Skagaströnd

Þorgrímur Þráinsson svaraði spurningum krakkanna þegar hann las uppúr bók sinni, Þriðji ísbjörninn. Fæstar af þeim snérust um ísbirni enda segir Þorgrímur að krakkarnir hafi vitað allt um þá.
Þorgrímur Þráinsson svaraði spurningum krakkanna þegar hann las uppúr bók sinni, Þriðji ísbjörninn. Fæstar af þeim snérust um ísbirni enda segir Þorgrímur að krakkarnir hafi vitað allt um þá.

Þorgrímur Þráinsson las upp úr nýrri bók sinni á Skagaströnd á dögunum. Óhætt er að segja að hann hafi fengið höfðinglegar móttökur.

„Auðvitað er ótrúlega gaman að fara svona norður yfir heiðar og gleðja heilt bæjarfélag,“ segir Þorgrímur Þráinsson, rithöfundur með meiru. Hann endurnýjaði kynnin við Höfðahrepp á Skagaströnd á dögunum og las upp úr bók sinni, Þriðji ísbjörninn, fyrir krakkana í Höfðaskóla.

Tilefnið var ærið enda höfðu nokkur félög í bænum ásamt sveitarfélaginu sjálfu ákveðið að gefa nemendunum bókina hans. Ekki að ástæðulausu enda skrifaði Þorgrímur bókina í kjölfar þess að tveir ísbirnir gengu á land í nærsveitum Skagastrandar. „Þetta var mjög skemmtilegt og krakkarnir voru ekkert sparir á spurningarnar,“ bætir Þorgrímur við.

Adolf Berndsen, oddviti Höfðahrepps, segir að Þorgrímur hafi sett mjög skemmtilegan svip á bæjarlífið þegar hann dvaldist þar í sumar á listamiðstöðinni Nesi og skrifaði þar kvikmyndahandrit. „Já, hann setti mjög sterkan svip á samfélagið og blandaðist mjög vel inn í samfélagið, sat oft drykklangar stundir á kaffihúsum bæjarins og ræddi um landsins gagn og nauðsynjar við íbúana. Fólk hreifst mjög af þeim drifkrafti sem einkennir hann,“ segir Adolf og ljóst að Þorgrímur er nánast kominn í guðatölu meðal Skag­strendinga.

Adolf segist hafa hrifist af því þegar hann jafnhenti heilli barnabók á örskammri stundu þegar ísbjarnarævintýrið gekk yfir. Sveitarfélagið, í samstarfi við þau félög sem keyptu bókina, hyggst nýta sér þann ferska andvara sem Þorgrímur kom með til bæjarins og ætlar að efna til smásagnakeppni strax í byrjun nýs árs.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.