Fleiri fréttir

Á þremur stöðvum sama kvöldið

Gunnar Hansson náði einstakri þrennu í íslenskri sjónvarpssögu. Hann talaði inn á heimildarmynd föður síns, Hans Kristjáns Árnasonar, Frá torfbæ á forsíðu Time, hann var auðvitað Frímann Gunnarsson í þáttunum Mér er gamanmál, sem sýndir er á Stöð 2, og á meðan á þessu stóð var hann að

Hótel Borg áttræð

Hótel Borg hélt hátíðlega upp á áttræðisafmæli hótelsins á dögunum. Herbergin og svíturnar á hótelinu voru opnar afmælisgestum og haustmatseðillinn sem var með norrænu ívafi var kynntur.

Kokkalandsliðið í ham - myndband

Í hádeginu í dag eldaði íslenska kokkalandsliðið fyrir fjölda boðsgesta á veitingastaðnum Grillinu. Um var að ræða einskonar generalprufu þar sem liðið eldaði meðal annars bleikju og lambafillet sem gestir renndu niður með íslköldu vatni. Um var að ræða æfingu fyrir heimsmeistarakeppni sem ber heitið Expogast- Culinary world cup og fer fram í Lúxemborg 0. - 24. nóvember næstkomandi. Við litum við inn í eldhús og fylgdumst með kokkunum í ham eins og sjá má í meðfylgjandi myndskeiði.

Parar fólk saman í Hollywood

Victoria Beckham sér til þess að vinkonur hennar hitti karlmenn í Hollywood. Núna leitar hún að lífsförunaut fyrir Kelly Brook leikkonu. Fyrrum Kryddpían sem varð fatahönnuður leggur Kelly lið í leit hennar að rómantískum vin er haft eftir heimildarmanni sem er nákominn Victoriu. Victoria er hamingjusöm með David og veit hvað þarf til að góð sambönd gangi upp. Nú leitar hún að félaga fyrir Kelly en þær kynntust í tískuviðburði sem þær hafa sótt saman undanfarið. Þær eru með svipaðan húmor og þeim kemur vel saman," sagði heimildarmaðurinn. Victoria áttaði sig á því hvað það er erfitt fyrir Kelly að kynnast góðum m-önnum og ákvað að aðstoða hana. Það er erfitt fyrir konur í Hollywood að hitta karlmenn sem eru þess virði að eyða tíma í." Kelly var með íþróttakappanum Danny Cipriani en sagði honum upp í júní á þessu ári. Núna er hún á höttunum eftir rómantískum kynnum.

Sætur bíll sem gleður augað

Ólína Sigurjónsdóttir ekur um göturnar á afskaplega fallegum bíl og hefur vakið verðskuldaða athygli meðal annarra ökumanna. Bíll Ólínu skartar fallegum, löngum augnhárum yfir framljósunum og er án efa einn sætasti bíll landsins um þessar mundir.

Stelpurnar í Ungfrú Samúel

Meðfylgjandi má sjá myndir sem teknar voru af stúlkunum sem keppa í fyrirsætukeppninni Ungfrú Samúel sem fram fer... Þá má sjá Erp Eyvindarson og Friðrik Dór skemmta sér og öðrum á 800 Bar á Selfossi. Myndirnar tók Sveinbi ljósmyndari superman.is.

Sean Penn fær styrk frá Bill Clinton

Bill Clinton, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, og stofnun hans hafa ákveðið að styrkja góðgerðarsamtök bandaríska leikarans Sean Penn um 500 þúsund dala, sem samsvarar 55 milljónum íslenskra króna. Penn hefur verið ötull talsmaður mannúðarmála en það er Haítí sem á hug hans allan. Íbúar

Elskar að kela og borða - myndir

Ed Westwick ein aðalstjarnan í Gossip Girl sjónvarpsþáttunum vinsælu elskar að eyða heilu dögunum upp í rúmi þar sem hann sefur, knúsar og borðar mat með fallegri konu. Ed, sem leikur Chuck Bass, hefur undanfarið verið í haltu mér slepptu mér sambandi við meðleikkonu sinni, Jessicu Szohr, en í dag eru þau ekki saman að hans sögn. Kelerí og matur upp í rúmi heilu dagna. Ég elska það," sagði Ed.

Rúnar Freyr og Selma saman á ný

„Ég hlakka mikið til að troða upp í Hörpu, það er búið að bíða lengi eftir þessu húsi,“ segir Rúnar Freyr Gíslason leikari. Hann mun leika stórt hlutverk í söngleiknum Chess eftir Abba-félagana Björn og Benny og textahöfundinn Tim Rice sem verður frumsýndur í nýju tónlistar- og

Fjölskylduvænir í Turninum - myndband

Í meðfylgjandi myndskeiði sýnir Sigurður Friðrik Gíslason framkvæmdastjóri Veisluturnsins hvað hann er með í boði á veitingahúsinu Nítjándu þar sem hann leggur sérstaka áherslu á að sinna ungu gestunum. Það sem athygli vekur er að gestum er boðið upp á alls sextán tegundir af desertum. Börnum stendur til boða sérstakt barnahlaðborð og ævintýralegt barnaleikherbergi þar sem starfsmaður fylgist með börnunum á meðan foreldrar njóta matarins. Í leikherberginu er heill ævintýraheimur fullur af Disney leikföngum, bíó og lesefni. Sjá Disneyheim barnanna hér (myndband á Facebooksíðu Lífsins).

Hélt partí fyrir ömmu

Rapparinn Jay-Z hélt veglegt partí fyrir ömmu sína þegar hún varð 85 ára á dögunum. Jay-Z og unnusta hans Beyoncé Knowles sóttu ömmuna á glæsibifreið og fóru með hana í sal með útsýni yfir New York borg. Þar beið fjöldinn allur af gestum og skemmti amman sér hið besta.

Einstök kvöldstund með Yoko Ono

Mæðginin Sean og Yoko og þétt skipað Plastic Ono bandið buðu upp á hráa og tilraunakennda tónlistarveislu í Háskólabíó á laugardagskvöldið.

Samdi við risann Macmillan

Yrsa Sigurðardóttir hefur samið við bandarískt risaforlag um útgáfu á einni glæpasögu sinni. Útgefendur þar í landi eru að leita að hinum næsta Stieg Larsson.

Rækta hjónabandið með samkvæmisdönsum

„Hann er ekkert á tátiljunum þarna. Hann heldur enn þá í karlmennskuna,“ segir Sigurlaug Halldórsdóttir, eða Dillý, flugfreyja og eiginkona leikarans Pálma Gestssonar. Stutt er síðan þau byrjuðu að stunda samkvæmisdansa einu sinni í viku eftir að hafa frestað því í mörg ár.

Flétta á leiðinni

Lagið Flétta sem Björk Guðmundsdóttir syngur á íslensku með enska tónlistarmanninum Antony Hegarty kemur út á þriðjudaginn. Lagið er að finna á nýjustu plötu hljómsveitarinnar Antony and the Johnsons, Swanlight. Rólegur píanóundirleikur hljómar undir fallegum röddum Bjarkar og Antonys í laginu, sem á vafalítið eftir að falla vel í kramið hjá aðdáendum þeirra beggja. Björk er þarna að launa Antony greiða frá árinu 2007 er hann söng með henni lagið My Juvenile á plötu hennar Volta.

Lítið um safarík kvenhlutverk

Gwyneth Paltrow segir að það hafi verið erfitt að slá í gegn í Hollywood. Hún óttast að margar ungar leikkonur lendi í vandræðum þegar þeim er stillt upp við vegg í kvikmyndaborginni. „Þegar ég var að hefja ferilinn lagði einhver til að við myndum ljúka fundinum í svefnherberginu,“ sagði Paltrow í viðtali við tímaritið Elle.

Ljósvakaljóð í fimmta sinn

Stuttmynda- og handritahátíð unga fólksins, Ljósvakaljóð, verður haldin í fimmta sinn í ár. Ungu fólki á aldrinum 15-25 ára gefst kostur á að keppa um bestu stuttmyndina eða besta frumsamda stuttmyndahandritið. Hátíðin verður haldin föstudaginn 22. október í Norræna húsinu.

LeAnn með leiðindi

Sveitasöngkonan LeAnn Rimes á að hafa treyst vinkonu sinni fyrir því að í hvert sinn sem hún lemur í boxpúða í líkamsræktinni ímyndi hún sér fyrrverandi eiginkonu kærasta síns, Brandi Glanville.

Halle fann ástina á ný

Leikkonan Halle Berry er farin að slá sér upp með mótleikara sínum, hinum franska Olivier Martinez. Parið kynntist við tökur á kvikmyndinni Dark Tide sem frumsýnd verður á næsta ári.

Ráðist á Kim Kardashian

Kim Kardashian, 29 ára, segist vera heil heilsu eftir að kona réðist á hana á bar í New York í gærkvöldi. Ég vil fá að koma því á framfæri að það er allt í lagi með mig eftir þennan slag sem ég lenti í á barnum í gærkvöldi. Það eru allir að spyrja mig hvort ég sé OK," sagði Kim í yfirlýsngu sem hún sendi frá sér á blogginu hennar í gær. Í gærkvöldi fór ég ásamt Kourtney, Scott og Khloe í drykk á bar í New York borg. Drukkinn karlmaður kom upp að mér og bað um að fá að taka mynd. Ég gaf leyfi en kærastan hans, sem var mjög drukkin, missti stjórna á sér, henti glasi í mig og hlutirnir fóru úr böndunum. Sem betur fer voru Scott og Khloe þarna til að vernda mig. Enginn af þeim var að drekka. Þetta var fjölskyldukvöld. Við yfirgáfum staðinn og blönduðum okkur því ekki í dramað hjá parinu.

Í kröppum dansi í Las Vegas

„Ég var tekin bak við og haldið þar í klukkutíma. Svo var ég spurð spjörunum úr og allt tekið upp úr öllum töskum mínum. Fyrst vissi ég ekkert hvað var í gangi en þeir útskýrðu svo hvað var í gangi,“ segir fyrirsætan Bryndís Gyða Michelsen.

Svona færðu stinnan bossa - myndband

Sigrún Björg Ingvadóttir einkaþjálfari og Tabata kennari í World Class í Kringlunni sýnir okkur heimaæfingar fyrir efri og neðri hluta líkamans sem auðvelt er að framkvæma. Eina sem Sigrún notast við er stóll og teygja. Sjá æfingarnar í meðfylgjandi myndasafni.

Detox dúndur fyrir kroppinn - myndband

Solla Eiríks leyfir okkur að kíkja inn í eldhús á veitingahúsinu hennar, Gló þar sem hún gefur okkur einfalda en dúndurgóða uppskrift að detox djús sem inniheldur steinselju, mintu, korianter, sítrónugras sellerí, agúrku, engifer, lime og vatn. Solla sýnir okkur aðferðina og fræðir okkur um hollustu safans í meðfylgjandi myndskeiði.

Hilmir Snær fluttur á sjúkrahús í London

„Þetta reyndist vera aðeins meira en mér sýndist í fyrstu,“ segir Hilmir Snær Guðnason leikari. Vesturport varð að hætta við sýningu á Faust fyrir fullu húsi í Young Vic-leikhúsinu á fimmtudagskvöld þegar tuttugu mínútur voru liðnar af leikritinu, vegna skurðar sem Hilmir Snær hlaut. Leikarinn vildi halda áfram en Bretarnir sendu hann rakleiðis upp á sjúkrahús í sjúkrabíl þar sem hann varð að bíða í fjóra tíma eftir að fá aðstoð. „Maður saknaði svolítið íslensku slysavarðsstofunnar þá,“ segir Hilmir.

Spilar Barry White í svefnherberginu

Söngkonan Mel B sem er um það bil að hleypa heiminum inn í líf sitt því nú er að hefja göngu sína raunveruleikaþáttur í Bretlandi, sem ber heitið Mel B: It's a Scary World, þar sem fylgst er með Mel, eiginmanni og börnum hennar takast á við daglegt líf. Mel segir að áhorfendur fái að sjá nánast allt sem hún aðhefst nema þegar klukkan er eitt yfir miðnætti og Barry White er settur á fóninn þá krefst hún þess að slökkt verði á kvikmyndatökuvélunum. „Það verða atriði tekin upp í svefnherberginu okkar en ekki eftir klukkan eitt. Þá set ég Barry White tónlist í gang og guð veit hvað gerist spennandi þá," sagði Mel.

Afi er afi Sveppa - myndband

Glæný þáttaröð af Algjörum Sveppa hefst í fyrramálið á Stöð 2 í opinni dagskrá. Þetta er þriðja þáttaröðin en síðustu tvo vetur hefur Sveppa sannarlega tekist að vinna hug og hjörtu yngstu áhorfenda Stöðvar 2.

Uppákoma á Kjarvalsstöðum laugardag - myndband

Listasafn Reykjavíkur og Skotturnar, regnhlífasamtök kvennahreyfingarinnar á Íslandi hafa ruglað saman reitum og skipulagt dagskrárveislu sem verður nokkurs konar upptaktur fyrir kvennafrídaginn 25. október. Margar af fremstu listakonum landsins koma fram í dagskrá sem fram fer á Kjarvalsstöðum daglega frá kl. 12:30 - 13:00. Í meðfylgjandi myndskeiði segir Ísgerður Elfa Gunnarsdóttir okkur hvað er framundan í hádegisviðburðarröðinni ásamt og trúðateyminu sem kallar sig Mr klumz og plong en það skipa þær Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttirig og Tinna Thorvalds Önnudóttir sem eru nýútskrifaðar leikkonur úr Rose Bruford College í London. Trúðarnir taka af skarið og skemmta þeim sem vilja á Kjarvalsstöðum á morgun, laugardag klukkan 12:30. Facebooksíða - Fjöldasamstaða kvenna. Listasafn Reykjavíkur (upplýsingar um viðburðina)

Síða fyrir einhleypa slær í gegn - myndband

Síða sem stofnuð var á Facebook fyrir einhleypa á Íslandi hefur slegið í gegn. Stofnandi síðunnar Drífa Björk Kristjánsdóttir segir okkur í m eðfylgjandi myndskeiði hvað fékk hana til að opna síðuna og ballinu fyrir þetta samfélag sem hún hefur skapað á skemmtistaðnum Players í kvöld. Hér má sjá síðuna á Facebook. Það er akkúrat ekkert gert á Íslandi fyrir einhleypt fólk. Þetta er lítið samfélag. Fólk er að spjalla þarna inni og þetta er allt hið glæsilegasta og yndislegt fólk sem tekur þátt í þessu og í kvöld ætlum við að vera með ball á Players," sagði Drífa.

Lasagna leið að hjarta mannsins

Pussycat Dolls söngkonan Nicole Scherzinger, 32 ára, vill meina að lasagnað sem móðir hennar kenndi henni að gera er lykillinn að hjarta kærastans, Formúlu 1 kappans Lewiz Hamilton. Besta leiðin til að halda lífi í rómantíkinni er að vita hvað elskhuginn elskar að borða. Í mínu tilfelli er það lasagnað sem mamma kenndi mér að gera," sagði Nicole.

Frumsýning Buddy Holly

Söngleikurinn Buddy Holly var frumsýndur við mikil fagnaðarlæti gesta í Austurbæ í gærkvöldi. Ingólfur Þórarinsson, best þekktur sem Ingó Veðurguð, fer með aðalhlutverkið, ásamt fjölda hæfileikaríkra söngvara og leikara. Vísir var á staðnum og myndaði prúðbúna gesti fyrir sýningu.

Sniffar á setti

Breski leikarinn Russell Brand, 35 ára, þefaði af áfengi við tökur á kvikmyndinni Arthur til að minna sig á hvernig honum leið þegar hann drakk sem mest. Russell hefur farið í áfengismeðferð og barist við eiturlyfjafíkn í gegnum tíðina en í umræddri mynd, sem er endurgerð frá árinu 1981, leikur hann milljónamæring sem er fyllibytta. „Hann sniffar af alkohóli til að fá minninguna fram hvernig hann var hérna áður fyrr þegar hann var sem verstur. russell hefur verið edrú í sjö ár þannig að við þurfum ekki að hafa áhyggjur af honum," sagði leikstjóri myndarinnar Jason Winer.

Toni Braxton gjaldþrota

Bandaríska söngkonan Toni Braxton hefur lagt fram gjaldþrotabeiðni. Hún getur ekki borgað skuldir sem nema hátt í 50 milljónum dala, eða um 5,5 milljörðum króna. Eignir hennar eru aftur á móti metnar á bilinu hundrað milljónir til einn milljarður króna. Á meðal þeirra sem söngkonan skuldar peninga eru Four Seasons-hótelin, skartgripa­fyrirtækið Tiffany & Co og bandaríska skattstofan. Þetta er í annað sinn sem Braxton, sem er þekkt fyrir lagið Un-Break My Heart, sækir um gjaldþrotabeiðni. Síðast gerði hún það árið 1998.

Sveinn undirbýr matreiðslubók

Sjónvarpsþættirnir Fagur fiskur í sjó, þar sem þau Sveinn Kjartansson úr Fylgifiskum og Áslaug Snorradóttir göldruðu fram dýrindis fiskrétti, slógu eftirminnilega í gegn hjá RÚV. Sveinn hyggst fylgja eftir þeim vinsældum með matreiðslunámskeiði og matreiðslubók.

Leikna íslenska efnið stendur upp úr

„Án þess að ég geti svarað fyrir alla held ég að framleiðsla leikins íslensk efnis, sem hefur verið áberandi á dagskrá Stöðvar 2 frá árdögum, hljóti að standa upp úr,“ segir Pálmi Guðmundsson, framkvæmdastjóri dagskrársviðs 365 miðla. Stöð 2 fagnar á laugardaginn 24 ára afmæli sínu og ætlar af því tilefni að bjóða upp á veglega dagskrá í ólæstri útsendingu frá föstudagskvöldi og þar til Spaugstofunni lýkur á laugardagskvöldinu. Ísland í dag, Logi í beinni og Auddi og Sveppi ætla að fjalla um ævi afmælisbarnsins, hver með sínu nefi en til gamans má geta að tíu ár eru liðin frá því 70 mínútur með þeim Jóa og Simma fóru í loftið. En þeir Auddi og Sveppi ætla að beina sjónum sínum að þeirri sögu.

Ilmvatn úr Eyjafjallajökli

„Ég held að þetta sé fyrsta íslenska ilmvatnið sem fer í almenna sölu,“ segir Sigrún Lilja Guðjónsdóttir, oftast kennd við tískuvörumerkið Gyðju.

Milljónatjón hjá Munda

Ekki eru nema þrjár vikur síðan fatahönnuðurinn Mundi opnaði búð á Laugavegi en þrátt fyrir stuttan líftíma hefur búðin orðið fyrir barðinu á ræningjum tvisvar sinnum. Í vikunni var vetrarlína fatamerkisins hreinsuð af lager búðarinnar og Sigyn Eiríksdóttir, annar eigandinn og móðir Munda, heitir fundarlaunum þeim sem upplýst getur ránið.

Bankahrunið sem pásumerki

Grafíski hönnuðurinn Oscar Bjarnason hefur í frístundum sínum búið til afmælismerki fyrir vini og kunningja á Face­book. Núna eru merkin orðin 106 talsins. Á síðasta ári gerði hann merki fyrir eins árs afmæli bankahrunsins og stutt er síðan tveggja ára afmælismerki þess leit dagsins ljós. „Það er með íslenska fánanum og pásumerki. Það er ekkert búið að gerast síðan síðast,“ segir Oscar um ástand mála eftir hrunið. Spurður hvernig hann haldi að þriggja ára afmælismerkið líti út segist hann ekki hafa hugmynd. „Það væri dásamlegt að sleppa því að þurfa að gera það.“

Forðast tískuárekstra með SMS-um

Söngkonan kynþokkafulla Rihanna segir í nýju viðtali að hún forðist tískuárekstra við Lady Gaga og Katy Perry með því að senda þeim SMS og spyrja í hverju þær ætli að vera á viðburðum.

Listir og almenningsfé

Hvað réttlætir að fé almennings renni til leikhússins? Dr. Dragan Klaic mun leitast við að svara þeirri spurningu og fleirum í fyrir­lestri í dag, undir yfirskriftinni Hver er framtíð sviðslista?

Leikkona selur kynlífsmyndband

Vandamál golfarans Tiger Woods halda áfram að hrannast upp. Á dögunum var sagt frá því að klámmyndaleikkonan Devon James hefði tekið upp myndband af sér og Woods í djörfum dansi. Nú hefur hún selt framleiðslufyrirtæki myndbandið, samkvæmt gula vefnum Radar Online.

Ekki meira drama takk!

Breski söngvarinn Robbie Williams fékk sig fullsaddan af dramatískum samböndum sem tilheyra fortíðinni þar sem allt fór í háaloft við minnsta tilefni. Í dag er Robbie giftur maður og sáttur við lífið og tilveruna. Hann giftist leikkonunni Ayda Field á heimili þeirra í Beverly Hills 7. ágúst síðastliðinn. Robbie segir að hjónabandið sé eitt það besta sem hefur komið fyrir hann. Að vera giftur er yndisleg tilfinning og ef ég á að vera alveg hreinskilinn þá er ég ennþá að venjast því að vera í sambandi sem er laust stöðugt drama og vesen," sagði Robbie. Lífið verður allt öðruvísi þegar þú ert giftur. Ruglið og vitleysan hverfur og tilveran tekur allt aðra stefnu."

Fjárfestu í geðheilsu - myndband

Við erum að fara að styrkja geðsjúka til náms vegna örðuleika við að halda sér í námi eða hreinlega fara í nám vegna geðsjúkdóma eða ienhverra geðveilu. Hver hefur það ekki?" sagði Ragnheiður Guðfinna Guðnadóttir í meðfylgjandi myndskeiði þegar við hittum hana í dag. Þeir eru í Vídalínskirkju í Garðabæ klukkan 20:00 í kvöld. Fram koma fjöldi listamanna eins og Bubbi, Páll Rósinkrans, Raggi Bjarna, Geir Ólafs, Haffi Haff, Júpíter, Margrét Eir og fleiri. Miðar á tónleikana fást í Lyfju og við innganginn í kvöld. Sjá nánar á Facebook.

Fílar að vera full á netinu

Leikkonan Gwyneth Paltrow elskar að slaka á heima hjá sér og drekka vín. Iron Man stjarnan, sem á tvö börn með söngvara Coldplay hljómsveitarinnar, Chris Martin, lét hafa eftirfarandi eftir sér: Sum kvöld þegar börnin eru sofnuð nota ég tímann fyrir sjálfa mig og sest ég við tölvuna mína með vínglas mér við hlið. Ég fréttirnar og versla föt á netinu." Þá opnaði hún sig um mataræðið: Ég elska mat og vín of mikið til að sleppa því. Ég elska líka ís. Lífið yrði leiðinlegt ef ég gæti ekki leyft mér að neyta þess sem mér líkar við."

Boðið stórfé fyrir að hætta

Meðlimum hljómsveitarinnar Weezer hafa verið boðnar tíu milljónir dala, ríflega 1,1 milljarður króna, fyrir að hætta störfum.

Sjá næstu 50 fréttir