Tónlist

Flétta á leiðinni

Antony Hegarty syngur dúett á íslensku með Björk í laginu Flétta.
Antony Hegarty syngur dúett á íslensku með Björk í laginu Flétta.
Lagið Flétta sem Björk Guðmundsdóttir syngur á íslensku með enska tónlistarmanninum Antony Hegarty kemur út á þriðjudaginn.

Lagið er að finna á nýjustu plötu hljómsveitarinnar Antony and the Johnsons, Swanlight. Rólegur píanóundirleikur hljómar undir fallegum röddum Bjarkar og Antonys í laginu, sem á vafalítið eftir að falla vel í kramið hjá aðdáendum þeirra beggja. Björk er þarna að launa Antony greiða frá árinu 2007 er hann söng með henni lagið My Juvenile á plötu hennar Volta.

Swanlight er fjórða plata Antony and the Johnsons. Önnur plata sveitarinnar, I Am a Bird Now, sló í gegn þegar hún kom út fyrir fimm árum. Sama ár spilaði hljómsveitin hér á landi við góðar undirtektir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×