Rúnar Freyr og Selma saman á ný 11. október 2010 09:00 Rúnar Freyr og Selma Björnsdóttir munu leika á móti hvort öðru í söngleiknum Chess sem verður eitt af opnunaratriðum Hörpu á næsta ári. „
Ég hlakka mikið til að troða upp í Hörpu, það er búið að bíða lengi eftir þessu húsi,“ segir Rúnar Freyr Gíslason leikari. Hann mun leika stórt hlutverk í söngleiknum Chess eftir Abba-félagana Björn og Benny og textahöfundinn Tim Rice sem verður frumsýndur í nýju tónlistar- og ráðstefnuhúsi Reykjavíkur þegar það verður vígt næsta sumar. Rúnar mun þar leika á móti fyrrverandi eiginkonu sinni, Selmu Björnsdóttur, en skilnaður þeirra fyrr á þessu ári fór ekki framhjá neinum. Rúnar vildi ekki mikið tjá sig um það, sagði það bara milli hans og Selmu. „Það hefur annars alltaf verið gott að vinna með Selmu og ég kvíði því ekkert,“ segir Rúnar, sem er staddur í London um þessar mundir að leika í Faust með Vesturporti í Young Vic-leikhúsinu. Þetta verður síður en svo í fyrsta skipti sem Rúnar og Selma leika á móti hvort öðru í söngleik. Þau léku Danny og Sandy í frægri uppfærslu á Grease og svo í Singin‘ in the Rain á fjölum Þjóðleikhússins en þar brugðu þau sér í líki Don og Kathy sem Gene Kelly og Debby Reynolds höfðu gert fræg rúmri hálfri öld áður. Rúnar segir hlutverkið í Chess feykilega krefjandi hvað sönginn snertir og bendir á að Murray Head hafi sungið það á sínum tíma í London. „En fyrir þá sem ekki vita þá söng hann hlutverk Júdasar í upprunalegu útgáfunni af Jesus Christ Superstar.“ Rúnar hefur hingað til ekki verið mjög frægur fyrir söng en hann leggur traust sitt á leikstjórann Pál Baldvin Baldvinsson. „Ég fór allavega í prufur og hann veit alveg hvað ég get.“- fgg
Mest lesið Ríflega níutíu manns mættu í eitt stærsta pálínuboð Íslandssögunnar Matur „Lítil stúlka með bollukinnar“ komin í heiminn Lífið Vansæll á sumum af stærstu augnablikum lífs síns Lífið Þöglu börnin gleymast í kerfinu Lífið Þegar gögnin láku og Ashley Madison var á allra vörum Lífið Krakkatía vikunnar: Lilo, Akkilles og risaskordýr Lífið Fréttatía vikunnar: FIFA, ást Jóns og bjargvættur Höllu Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Skipta um stríðsguð vegna alvarlegra meiðsla Bíó og sjónvarp GDRN og Jón Jónsson: Beyoncé-stælar, bítbox og falsetta í Bæjarbíói Lífið Fleiri fréttir „Lítil stúlka með bollukinnar“ komin í heiminn Þöglu börnin gleymast í kerfinu Vansæll á sumum af stærstu augnablikum lífs síns Krakkatía vikunnar: Lilo, Akkilles og risaskordýr Þegar gögnin láku og Ashley Madison var á allra vörum GDRN og Jón Jónsson: Beyoncé-stælar, bítbox og falsetta í Bæjarbíói Fréttatía vikunnar: FIFA, ást Jóns og bjargvættur Höllu Olivia Rodrigo á Íslandi Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Sjá meira