Fleiri fréttir

Býttiátak hjá Eymundsson

„Þetta er ekkert aprílgabb, við ætlum að byrja í dag að taka á móti öllum íslenskum og erlendum vasabrotsbókum sem gefnar hafa verið út árið 2007 eða síðar og greiða fólki 200 kr. fyrir stykkið í formi inneignar­nótu,“ segir Bryndís Lofts­dóttir, vörustjóri hjá Eymundsson.

Fær stuðning frá Microsoft

Fyrirtækið Microsoft býður almenningi upp á frítt niður­hal á lagi Þórs Breiðfjörð Kristinssonar, Sunny Day. Í hópi með Þór eru flytjendur á borð við Warren G og The Lemonheads.

Tíu kvikmyndir keppa um Óskarinn

Tíu kvikmyndir verða tilnefndar sem besta myndin á Óskars­verðlaunahátíðinni á næsta ári í stað fimm eins og venjan hefur verið. Með þessu vilja skipu­leggjendurnir auka fjölbreytni myndanna sem keppa um þennan eftirsótta titil og gefa fleiri vin­sælum myndum tækifæri til að láta ljós sitt skína. Þetta verður í fyrsta sinn síðan 1943 sem tíu myndir keppa í þessum flokki.

Timberlake og Lohan rífast

Lífið og tilveran er ekki einföld í heimi hinna ríku og frægu. Og hún er ansi flókin, sagan af Justin Timberlake og Lindsay Lohan í New York.

Kettlingarnir fengu ný heimili

Eins og Fréttablaðið greindi frá í lok maí höfðu aldrei fleiri kettlingar þurft að leita húsaskjóls hjá Sigríði Heiðberg í Kattholti. Þeir voru alls þrjátíu talsins, sumir illa á sig komnir eftir að eigendurnir höfðu skilið þá eftir upp á von og óvon. Sigríður sagði jafnframt að kreppan væri komin í Kattholt, minna væri um frjáls fjárframlög frá almenningi og því gengi erfiðlega að reka starfsemina.

The Killers undirbýr nýja plötu

Hljómsveitin The Killers frá Las Vegas ætlar að ljúka við nýja plötu með lögum eftir aðra tónlistarmenn á þessu ári.

Stefán Karl braut glas í beinni

Leikarinn Stefán Karl Stefánsson kom Elsu Maríu Jakobsdóttur í opna skjöldu þegar hann braut vatnsglas í beinu viðtali í Kastljósinu í kvöld svo flæddi yfir undirbúningsglósur hennar. Það mun þó um óviljaverk hafa verið að ræða.

Daniel Craig leikur í hryllingsmynd

Bond-leikarinn Daniel Craig er að ná samningum við Morgan Creek-framleiðslufyrirtækið um að leika í hryllingsmyndinni The Dreamhouse eða Draumahúsið. Leikstjóri verður Jim Sheridan en handritið er eftir David Loucka. Myndin segir frá fjölskylduföður sem telur sig hafa fundið draumahúsið handa fjölskyldu sinni. Allt fer hins vegar á versta veg þegar fyrrum eigendur hússins fara að ofsækja fjölskylduna.

Árni Johnsen ræktar kalkúna

„Við erum alveg sannfærðir um að þeir séu frá Frakklandi. París. Þeir tala í það minnsta frönsku,” segir Árni Johnsen alþingismaður.

Dúett Ólafar og Megasar

Megas og Ólöf Arnalds halda tónleika á Café Rosenberg miðvikudaginn 1. júlí. Þar munu þau spila hvort í sínu lagi og einnig nokkur lög saman.

Niður á bóginn í Salnum

Er ekki allt á niðurleið? Hvað sem uppnáminu líður ætlar bassinn Bjarni Thor Kristinsson að þrepa sig niður og bjóða gestum Salarins á óborganlega skemmtun í kvöld í Salnum í Kópavogi. Þar flytur hann aríur, ljóð og sönglög sem stefna niður á við og rista djúpt við undirleik Ástríðar Öldu Sigurðardóttur píanóleikara. Þau byrja eins ofarlega og Bjarna er unnt og svo dýpkar það og dimmir niður tónstigann í leit að djúpum bassanótum og merkingu þeirra.

Djammstöðum fjölgar enn

Skemmtistaðir virðast þrífast vel í kreppunni því opnaðir verða þrír nýir skemmtistaðir nú á næstunni.

Litríkur fantasíuheimur

Elektródúettinn Empire of the Sun hefur vakið mikla athygli fyrir afslappaðar og grípandi melódíur sínar. Smáskífulagið Walking on a Dream hefur heldur betur hitt í mark.

Efron breytir til

Bandaríska táningsstjarnan Zac Efron ætlar sé ekki bara að vera frægur fyrir snoppufrítt andlit og hlutverk sitt í High School Musical. Því vill hann venda kvæði sínu í kross og hefur samið um að leika í erótískum trylli. Þetta hefur vakið nokkra kátínu meðal erlendra kvikmyndablaðamanna sem líkja Efron við Gosa. Blaðamaður Empire segir að Disney sé skaparinn sem vilji halda honum heima við, í öruggu umhverfi þar sem hann malar gull á unglingsstjörnum. Þeir verði hins vegar á einhverjum tímapunkti að hleypa honum út í hinn vonda heim.

Eignuðust tvíbura

Hjónin Sarah Jessica Parker og Matthew Broderick eignuðust tvíbura nú í vikunni. Hjónin fengu staðgöngumóður til að ganga með börnin og sú fæddi tvær litlar stúlkur sem hafa fengið nöfnin Marion Loretta Elwell og Tabitha Hodge.

Nína doktor

Nína Margrét Grímsdóttir píanóleikari varði hinn 2. júní sl. doktorsritgerð sína við tónlistardeild Graduate Center of the City University of New York. Andmælandi var dr. Sylvia Kahan, prófessor í píanóleik og tónlistarfræðum við CUNY Graduate Center og College of Staten Island. Titill doktorsritgerðarinnar er: „The Piano Works of Páll Ísólfsson (1893-1974) – A Diverse Collection.“

Enn meiri rómantík hjá Heigl

Leikkonan Katherine Heigl, sem sló í gegn í læknaþáttunum Grey"s Anatomy, hefur tekið að sér aðalhlutverkið í rómantísku gamanmyndinni Life As We Know It.

Norrænt kvikmyndastarf

Norrænu menningarmálaráðherrarnir hafa gert fimm ára samkomulag við Norræna kvikmynda- og sjónvarpssjóðinn. Samkomulagið er einn stærsti liðurinn í fjárlögum menningarmálaráðherranna og mun styrkja Norðurlönd í alþjóðlegri samkeppni á sviði kvikmyndagerðar og framleiðslu sjónvarpsefnis.

Fincher leikstýrir Facebook

Bandaríski leikstjórinn David Fincher er þessa dagana orðaður við kvikmynd um Facebook-ævintýrið. Fincher þarf vart að kynna fyrir kvikmyndaáhugamönnum, eftir hann liggja verk á borð við Seven, The Game og nú síðast The Curious Case of Benjamin Button. Að ógleymdu Rolling Stones-myndbandinu sem nýjasta Vodafone-auglýsingin á Íslandi vísar svo sterkt til.

Ráðstefna rokkara

Heljarinnar þungarokksveisla verður haldin á Sódómu Reykjavík annað kvöld. Deep Jimi and the Zep Creams og Morðingjarnir stíga á svið, fjórir þungarokksfróðir plötusnúðar þeyta skífum og keppt verður í spurningakeppni þar sem þungarokk verður vitaskuld í forgrunni. Einnig verður dregið í Metal-happadrætti. Þeir sem mæta í klæðnaði sem hæfir hátíð sem þessari geta átt von á glaðningi og aðstandendur lofa einnig glæstum vinningum í spurningakeppninni.

Frímann og Frank Hvam ræða saman um gamanmál

„Við erum búnir að vera í Svíþjóð, Noregi, Danmörku og á Íslandi. Eigum eftir að fara til Finnlands og svo Bretlands. Og málið er að Frímann Gunnarsson er að gera úttekt á gríni frá Norðurlöndunum," segir Gunnar Hansson, leikari og Vespusali með meiru.

Ræktar tóbak og grasker

Í Skorradal hafa nokkrir starfsmenn Skógræktar ríkisins tekið sig til og gera nú tilraunir með að rækta grasker, tóbak og maís hér á landi. Orri Freyr Finnbogason og samstarfsmenn hans hjá Skógrækt ríkisins stunda ýmis konar tilraunastarfsemi þegar kemur að nytja- og matjurtarækt.

Hátíðir í haust

Kvikmyndahátíðir haustsins verða með fjörlegra móti og er ekkert lát á þótt þrengist hagur múgamanna:

Glaðari gaflar út um alla borg

Reykjavíkurborg stendur nú fyrir hugmyndasamkeppni þar sem einstaklingum gefst kostur á að senda inn hugmyndir að veggverki á húsgafl.

Smiðjurnar tókust vel

Hljóðverssmiðjur Kraums voru haldnar í fyrsta sinn í hljóðverinu Tankinum á Flateyri, Önundarfirði, fyrir skömmu. Nokkur lög voru kláruð í hljóðverinu og vel heppnað námskeið um upptökur, lagasmíðar og fyrstu skrefin í tónlistarbransanum haldið.

Katie sendir Peter tóninn á Twitter

„Við höfum tekið þá ákvörðun að skilja og við vonum að fjölmiðlar virði þá ósk okkar að gera það í kyrrþey, fjarri kastljósinu.“

Upphafið að Megan Fox

Þótt einhverjir efist um leiklistarhæfileika Megan Fox hefur hún svo sannarlega stimplað sig inn í kvikmyndabransann með kvikmyndunum um Optimus Prime og hina Transformers-karlana.

Varð óglatt eftir ástarsenur með Fisher

Líf kvikmyndaleikarans er ekki alltaf dans á rósum. Og atriði sem birtast áhorfendum í líki lostafullra ástarsena eru oftast kvöl og pína fyrir þá sem taka þátt í þeim. Í það minnsta var það þannig fyrir hinn unga og óreynda Edward Hogg þegar hann lék í ástarsenu á móti Stjörnustríðsstjörnunni Carrie Fisher. Honum varð nefnilega óglatt eftir tökurnar.

Kreppuleikir

Breska Þjóðleikhúsið hefur pantað leikverk fyrir Lyttelton-sviðið frá David Hare um fjármálakreppuna. Það á að vera tilbúið til æfinga í haust.

Þeir fyrstu í fjögur ár

Hljómsveitin JJ Soul Band heldur sína fyrstu tónleika hérlendis í fjögur ár þegar hún stígur á svið á Græna hattinum á Akureyri í kvöld. Síðast spilaði hún opinberlega á Íslandi á Listahátíð Seltjarnarness árið 2005 og þar áður á Listasumri Akureyrar og Jazzhátíð Austurlands árið 2002.

Liam leikur í bíómynd

Oasis-stjarnan Liam Gallagher lætur til sín taka víðar en í tónlistinni um þessar mundir. Hann er með eigin fatalínu og hyggst nú reyna fyrir sér í kvikmyndaheiminum.

Madonna er tekjuhæst í heimi

Madonna hefur þénað mest allra tónlistarmanna í heiminum undanfarið ár samkvæmt viðskiptaritinu Forbes. Celine Dion og Beyoncé fylgja henni fast á eftir.

Logi og Björgvin bjóða í Lúxuspartý

Landsliðsmennirnir Logi Geirsson og Björgvin Páll Gústavsson bjóða vinum sínum í flottasta partý sem haldið hefur verið á Íslandi næstkomandi laugardag eftir því sem segir í boði frá þeim félögum.

Leikaralið Balta steinlá á Jónsmessumóti

Baltasar Kormákur smalaði saman hópi valinkunnra leikara til að taka þátt í Jónsmessumóti í knattspyrnu sem haldið er á Hofsósi ár hvert. Skemmst er að segja frá því að leikararnir steinlágu þrátt fyrir að vera með fyrrum atvinnu- og landsliðsmann í knattspyrnu innanborðs.

Úrsusinn belgdur út af banönum

„Þetta er náttúrulega mjög dularfullt. Af hverju skyldi jafn öflugur rumur og Hjalti Úrsus láta þennan dreng troða upp í sig banana?“ spyr Atli Fannar Bjarkason ritstjóri tímaritsins Mónitors.

Ekki farið að reyna á sálina

Tökum á Fangavaktinni lauk fyrir rúmri viku eins og Fréttablaðið hefur greint frá. Leikararnir fengu smá frí frá þessum vinsælu karakterum en vinna við kvikmyndina Bjarnfreðar­son hófst í gær á Litla-Hrauni. Jón Gnarr bregður sér í hlutverk afa Georgs í myndinni og Páll Winkel fékk draum sinn um lítið hlutverk uppfylltan.

Ólétt að skipuleggja danskvöld

„Ég tók mér frí frá spilamennskunni fyrir nokkrum árum. Þegar ég byrjaði svo að koma fram aftur fannst mér vanta vettvang fyrir elektróníska tónlist. Þá er ég ekki að tala um teknó heldur meira svona „ambíent“,“ segir tónlistarkonan Tanya Pollock um tilurð Weirdcore-tónlistarkvöldanna, en eitt slíkt verður haldið á skemmtistaðnum Jacobsen annað kvöld.

Tólf ára strákur fór tvívegis holu í höggi á einni viku

„Þetta er ekki heppni ef maður gerir þetta tvisvar á einni viku,“ segir Símon Leví Héðinsson, tólf ára kylfingur hjá golfklúbbi Selfoss, GOS. Hann náði því einstaka afreki að fara holu í höggi á sömu brautinni með nokkurra daga millibili.

Synirnir ætla sér stóra hluti

Skagahljómsveitin Synir syndanna hefur gefið út sína fyrstu plötu, Hvernig eru himnar? Þessi hressa poppsveit var stofnuð í fyrra af gítarleikaranum Birni Árnasyni og söngvaranum Kristófer Jónssyni, sem semja öll lög og texta á plötunni.

Mirren í Fedru

Á morgun kl. 18 hefst fyrsta beina útsendingin frá breska Þjóðleikhúsinu í Kringlubíói og yfir tvö hundruð öðrum kvikmynda­húsum víða um heim. Verkið sem áhorfendur njóta í beinni útsendingu er Fedra eftir Racine hinn franska í þýðingu Ted Hughes. Leikstjórinn er leikhússtjórinn á National, Nicholas Hytner, en með hlutverk drottningar­innar Fedru fer Helen Mirren.

Féll fyrir viðfangsefninu

„Þetta er skemmtilegasta verkefni sem ég hef tekið að mér,“ segir Sólmundur Hólm Sólmundarson, blaðamaður og eftirherma, sem nú fæst við að rita endurminningar Gylfa Ægissonar tón- og myndlistarmanns.

Sjá næstu 50 fréttir