Mirren í Fedru 24. júní 2009 02:00 leiklist Helen Mirren í hlutverki Fedru í samnefndu verki sem frumsýnt var fyrir fáum dögum í London og verður sýnt í Kringlubíói í beinni á morgun.
Á morgun kl. 18 hefst fyrsta beina útsendingin frá breska Þjóðleikhúsinu í Kringlubíói og yfir tvö hundruð öðrum kvikmyndahúsum víða um heim. Verkið sem áhorfendur njóta í beinni útsendingu er Fedra eftir Racine hinn franska í þýðingu Ted Hughes. Leikstjórinn er leikhússtjórinn á National, Nicholas Hytner, en með hlutverk drottningarinnar Fedru fer Helen Mirren. Með flutningnum hefjast beinar útsendingar frá sviðsviðburðum í háskerpu og 5.1 hljómi á nýtt stig en hér á landi hefur Samfélagið verið í fararbroddi beinna útsendinga frá Metropolitan-óperunni í New York á liðnum vetri. Fleiri óperuhús hafa lagt í það fjárfreka fyrirtæki að reyna beinar útsendingar en kostnaður við að koma þeim í kring er mikill. Hytner hefur á starfsárum sínum hjá National gert mikið til að auka aðgengi almennings að leiksýningum, bæði með verðstýringu og lágu miðaverði, vali á verkefnum og smíði nýrra verka. Hann hefur haldið áfram sýningarhaldi Þjóðleikhússins um Bretland og víðar um lönd og þannig tryggt virðingarstöðu breskra leikhefða í vestrænu samfélagi. Hann á að baki fjölbreyttan feril sem leikstjóri á söngleikjum (Miss Saigon og Carousel), óperum í fjölda virtra óperuhúsa, kvikmyndum (The Madness of King George, The Crucible og fleiri) og á leikritum af ýmsu tagi. Sviðsetning hans á Fedru var frumsýnd á Suðurbakkanum fyrir fáum dögum og þá sneri Helen Mirren aftur á National, þar sem hún var alin upp sem leikkona, eftir nær tveggja áratuga fjarveru. Mirren er löngu kunn sem einstaklega kraftmikil og flink leikkona, bæði á sviði, á stóru tjaldi og smáum skjá sjónvarpsefnis. Hytner leggur ríka á herslu á sterk átök í sviðsetningu sinni og verður gaman að sjá Mirren í hlutverki drottningarinnar sem telur mann sinn látinn og fellur fyrir syni hans. Í smáu hlutverki í verkinu er Margaret Tysack, einn af jöfrum breskra leikkvenna sem fáir hafa síðan séð hér á landi síðan hún lék í hinni rómuðu sviðsetningu Peter Hall á Rósastríðunum sem RÚV sýndi hér 1967. Leikmyndin er eftir Bob Crowley, sem á að baki tugi minnisstæðra leikmynda. Ætlunin er að halda áfram beinum útsendingum í háskerpu frá National næsta haust og vetur. Miðasala á viðburðinn á morgun er á midi.is. pbb@frettabladid.is
Mest lesið Nicole er fyrir norðan Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Lífið Fleiri fréttir Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Sjá meira