Fleiri fréttir

Kerstin Fritzl ætti að ná sér að fullu

Hin 19 ára Kerstin Fritzl ætti að ná fullri heilsu samkvæmt lækni hennar. Hún er ein af börnunum sem Josef Fritzl átti með dóttur sinni Elisabeth sem hann hélt fanginni í kjallara sínum í 24 ár. Kerstin hefur verið meðvitundarlaus frá því að veikindi hennar ljóstruðu upp um fangana í kjallaranum í apríl en hún vaknaði úr dái fyrir nokkrum dögum.

Fyrrum konungi Nepal gert að yfirgefa höll sína

Fyrrum konungur Nepal, Gyanendra, hefur nú sofið sína seinustu nótt í höllinni í Kathmandu sem hefur verið heimili konungsfjölskyldunnar í meira en 100 ár. Gyanendra missti konungstign sína í seinasta mánuði þegar konugsveldið var numið úr gildi og lýðveldi undir stjórn Maóista.

Pakistanskir hermenn drepnir á landamærunum

Að minnsta kosti 18 manns voru drepnir í átökum á landamærum Pakistan og Afghanistan. Tíu af þeim voru pakistanskir hermenn sem hafa að öllum líkindum verið drepnir í loftárás bandaríska hersins. Hinir átta virðast hafa verið Talibanar.

Buðust til að segja af sér vegna nautakjötshneykslis

Allir ráðherrarnir í ríkisstjórn Suður-Kóreu buðust til að segja af sér í gær. Þetta gerðu þeir til að draga úr reiði almennings yfir ákvörðun stjórnarinnar síðan í apríl um að halda áfram innflutningi á amerísku nautakjöti.

Stærstu netveitur Bandaríkjanna loka á barnaklám

Andrew Cuomo, saksóknari New York-ríkis, hefur gert skriflegt samkomulag við þrjár stærstu netveitur Bandaríkjanna sem felur í sér að veiturnar loki algjörlega fyrir aðgang viðskiptavina sinna að vefsíðum sem innihalda klámfengið efni er tengist börnum.

Biður kanadíska indíána afsökunar

Kanadíski forsætisráðherrann Stephen Harper mun í dag biðja indíána í Kanada opinberlega afsökunar. Sú afsökunarbeiðni er til komin vegna framkomu stjórnvalda gagnvart þeim.

Opinberar tölur frá Súdan - 120 létust

Yfirvöld í Súdan sögðu í kvöld að 120 manns hefðu látist í flugslysinu sem varð í Khartoum seinnipartinn í dag þegar breiðþota rann út af flugbrautinni og varð alelda.

Flugslys í Súdan - 100 látnir

Súdönsk farþegaflugvél, með um 200 farþega innanborðs, varð alelda skömmu eftir að hún lenti á flugvellinum í Khartoum, höfuðborg Súdan, síðdegis í dag. CNN greinir frá því að um 100 manns séu látnir. Björgunarmenn vinna að því að slökkva eldinn en talið er að hann hafi kviknað efir að farþegavélinn rann út af flugbrautinni í lendingunni.

Kenískur ráðherra lést í flugslysi

Vegmálaráðherra Kenía og aðstoðarráðherra létust þegar flugvél hrapaði til jarðar og hafnaði á húsi í hinu afskekkta Kojonga-héraði ekki langt frá Masai Mara verndarsvæðinu í Kenía.

1800 milljarðar gufa upp í Írak

Um 23 milljarðar dollara, jafnvirði um 1800 milljarða íslenskra króna, hafa gufað upp í Írak frá því að ráðist var inn í landið. Þetta fullyrða fréttamenn þáttarins Panorama á BBC sem rannsakað hafa hvert fjármunir sem verja átti í uppbyggingarstarf fóru.

Írönum hótað frekari refsiaðgerðum

Bandaríkin og Evrópusambandið hafa enn á ný hótað írönum hertum aðgerðum láti þeir ekki af auðgun úrans þegar í stað. Til stendur að herða refsiaðgerðirnar gegn landinu og var það upplýst á fundi sem George Bush hélt í Slóveníu en forsetinn bandaríski er nú í sinni síðustu heimsókn til Evrópu.

Bush telur hægt að gera loftlagssamning fyrir lok kjörtímabils

George Bush Bandaríkjaforseti sagði í dag að enn væri hægt að ná einhvers konar samningi á heimsvísu til þess að berjast gegn loftlagsbreytingum fyrir lok kjörtímabil hans sem endar byrjun 2009. Þetta sagði hann á fréttafundi í Slóveníu í dag þar sem hann heldur fund með æðstu mönnum Evrópusambandsins í Slóveníu.

Kerstin Fritzl til meðvitundar

Kerstin Fritzl, sem haldið var nauðugri í kjallara á heimili föður síns í 18 ár, er komin til meðvitundar. Frá þessu greindu spítalayfirvöld í Austurríki í dag en sögðu jafnframt að hún væri enn nokkuð veik.

Menn Mugabes myrða andstæðinga hans

Seinni umferð forsetakosninganna í Simbabve síðar í þessum mánuði getur aldrei farið fram með lýðræðislegum hætti að mati mannréttindasamtakanna Human Rights Watch. Í nýrri skýrslu samtakanna eru fjörutíu morð á stjórnarandstæðingum rakin til liðsmanna Mugabe, forseta landsins.

Vatni veitt úr jarðskjálftalóni í Kína

Kínverskum hermönnum hefur tekist að beina vatni, sem safnaðist upp í lón á skjálftasvæðunum þar í landi, niður í yfirgefinn bæ og þannig minnkað hættuna á að vatnið ógni lífi milljóna manna.

Naumlega bjargað frá drukknun í Mexíkóflóa

Öryggisvörður bjargaði tveimur háskólastúdentum þegar bátur sökk í Mexíkóflóa um helgina en drukknaði sjálfur. Hann ýtti stúdentunum út um lúgu á þilfari bátsins.

Skosk gervihönd hlýtur MacRobert-verðlaunin

Hönnuðum skoskrar gervihandar hafa verið veitt hin virtu MacRobert-verkfræðiverðlaun en höndin hefur meðal annars verið grædd á hermenn sem börðust í Írak.

Missti nær auga við árás uglu

Sænskur náttúruljósmyndari var heppinn að missa ekki sjónina þegar valugla gerði atlögu að honum. Ljósmyndarinn var staddur í Enviken við að mynda hreiður uglunnar.

Fátækum fjölgar í Bandaríkjunum

Tæpar 29 milljónir Bandaríkjamanna fengu matarmiða í mars en það er hækkun um eina og hálfa milljón frá því árinu áður. Þetta er talið vera áþreifanlegt merki um að fátækt sé að aukast í Bandaríkjunum.

Umferðartollur tekinn upp í Manchester

Manchester verður bráðlega önnur borgin á Englandi til þess að taka upp umferðartoll í miðbæ sínum. Þetta er gert til þess að vinna gegn umferðarteppum og draga úr losun gróðurhúsaefna.

Kennedy kominn heim eftir erfiða aðgerð

Edward Kennedy, höfuð hinar margrómuðu bandarísku Kennedy fjölskyldu, er kominn aftur til síns heima eftir vel heppnaða skurðaðgerð. Læknar fjarlægðu góðkynja æxli í heila Kennedy fyrir viku.

Samkynhneigður biskup gengur að eiga unnusta sinn

Gene Robinson, biskup í bandarísku biskupakirkjunni gekk í dag að eiga unnusta sinn til 19 ára, Mark Andrew. Athöfnin var borgaraleg og fór fram í Boston í Massachusettsríki. Massachusetts er eitt af fjórum ríkjum í Bandaríkjunum sem heimilar hjónaband samkynhneigðra.

Boeing reisir öryggisgirðingu

Bandarísk stjórnvöld hafa ákveðið að semja við fyrirtækið Boeing um byggingu umdeildrar öryggisgirðingar á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó.

Lokuðu kjarnorkuveri vegna raksápu

Raksápa varð til þess að sænsk yfirvöld ákváðu í síðasta mánuði að loka Oskarshamn-kjarnorkuverinu af ótta við hryðjuverk. Frá þessu greina norrænir miðlar í dag.

Fæti barns bjargað í móðurkviði

Ástralskir skurðlæknar björguðu fæti barns sem var enn í móðurkviði þegar móðirin var aðeins komin 22 vikur á leið. Aðgerðin var framkvæmd vegna þess að aukavefur úr leginu vafðist um fætur fóstrins. Lasergeisli var notaður til þess að skera vefinn utan af vinstri fætinum en hægri fóturinn var of fastur í vefunum.

Hundrað breskir hermenn fallnir í Afganistan

Eitt hundrað breskir hermenn hafa fallið í Afganistan frá því Bandaríkjamenn og bandamenn þeirra réðust inn í landið í október 2001 og hröktu talíbana frá völdum.

Tilkynnti á Netinu að hann ætlaði að láta til skarar skríða

Maður sem myrti sjö í hnífaárás í Japan í gær tilkynnti hvar og hvenær hann ætlaði að láta til skarar skríða í netskilaboðum skömmu áður en ódæðin voru framin. Japönsk yfirvöld íhuga að takmarka veiðihnífaeign þar í landi en hörð byssulöggjöf er sögð hafa fækkað byssuárásum til muna.

Hvað hefði Hillary getað gert við peningana?

Hillary Clinton eyddi svimandi háum fjárhæðum í tilraun sinni til að tryggja sér tilnefningu demókrata til forsetaframboðs í Bandaríkjunum. Dagblaðið New York Daily News hefur tekið saman kostnaðinn og gefur henni nokkur dæmi um hvað hún hefði getað gert við peningana annað en að henda þeim á glæ í kosningabaráttu sem tapaðist.

Gassprenging í námu í Úkraínu - um 35 menn fastir neðanjarðar

Gassprenging varð í gær í námu í Úkraínu sem lokaði um 35 manns inni niðri í námunni. Fimm manns slösuðust fyrir utan námuna. Tveimur mönnum hefur þegar verið bjargað en björgunarmenn reyna nú að bjarga hinum mönnunum. Tíminn sem þeir hafa til björgunar er naumur þar sem neðanjarðarvatn mun líklega flæða innan fárra stunda inn í námugöngin.

Sprengdu hluta af stíflu í Kína

Kínverskir hermenn sprengdu í gær hluta af stíflu úr grjóti og jarðvegi sem myndaðist í fljóti eftir jarðskjálftann þar í maí.

Rannsaka stórt fíkniefnamál á Jótlandi

Lögregla á Austur-Jótlandi í Danmörku er að ljúka rannsókn á stóru fíkniefnamáli. Snýst það meðal annars um 40 kílógrömm af amfetamíni sem 26 ára gamall maður var tekinn með.

Vill að FARC hætti vopnuðum átökum

Skæruliðasamtökin FARC í Kólumbíu eiga að hætta vopnuðum átökum og veita föngum sínum frelsi. Þetta segir Hugo Chavez, forseti Venesúela.

Stal 150 tonnum af brautarteinum

Um 150 tonnum af járnbrautarteinum var stolið nálægt Enköping í Svíþjóð. Sá sem var þar að verki er talinn hafa verið allt að viku dunda sér á staðnum.

Sjá næstu 50 fréttir