Erlent

Rannsaka stórt fíkniefnamál á Jótlandi

Atli Steinn Guðmundsson skrifar

Lögregla á Austur-Jótlandi í Danmörku er að ljúka rannsókn á stóru fíkniefnamáli. Snýst það meðal annars um 40 kílógrömm af amfetamíni sem 26 ára gamall maður var tekinn með.

Hann situr í gæsluvarðhaldi ásamt fleirum. Búist er við að maðurinn hljóti níu til tólf ára fangelsisdóm. Rannsókn málsins er umfangsmikil og teygir anga sína til fleiri landa en Danmerkur.

 

Berlingske tidende greindi frá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×