Tveir létust í jarðskjálftanum í Grikklandi 8. júní 2008 20:30 MYND/AP
Tveir menn létu lífið í hörðum jarðskjálfta á Pelópsskaga í Grikklandi í dag. Tuttugu manns slösuðust og enn er verið að leita að fólki í húsarústum. Eftirskjálftar hafa skotið mönnum á svæðinu skelk í bringu. Skjálftinn varð í hádeginu, að íslenskum tíma, og olli verulegum skemmdum. Sextugur karlmaður lét lífið þegar þakið á húsinu hans hrundi yfir hann og áttræð kona fékk hjartaáfall þegar jörðin skók þorpið hennar. Nú síðdegis lágu enn margir ósjálfbjarga í rústum húsa. Viðstaddir fögnuðu ákaft þegar björgunarmenn fundu stúlku í húsarústum og náðu henni út. Vitað er um tuttugu manns sem slösuðust í skjálftanum. Skjálftinn var 6,5 stig. Upptök hans eru á Pelopsskaga, 35 kílómetra suðvestur af hafnarborginni Patras. Fólk fann fyrir skjálftanum í Aþenu í 125 kílómetra fjarlægð, þar sem jörð skalf í 20 sekúndur, og jafnvel á sunnaverðri Ítalíu. Jarðskjálftar eru algengir í Grikklandi. Fyrir níu árum létust 140 manns í stórum skjálfta í Aþenu. Í febrúar á þessu ári varð álíka stór skjálfti og nú en þá urðu engin slys á fólki. Eftir skjálftann í dag hljóp fólk óttaslegið út á götu. Ekki bætti úr skák að símkerfið lá niðri og fólk gat því ekki haft samband við umheiminn. Þjóðvegurinn milli Aþenu og Patrs rofnaði þegar skriða féll á hann.
Mest lesið Vaktin: Björgunarsveitir á fullu um land allt Innlent Kastaðist marga metra eftir að ekið var á hann Innlent Þakkar Google Translate fyrir að engin börn mættu í skólann Innlent Varð fyrir „áfalli“ að sjá uppsagnarbréf Innlent Sjónvarpsfréttir Sýnar vegna óveðursins Innlent Neita að afhenda dóma lögreglumanna Innlent Stúlkan er fundin Innlent Fækka stöðugildum hjá ríkinu um eitt prósent Innlent Framíköll Jóns féllu í grýttan jarðveg: „Flissandi og dónalegur“ Innlent Leyniklefi áhafna uppi í rjáfri Atlanta-flugvéla Innlent Fleiri fréttir Fimmtán ára stúlka drap tvo fyrir Foxtrot-gengið Flugvallarstarfsmenn á Tenerife í verkföll yfir páskana Heimta enn aðstoð sem þeir segjast ekki þurfa Boðar til viðræðna við sex flokka Forsætisráðherra á fundi bandamanna Úkraínu í Helsinki Færeyingar tvístígandi fyrir aðrar kosningarnar á þremur dögum Viðsemjendum fækkar: Araghchi og Ghalibaf gefin grið... í bili Segir viðsemjendur ekki þora að gangast við viðræðum Frederiksen fær umboð til stjórnarmyndunar Íranir hafna friðartillögu Bandaríkjamanna Ætla að lýsa öldunga látna nema þeir sýni lífsmark Allt velti á Rasmussen Skrúfa fyrir eina helstu leiðina fyrir gas til Úkraínu Tveir handteknir vegna sjúkrabílabrennu Vill halda áfram sem forsætisráðherra Íranir segja engar viðræður í gangi þvert á yfirlýsingar Trumps Biðlar til Løkke að mynda með sér miðhægristjórn Tæplega þúsund drónar á einum sólarhring Haaland keypti Heimskringlu á 17 milljónir „Markmiðið er ekki að komast til tunglsins, heldur búa þar“ Útgönguspá: Ríkisstjórninni refsað en Løkke í lykilstöðu Sendir líka fallhlífarhermenn til Mið-Austurlanda Listamaður reyndi að kaupa atkvæði Gengst nú við að gaspra í Rússa Trump „svindlaði“ í kosningum í Flórída Ísraelar hyggjast hernema suðurhluta Líbanon Á rúntinum með andefni Danir ganga að kjörborðinu í afar spennandi kosningum Gervigreindarmyndskeiðum af barnaníði fjölgar gífurlega Meloni beið „bitran“ ósigur í þjóðaratkvæðagreiðslu Sjá meira