Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Áfram verði unnið að sáttum Forseti Srí Lanka sagði í dag að þrátt fyrir morðið á utanríkisráðherra landsins yrði ekki horfið frá fyrirætlunum um að stjórnin deildi völdum með Tamílum. Forsetinn kenndi Frelsisher Tamíl-Tígra um morðið á ráðherranum en sagðist myndu auka áhersluna á að minnihlutahópar í landinu fengju aðild að stjórninni. 15.8.2005 00:01
Samið um frið í Aceh-héraði Fulltrúar indónesískra stjórnvalda og uppreisnarmanna í Aceh-héraði undirrita í Finnlandi í dag samkomulag sem binda á enda á þrjátíu ára átök í héraðinu sem kostað hafa að minnsta kosti fimmtán þúsund manns lífið. Þörfin fyrir neyðaraðstoð í kjölfar flóðbylgjunnar í Suðaustur-Asíu á annan í jólum í fyrra leiddi til þess að deiluaðilar settust að samningaborðinu. 15.8.2005 00:01
Baðst afsökunar á framferði Japana Forsætisráðherra Japans baðst afsökunar á framferði Japana í garð annarra Asíuríkja í seinni heimstyrjöldinni í athöfn sem haldin var í tilefni þess að í dag eru 60 ár liðin frá því Japanar játuðu sig sigraða í stríðinu. Forsætisráðherrann sagði Japana aldrei mega gleyma þessum hörmungartímum og sagðist leiður yfir þeirri staðreynd að Japanar hefðu troðið á nágrönnum sínum. 15.8.2005 00:01
Frusu til bana fyrir flugslys Allir sem voru um borð í kýpversku farþegaþotunni sem fórst nærri Aþenu í gær virðast hafa frosið til bana og voru látnir þegar vélin skall á fjallinu. Þetta hefur <em>Reuters-fréttastofan</em> eftir heimildarmönnum úr gríska varnarmálaráðuneytinu. 15.8.2005 00:01
Fórnarlömb sögð hafa frosið í hel Margir farþeganna sem voru um borð í kýpversku farþegaþotunni sem fórst í grennd við Aþenu í gær höfðu frosið í hel, að sögn gríska varnarmálaráðuneytisins. 15.8.2005 00:01
Fuglaflensa stefnir til V-Evrópu Fuglaflensan í Asíu virðist nú stefna til Vestur-Evrópu. Rússar gripu í dag til umfangsmikilla aðgerða í Síberíu til þess að hefta útbreiðslu hennar. 15.8.2005 00:01
2700 látnir í námuslysum í Kína 2700 kolanámumenn hafa farist í námuslysum í Kína það sem af er þessu ári. Margar námurnar eru ólöglegar en lítið er gert til þess að hafa eftirlit með þeim enda kolaþörf landsins gríðarleg. Kol sjá fyrir tveim þriðju af orkuþörf landsins og því er sjaldgæft að námum sé lokað, jafnvel þótt þær séu stórhættulegar. 15.8.2005 00:01
Fundu 59 kg af heróíni í vörubíl Tyrkneska lögreglan lagði nýlega hald á 59 kíló af heróíni sem ætlað var á Evrópumarkað, en efnið fannst í vörubíl í bænum Gaziantep nærri landmærum Sýrlands. Lögreglan mun hafa fengið ábendingu um efnið og fylgdist með flutningabílnum í um mánuð áður en hún lét til skarar skríða. 15.8.2005 00:01
Ísraelar yfirgefi fleiri byggðir Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, vill að Ísraelar yfirgefi fleiri landnemabyggðir, en brottflutningur frá öllum byggðum á Gasasvæðinu hófst í dag. Landnemar hafa tvo daga til að hafa sig á brott, ella grípur Ísraelsher til aðgerða og fjarlægir fólk með valdi. Í samtali við Wafa-fréttastofuna í Palestínu í dag sagði Abbas að brottflutningurinn væri mikilvægt og sögulegt skref en meira þyrfti til. 15.8.2005 00:01
Á víkingaskipi úr íspinnaprikum Það eru fleiri en Íslendingar sem láta sér detta í hug að sigla þvert yfir Atlantshafið á víkingaskipum. Bandaríkjamaðurinn Robert McDonald fetar þó í fótspor Leifs heppna á heldur óvenjulegan hátt því hann hefur búið til 15 metra langt víkingaskip eingöngu úr íspinnaprikum. Eins og gefur að skilja þarf fjölmörg prik í svo stórt farartæki, alls 15 milljónir, en það tók McDonald tvö ár að líma þau saman. 15.8.2005 00:01
Rændu frönskum sjónvarpsmanni Palestínskir byssumenn rændu hljóðmanni á vegum frönsku sjónvarpsstöðvarinnar France 3 í Gasaborg í dag. Mohamed Ouathi var á leið heim á hótelið sitt í dag ásamt samstarfsmönnum sínum þegar þrír vopnaðir menn komu akandi á bíl, rifu hann upp í og óku á brott. 15.8.2005 00:01
Afganar leita að nýjum þjóðsöng Yfirvöld í Afganistan leita nú að nýjum þjóðsöng fyrir landið. Ástæðan er sú að sá gamli þykir úr sér genginn, en hann má rekja til sigurs svokallaðra mújahedín-stríðsmanna á Rauða hernum snemma á tíunda áratug síðustu aldar og er í raun nokkurs konar hersöngur. 15.8.2005 00:01
Átök á fyrsta degi brottflutnings Ísraelskir landnemar á Gaza tókust á við hermenn í gær en þá hófst brottflutningur þeirra formlega. Mahmoud Abbas hefur boðað til þingkosninga í Palestínu 21. janúar. 15.8.2005 00:01
Svörtu kassarnir til Frakklands Talið er að bilun í jafnþrýstibúnaði hafi orðið til þess að flugvél kýpverska Helios-flugfélagsins fórst á sunnudaginn. 15.8.2005 00:01
Öfuguggar á kreiki Gestir Huk-nektarstrandarinnar við Ósló verða í síauknum mæli fyrir áreitni og ónæði ljósmyndara og dóna af ýmsu tagi. Sumir fletta sig klæðum frammi fyrir strípalingunum en það þykir þeim heldur miður. 15.8.2005 00:01
Stoltenberg vinsæll Jens Stoltenberg, leiðtogi norska Verkamannaflokksins, nýtur mikilla vinsælda um þessar mundir þegar nokkrar vikur eru til þingkosninga í Noregi. 15.8.2005 00:01
Tveir dóu í bílsprengjuárás Öflug bílsprengja var sprengd fyrir utan veitingastað í Grosní, höfuðborg Tsjetsjeníu, í gær og létust tveir í tilræðinu. 15.8.2005 00:01
Vilja aðstoð að utan Lík Lakshman Kadirgamar, utanríkisráðherra Srí Lanka sem myrtur var fyrir helgi, var brennt í gær og var þjóðarsorg lýst yfir í landinu við sama tækifæri. Afar ströng öryggisgæsla var við athöfnina. 15.8.2005 00:01
Bush dæmdur fyrir ýmis myrkraverk Bandarísk stjórnvöld hlutu þungan dóm í miklum réttarhöldum sem fram fóru í Venesúela um helgina. 15.8.2005 00:01
Friðarsamkomulag undirritað Indónesíska ríkisstjórnin og uppreisnarmenn í Aceh-héraði á Súmötru skrifuðu í gær undir friðarsamkomulag. Þar með er vonast til þess að þriggja áratuga löngum átökum, sem kostað hafa 15.000 mannslíf, sé lokið. 15.8.2005 00:01
Grétu vegna brottflutnings Ísraelskir lögregluþjónar og landnemar grétu saman þegar brottflutningur hófst frá stærstu landnemabyggð gyðinga á Gaza-svæðinu í dag. 15.8.2005 00:01
Mikil sorg á Kýpur eftir flugslys Mikil sorg ríkir á Kýpur og í Grikklandi vegna flugslyssins sem varð í grennd við Aþenu í gær. Enn berast misvísandi fréttir af hvað olli því að farþegaþotan með 121 mann innanborðs flaug beint á fjall. Grískur embættismaður hefur sagt að mörg líkin hafi verið gegnumfrosin sem bendi til þess að jafnþrýstibúnaður vélarinnar hafi gefið sig skyndilega í mikilli hæð þar sem frost er um og yfir 40 gráður. 15.8.2005 00:01
Marglyttur hrjá ferðamenn á Spáni Marglyttur í milljónatali hrjá nú ferðamenn á Miðjarðarhafsströnd Spánar. Sums staðar er varla þorandi að fara í sjóinn. 15.8.2005 00:01
60 ár frá uppgjöf Japana Forsætisráðherra Japans baðst í dag afsökunar á framferði Japana í síðari heimsstyrjöldinni. Sextíu ár eru frá því Japanar gáfust upp í stríðinu. 15.8.2005 00:01
Berjast gegn nauðungarhjónaböndum Norðmenn ætla að láta Útlendingastofnun sína yfirheyra pakistönsk pör sem vilja giftast þar í landi til að tryggja að það séu ekki nauðungarhjónabönd. 15.8.2005 00:01
Flugslys í Grikklandi Talið er að allir hafi farist þegar flugvél með hundrað og sextán manns innanborðs flaug á fjall um þrjátíu kílómetra norðan við Aþenu, höfuðborg Grikklands í morgun. 14.8.2005 00:01
Brottfluttir flóttamenn snúa aftur Írakskir flóttamenn með dvalarleyfi í Danmörku, hafa eins árs umhugsunarfrest eftir að þeir fara heim. Ef þeir vilja snúa aftur til Danmerkur innan árs, er þeim það heimilt. Í danska dagblaðinu Politiken segir í dag að frá stríðslokum vorið 2003 hafa um tvö hundruð og fimmtíu Írakar flutt til baka til Írak. 14.8.2005 00:01
Mannrán í Írak Ekkert lát virðist á mannránum í Írak. Framkvæmdastjóra írakska Seðlabankans, Hasib Juwaid, var rænt í dag. Að sögn vitna réðist hópur vopnaðra manna að honum fyrir utan heimili hans í austurhluta Bagdad, þröngvaði honum inn í bíl og ók á brott á ofsahraða. 14.8.2005 00:01
Hryðjuverk yfirvofandi í september Hryðjuverkamenn á vegum al-Qaeda leggja á ráðin um árásir í Bandaríkjunum og í Lundúnum. Þeir ætla að ræna bensínflutningabílum og öðrum farartækjum sem flytja eldfim efni og aka þeim á bensínstöðvar í sjálfsmorðsárásum. 14.8.2005 00:01
Mótmæltu andstöðu við kjarnorku Um það bil þrjú hundruð íranskir námsmenn á harðlínukantinum fleygðu bæði tómötum og grjóti í breska sendiráðið í Teheran fyrr í dag. Einnig hrópuðu þeir slagorð gegn bresku ríkistjórninni. 14.8.2005 00:01
Enn talsverður fjöldi strandaglópa Enn er fjöldi farþega British Airways strandaður víðvegar um heiminn og segja talsmenn félagsins hætt við því að ekki verði hægt að koma öllum á áfangastað fyrr en næstkomandi fimmtudag, viku eftir skæruverkfall starfsfólks á Heathrow. Nokkuð er um að strandaglóparnir séu ósáttir við að njóta ekki forgangs fram yfir aðra farþega flugfélagsins. 14.8.2005 00:01
Frestur landnema rennur út í kvöld Frestur landnema á Gaza-ströndinni til að yfirgefa heimili sín rennur út á miðnætti. Þeir sem þráast við verða bornir út með valdi þegar líður á vikuna. Því fer fjarri að gyðingarnir níu þúsund sem búa á Gaza séu allir sáttir við að þurfa að fara en fjörutíu ár eru síðan Ísraelar hertóku Gazaströndina. 14.8.2005 00:01
Ítalskur kafbátur fór landleiðina Ítalskur kafbátur sem lagði upp í sitt síðasta ferðalag frá Sikiley fyrir fjórum árum, náði loks áfangastað í Mílanó í dag. Enrico Toti var smíðaður skömmu eftir seinna stríð og átti að verða aðalskrautfjöðrin í Leonardo Da Vinci tækni- og vísindasafninu í Mílanó. 14.8.2005 00:01
Andfélgsleg hegðun nudduð á brott Yfirvöld í Gorton í Bretlandi bjóða uppá nýstárlega aðferð við að koma reglu og skikki á vandræðaunglinga í borginni. Unglingarnir sem búa í alræmdu fátækrahverfi, hafa flestir sýnt andfélagslega hegðun og komist í kast við lögin með einhverjum hætti.Nú hefur stór hópur þeirra verið skyldaður til þess að læra handa og handleggjanudd. 14.8.2005 00:01
Orsök flugslyssins enn ókunn Talið er fullvíst að enginn hafi lifað af þegar flugvél með hundrað tuttugu og einn mann innanborðs flaug beint á fjall skammt norðan við Aþenu, höfuðborg Grikklands í morgun. Tildrög slyssins eru enn ókunn. 14.8.2005 00:01
Teikningar varpa ljósi á hörmungar Teikningar barna í Darfur-héraði staðfesta að súdanska ríkisstjórnin hafi staðið á bak við herferðina þar undanfarin misseri, að mati tveggja starfsmanna mannréttindasamtakanna Human Rights Watch sem hafa unnið með börnum í héraðinu. 14.8.2005 00:01
Samansafn af afturhaldssinnum Forseti Írans, Mahmoud Ahmadinejad, hefur tilnefnt 21 ráðherra í ríkisstjórn sína. Eru ráðherrarnir flestir taldir örgustu afturhaldssinnar og andsnúnir þeim umbótum sem fyrirrennarar þeirra á síðasta kjörtímabili hafa staðið fyrir. 14.8.2005 00:01
Óvissa um nýja stjórnarskrá Enn er ágreiningur meðal trúarhópa í Írak um nokkur atriði í uppkasti að stjórnarskrá landsins. Lokafrestur á að leggja stjórnarskrána fyrir þingið er í dag og skiptar skoðanir eru um hvort það takist. Súnníar neita alfarið að samþykkja að Írak verði sambandsríki. 14.8.2005 00:01
Breytingar í utanríkismálum Kurmanbek Bakijev, forseti Kirgisistan, hefur verið vígður í embætti. Í innsetningarræðu sinni sagði forsetinn að Kirgisistan myndi halda áfram að marka sér sjálfstæða utanríkisstefnu. Í landinu eru nú bæði bandarískar og rússneskar hersveitir og hefur það valdið nokkurri togstreitu vegna þess að Kirgisistan er sérstaklega vel staðsett frá hernaðarlegu sjónarmiði. 14.8.2005 00:01
Áætlun á réttan kjöl Flugáætlun breska flugfélagsins British Airways er loks að komast á réttan kjöl eftir að starfsmenn þess fóru í verkfall fyrir helgi. Þó eru enn farþegar sem bíða eftir að komast á áfangastaði sína og hafa sumir nú beðið í fjóra daga eftir flugi. 14.8.2005 00:01
Reglur nái til vefsíða Búist er við að nýjar reglur um sæðisgjöf verði settar fram í Bretlandi á allra næstu dögum. Eins og staðan er núna þurfa heimasíður sem bjóða upp á sæði til kaups ekki að uppfylla sömu skilyrði og heilsugæslustöðvar þar sem sæðing fer fram. 14.8.2005 00:01
Tólf Tamílar handteknir Tólf Tamílar hafa verið handteknir í tengslum við morðið á utanríkisráðherra Srí Lanka fyrir helgi. Um er að ræða ellefu karla og eina konu sem er verið að yfirheyra eins og stendur. Telja yfirvöld að nú sé fullvíst að klofningshópur innan uppreisnarhópsins Tamíl-Tígra standi að baki morðinu. 14.8.2005 00:01
Enginn lifði af flugslys Hundrað tuttugu og einn lét lífið þegar flugvél kýpverska flugfélagsins Helios brotlenti í nágrenni við Aþenu í gær. Sjónarvottar segja að flugvélin hafi flogið inn í hæðótt landslagið norðan við borgina og að kviknað hafi í henni um leið og hún lenti. Brak dreifðist yfir stórt svæði og í kjölfarið braust út mikill eldur sem læsti sig í skógi vaxið umhverfið. 14.8.2005 00:01
Búseta Ísraela á Gaza bönnuð Ísraelar innsigluðu Gaza á miðnætti í nótt og mörkuðu þannig formlegt upphaf brottflutnings landnema frá svæðinu. Búseta Ísraela þar er nú ólögleg. 14.8.2005 00:01
Lifði af 400 stungur Kona á níræðisaldri er á batavegi eftir að hún hlaut fjögur hundruð býflugnastungur skömmu fyrir helgi. Býflugurnar komu frá vegg geymsluhúsnæðis við heimili konunnar, að því er fram kemur á fréttavef CNN. 14.8.2005 00:01