Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vildi skoða risastyrki FL Group og Landsbanka til Sjálfstæðisflokksins Ríkissaksóknari ákvað í vor að taka ekki til formlegrar athugunar þrjátíu milljóna króna styrk FL Group til Sjálfstæðisflokksins fyrir kosningarnar 2007, né rannsaka aðrar fyrirgreiðslur til háttsettra sjálfstæðismanna í ljósi fyrirhugaðrar sölu REI til Geysis Green, sem var að hluta í eigu FL Group. Samkvæmt heimildum blaðsins þótti efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra ástæða til að vekja athygli Ríkissaksóknara á þessum hugsanlegu lögbrotum. Einnig vildi deildin, í ljósi fjölmiðlaumfjöllunar, skoða hvernig styrkveitingar til Sjálfstæðisflokksins kynnu að hafa tengst Landsvirkjun Power, félagi Landsvirkjunar og Landsbanka. Bankinn styrkti flokkinn um alls þrjátíu milljónir króna. 2.9.2009 06:00
Rannsóknarnefnd skoðar bankana Styrkir til stjórnmálaflokka eru meðal þess sem rannsóknarnefnd Alþingis um bankahrunið rannsakar, staðfesti Tryggvi Gunnarsson nefndarmaður í samtali við Fréttablaðið 11. apríl. 2.9.2009 05:45
Stunduðu undirboð á sementi Framkvæmdastjóri Sementsverksmiðjunnar á Akranesi hefur sent Viðskiptaráði, samtökum í atvinnulífinu og alþingismönnum bréf þar sem hann sakar keppinaut sinn, Aalborg Portland á Íslandi, um að hafa stundað undirboð á byggingamarkaði allt frá árinu 2000. 2.9.2009 05:00
Skógar munu þekja allt láglendi Íslands Allt láglendi Íslands mun verða undirlagt af sjálfsprottnum skógi vegna minni sauðfjárbeitar og hlýnandi loftslags. Þegar kominn fimm þúsund hektara birkiskógur á Skeiðarársandi, segir framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Íslands. 2.9.2009 04:45
Skert þjónusta í hálfan mánuð Bæjarráð Vesturbyggðar lýsir óánægju með að ferðir Breiðafjarðarferjunnar Baldurs falli niður dagana 6. til 22. september. Sæferðir, sem gera út Baldur, hafa leigt skipið út til að leysa af Vestmannaeyjaferjuna Herjólf sem fer í slipp umrædda daga. Þótt Baldur verði ekki í ferðum ætla Sæferðir að þjónusta 2.9.2009 04:45
Áttu að fylgjast með skipum Bretland Vorið 1944 töldu Þjóðverjar miklar líkur á því að Bandamenn myndu ráðast inn í Frakkland frá Íslandi, í því skyni að frelsa Frakkland undan hernámi nasista. Þetta kemur fram í skjölum, sem þjóðskjalasafnið í Bretlandi birti í gær. Í skjölunum segir frá ferð þriggja manna, Þjóðverjans Ernsts Fresenius og Íslendinganna Hjalta Björnssonar og Sigurðar Júlíussonar, sem nasistar sendu til Íslands til að kanna skipaferðir og herflutninga. 2.9.2009 04:30
Bekkir of fáir fyrir göngufólk Bekkir meðfram göngustígnum sem liggur með suðurströnd Reykjavíkur og áfram inn í Fossvogsdal eru of fáir, að sögn hverfisráðs Vesturbæjar, sem vill að bekkjunum verði fjölgað til muna. 2.9.2009 04:30
Fjöruborð við Vík langt innan marka „Fari saman stórstreymi, háflóð, hvassviðri og þung alda eru mannvirki fyrir hundruð milljóna í stórhættu,“ segir sveitarstjórn Mýrdalshrepps og kveðst hafa sýnt einstakt langlundargeð í að bíða eftir endurbótum á sjóvarnargarði við Vík. Að sögn Mýrdælinga hefur sífellt brotið af landinu og fjöruborðið nálgast nú Vík. Opinberir aðilar gerðu áætlun um sjóvörn við Vík árið 1994. 2.9.2009 04:15
Öllum sagt upp í Alþjóðahúsi Öllum starfsmönnum Alþjóðahúss, fjórtán talsins, hefur verið sagt upp störfum frá og með áramótum. Ástæðan er tafir á afgreiðslu þjónustusamnings Reykjavíkurborgar við Alþjóðahúsið fyrir næsta ár. Fulltrúar Alþjóðahúss og Reykjavíkurborgar benda hvor á annan þegar spurt er um ástæður tafanna. 2.9.2009 04:15
Notuðu eldvarnaverkefni sem yfirskin en töluðu af sér í síma Jónas Ingi Ragnarsson notaði eldvarnaverkefni sitt og Tinds Jónssonar sem yfirskin til að kaupa hráefni í meinta amfetamínframleiðslu. Hann segist ekki hafa ætlað að framleiða fíkniefni heldur selja milliefnið. 2.9.2009 04:00
Lést eftir fall af fjórðu hæð Karlmaður á fimmtugsaldri lést af áverkum sem hann hlaut eftir fall af fjórðu hæð fjölbýlishúss í Árbæjarhverfi á sjötta tímanum í dag. Slökkvilið og lögregla var með talsverðan viðbúnað þegar maðurinn var fluttur á slysadeild. Hann var úrskurðaður látinn við komuna þangað, að sögn vakthafandi læknis. 1.9.2009 22:19
Mál Alþjóðahússins tekið fyrir í borgarráði á fimmtudag „Borgin verður að ábyrgjast þjónustu við innflytjendur,“ segir Björk Vilhelmsdóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar. Hún óskaði eftir því á fundi borgarstjórnar sem lauk á ellefta tímanum í kvöld að mál Alþjóðahússins verði tekið fyrir í borgarráði næstkomandi fimmtudag. Hún segir að Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri, hafi orðið verið þeirri beiðni. 1.9.2009 22:47
Dagur: Gengur ekki að selja lykilþætti á brunaútsölu „Það gengur ekki að hlaupa til og selja þessa lykilþætti á brunaútsölu,“ segir Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórn, um samkomulag Orkuveitu Reykjavíkur við Magma Energy um sölu á hlut Orkuveitunnar í HS orku. Hann gagnrýnir pukur í kringum samkomulagið. Guðlaugur Sverrisson, stjórnarmaður Orkuveitunnar, segir að ekki sé verið að fela neitt fyrir borgarbúum. 1.9.2009 21:09
Alþjóðahúsið hefur ekki uppfyllt samkomulag við borgina „Það er mjög einkennilegt að þau skuli vera að ýja að það sé verið að segja upp 14 starfsmönnum af því að það vantar fimm milljónir af 20. Mér sýnist ekki vera mikill rekstrargrundvöllur fyrir Alþjóðahúsinu ef að það þarf að segja upp öllu starfsfólkinu þegar vantar fimm milljónir," segir Marta Guðjónsdóttir, varaborgarfulltrúi og formaður mannréttindaráðs Reykjavíkurborgar, í samtali við fréttastofu. Hún segir Alþjóðahúsið ekki hafa uppfyllt samkomulag við borgina. 1.9.2009 20:19
Borgarbúar komi að mótun fjárhagsáætlunar Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti á fundi sínum í dag tillögu, borgarfulltrúa Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks, um að útfærðar verði leiðir til þátttöku borgarbúa við mótun fjárhagsáætlunar árið 2010. 1.9.2009 21:44
Meirihluti landsmanna andvígur ríkisábyrgðinni Meirihluti landsmanna er á móti ríkisábyrgð vegna Icesave sem Alþingi samþykkti síðastliðinn föstudag. 63% aðspurðra eru andvígir ríkisábyrgðinni en 24% prósent eru hlynnt. Þetta kemur fram í nýjum Þjóðarpúlsi Gallup sem greint var frá í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins í kvöld. 1.9.2009 19:35
Lífsýnabanki Íslenskrar erfðagreiningar ekki til sölu Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segir að fyrirtækið eigi ekki í viðræðum við aðila, innlenda eða erlenda, um sölu eða rekstur á lífsýnabanka fyrirtækisins. „Aldrei hefur staðið til eða verið rætt um að bankinn verði seldur öðrum,“ segir Kári. 1.9.2009 19:12
Sjálfstæðisflokkurinn áfram stærstur Sjálfstæðisflokkurinn mælist stærsti stjórnmálaflokkur landsins samkvæmt samkvæmt Þjóðarpúlsi Gallups. Fylgi stjórnarflokkanna eykst meðal kjósenda en 49% styðja ríkisstjórnina sem er örlítið fleiri en þegar síðast var spurt. Þetta kom fram í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins. 1.9.2009 19:08
Ríkisstjórnin bjóði erlenda fjárfesta velkomna Landsvirkjun freistar þess nú að finna leiðir til að hefja framkvæmdir við Búðarhálsvirkjun. Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, segir það skipta gríðarlegu máli að ríkisstjórnin sendi þau skilaboð að erlendir fjárfestar séu velkomnir. 1.9.2009 19:00
Tíundi hver kúabóndi í verulegum vanda Um 10% kúabænda eru í verulegum vanda staddir vegna mikillar skuldsetningar. Aukin harka er hjá fjármögnunarfyrirtækjum að sækja tæki og vélar vegna gríðarlegra skulda. 1.9.2009 18:43
Skattheimtan hamlar olíuleit á Drekanum Skattarnir sem íslensk stjórnvöld ætla að heimta af olíuvinnslu á Drekasvæðinu virðast ætla að verða þröskuldur í vegi þess að olíuleit hefjist þar fyrir alvöru. Verkefnisstjóri olíuleitar hjá Orkustofnun segir að taka verði mjög alvarlega athugasemdir sem umsækjendur gerðu á fundi í gær. 1.9.2009 18:39
Miklar skattahækkanir nauðsynlegar Fjármálaráðherra segir óumflýjanlegt að grípa til mikilla skattahækkana til að brúa fjárlagagatið á næsta ári. Fjárlagagerðin er komin á fullt skrið, en ráðherra segir hana aldrei áður hafa verið jafn erfiða. 1.9.2009 18:34
Þörf á frekari úrræðum fyrir fólk í greiðsluvanda Mikill meirihluti þeirra sem leitað hafa sér aðstoðar vegna greiðsluvanda telja að þau úrræði sem eru í boði dugi ekki til. Viðskiptaráðherra segir þetta rétt og þörf sé á frekari úrræðum. 1.9.2009 18:31
Öllu starfsfólki Alþjóðahússins sagt upp Framtíð Alþjóðahúss er í uppnámi eftir að öllum starfsmönnum var sagt upp í gær. Fjarhagsstaðan er það slæm ekki náðist að greiða starfsmönnum laun nú um mánaðarmótin. Frá þessu var greint í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins. 1.9.2009 18:07
Féll niður af fjórðu hæð Karlmaður féll niður til jarðar af fjórðu hæð fjölbýlishúss í Árbæjarhverfi á sjötta tímanum í dag. Hann var fluttur með hraði á slysadeild og veitti lögregla sjúkrabifreið forgang. Tildrög slyssins eru óljós, að sögn lögreglu. 1.9.2009 17:41
Fimm bíla árekstur á Miklubraut Fimm bíla árekstur varð á Miklubraut, til móts við Stakkahlíð, rétt fyrir klukkan fimm í dag. Búast má við einhverjum töfum vegna þessa. Ekki lítur út fyrir að slys hafi orðið á fólki en lögregla er mætt á staðinn. 1.9.2009 17:06
Pólsku þjófarnir áfram í gæsluvarðhald Hæstiréttur úrskurðaði í dag þrjá Pólverja í gæsluvarðhald til 4.september en þeir höfðu allir kært úrskurð héraðsdóms. Pólverjarnir eru taldir tilheyra skipulögðu gengi innbrotsþjófa sem grunað er um að hafa brotist inn á hundruð heimila síðustu vikur og mánuði. Lögreglan rannskar hvort þýfinu hafi verið smyglað úr landi. 1.9.2009 16:48
Magma-samningur gerður opinber Samningur Magma Energy við Orkuveitu Reykjavíkur var gerður opinber nú síðdegis. Fulltrúar Samfylkingar og VG í stjórn Orkuveitunnar óskuðu eftir því í gær að samningarnir yrðu gerðir opinber en sú tillaga var felld, að fram kemur í tilkynningu frá Degi B. Eggertssyni. Í samningnum er ákvæði um trúnað við Magma. 1.9.2009 16:43
Erlendir Vítisenglar bíða úrskurðar dómsmálaráðuneytis Vítisenglar frá þremur löndum hafa kært Útlendingastofnun til dómsmálaráðuneytis fyrir að hindra för þeirra til Íslands í mars síðastliðnum. Alls bárust á annan tug kæra frá vítisenglum í Danmörku, Finnlandi og Noregi. Samkvæmt Oddgeiri Einarssyni, lögfræðingi, þá var málið kært strax í mars. 1.9.2009 16:36
Fimmti hver hefur þurft á sérstökum úrræðum að halda Fimmti hver einstaklingur hefur þurft á sérstökum úrræðum að halda til að geta staðið skil á greiðslum vegna lána. Þetta kemur fram í skoðanakönnun sem Capacent Gallup gerði fyrir ASÍ í júní og sagt er frá á heimasíðu sambandsins. 1.9.2009 16:03
Gataði fermingarstúlku á almenningssalerni Í tilkynningu frá lögreglunni er varað við netnotkun barna og rifjað upp mál sem kom inn á borð lögreglunnar í sumar. Þar komst stúlka á fermingaraldri í samband við mann í gegnum Netið og mæltu þau sér mót í verslunarmiðstöð á höfuðborgarsvæðinu. Þau fóru síðan á almenningssalerni á staðnum en þar setti maðurinn lokk eða pinna í nafla stúlkunnar að hennar ósk. Nokkru síðar var kominn gröftur í naflann og þurfti stúlkan að leita til læknis og var fyrrnefndur hlutur fjarlægður úr naflanum. 1.9.2009 15:34
Fóstureyðingum fjölgar Á árinu 2008 voru skráðar 955 fóstureyðingar hjá konum með lögheimili á Íslandi, sem er nokkuð meira en undanfarin ár (905 árið 2007). Þetta kemur fram á vef Landlæknis um fóstureyðingar á Íslandi. 1.9.2009 15:30
Einar Karl ráðinn upplýsingafulltrúi forsætisráðuneytisins Einar Karl Haraldsson tók í dag til starfa sem upplýsingafulltrúi forsætisráðuneytisins. Í sumar hefur hann starfað sem sérfræðingur í ráðuneytinu og leyst af aðstoðarmann ráðherra. 1.9.2009 15:00
Frambjóðendum Heimdallar úthýst af Facebook „Mér var líka hent út,“ segir Davíð Þorláksson, frambjóðandi til formanns Heimdallar, en andstæðingur hans og mótframbjóðandi, Árni Helgason, ritaði pistil á vefsvæði sitt þar sem hann tilkynnti að aðgangur hans á Facebook hefði verið afturkallaður. Í pistlinum grunaði hann að óprúttnir aðilar hefðu kvartað undan honum á þar til gerðum takka á Facebook síðu hans. 1.9.2009 14:26
Úthluta skólapökkum fyrir 500 börn Fjölskylduhjálp Íslands mun á morgun úthluta skólapökkum fyrir 500 börn að sögn Ásgerðar Jónu Flosadóttur formanns. Hún segir þetta vera afrakstur af söfnun nokkurra kvenna sem tóku sig til og stofnuðu svokallaða skólastoð. Pakkarnir komu í hús á sunnudagskvöldið en konurnar sjálfar munu úthluta pökkunum á morgun. 1.9.2009 14:12
Sjö af átta umsækjendum konur Átta umsækjendur eru um embætti prests í Hafnarjarðarpretstakalli, Kjalarnesprófastsdæmi. Frestur til að sækja um embættið rann út 27. ágúst en embættið veitist frá 1.október. Sjö af þessum átta umsækjendum eru konur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Biskupsstofu. 1.9.2009 13:55
Forsetinn ekki enn fengið Icesavelögin Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, hefur ekki enn fengið hin umdeildu Iög um ríkisábyrgð vegna Icesave-reikninganna inn á borð til sín en lögin voru samþykkt á Alþingi á föstudag. Forsetinn þarf að samþykkja lögin með undirskrift sinni líkt og öll önnur lög sem samþykkt eru á Alþingi. Samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu forsetans hafa lögin ekki borist forsetanum og ekki er vitað hvenær svo verði. 1.9.2009 13:39
Tindur Jónsson: „Ég sé eftir þessu núna“ Aðalmeðferð fór fram vegna meintrar amfetamínverksmiðju sem fannst í Hafnarfirði í október á síðasta ári. Tindur Jónsson hefur verið ákærður auk Jónasar Inga Ragnarssonar fyrir að hafa ætlað að framleiða amfetamín og selja það. Jónas Ingi er einnig ákærður fyrir vörslu á fíkniefnum. 1.9.2009 12:22
Enn ekkert heyrst í Bretum og Hollendingum Engin formleg viðbrögð hafa enn borist frá Bretum og Hollendingum við ákvörðun Alþingis um að samþykkja ríkisábyrgð á Icesave samningunum að viðbættum fyrirvörum. Þetta kom fram í máli Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra eftir ríkisstjórnarfund í morgun. Hann sagðist þó búast við að heyra frá stjórnvöldum þessara landa undir lok vikunnar. 1.9.2009 12:18
Villa í tölvukerfi fæðingaorlofssjóðs Símalínur fæðingarorlofssjóðsins hafa verið rauðglóandi í dag og í gær. Hátt í helmingur þeirra sem fá greiðslur úr fæðingarorlofssjóði fengu mun minna en þeir gerðu ráð fyrir um mánaðamótin. Ekki var gert ráð fyrir persónuafslætti hjá fólkinu, vegna villu í tölvukerfi. Til stendur að leiðrétta þetta síðdegis. 1.9.2009 12:11
Vilja samning við Magma upp á borðið Dagur B. Eggertsson borgarfulltrúi Samfylkingarinnar segir að minnihlutinn í borgarstjórn muni á fundi síðar í dag krefjast þess að samningur Orkuveitunnar um sölu á hlut veitunnar í HS Orku til Magma Energy verði gerður opinber nú þegar. 1.9.2009 12:08
Fjórtán staðnir að hraðakstri í Grænutungu Lögreglan stóð fjórtán ökumenn að hraðakstri í Grænutungu í Kópavogi í gær en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. 1.9.2009 11:48
Bandaríska sendiráðið leigir glæsivillu af Kaupþingsprinsi Bandaríska sendiráðið hefur tekið á leigu rúmlega 200 fermetra glæsivillu í Skerjafirðinum, nánar tiltekið í Skildinganesi 25. Eigendur villunnar eru Helga María Garðarsdóttir og Birna Geirsdóttir, eiginkona og tengdamóðir Kaupþingsprinsins Ingvars Vilhjálmssonar. 1.9.2009 11:45
Kristján hættur í forsætisráðuneytinu Kristján Kristjánsson, sem hefur starfað sem upplýsingafulltrúi forsætisráðuneytisins, er hættur störfum hjá ráðuneytinu. 1.9.2009 11:23
Útivistartíminn breytist í dag Útivistartími barna og unglinga tekur breytingum í dag. Tólf ára börn og yngri mega frá þeim tíma vera úti til klukkan 20.00. 1.9.2009 11:17