Innlent

Úthluta skólapökkum fyrir 500 börn

Fjölskylduhjálp Íslands mun á morgun úthluta skólapökkum fyrir 500 börn að sögn Ásgerðar Jónu Flosadóttur formanns. Hún segir þetta vera afrakstur af söfnun nokkurra kvenna sem tóku sig til og stofnuðu svokallaða skólastoð. Pakkarnir komu í hús á sunnudagskvöldið en konurnar sjálfar munu úthluta pökkunum á morgun.

Um er að ræða vörur fyrir bæði grunnskólabörn og fólk á framhaldsskólastigi að sögn Ásgerðar. Hún segir fólk þurfa á þessu að halda nú en úthlutunin fer fram á morgun klukkan 15:00 í húsakynnum Fjjölskylduhjálpar Íslands við Eskihlíð 2-4.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×