Innlent

Fjórtán staðnir að hraðakstri í Grænutungu

MYND/HARi

Lögreglan stóð fjórtán ökumenn að hraðakstri í Grænutungu í Kópavogi í gær en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði.

Í tilkynningu segir að reynslan sýni að notkun slíks búnaðar gefi gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.

Fylgst var með ökutækjum sem var ekið í suðurátt, á milli Bræðratungu og Hrauntungu. „Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 35 ökutæki þessa akstursleið og því óku 40 prósent ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 46 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 54."

Eftirlit lögreglunnar í Grænutungu var tilkomið vegna ábendinga frá íbúum sem hafa kvartað undan hraðakstri á þessum stað.


























Fleiri fréttir

Sjá meira


×