Frambjóðendum Heimdallar úthýst af Facebook Valur Grettisson skrifar 1. september 2009 14:26 Davíð Þorláksson og Árni Helgason er í horninu. „
Mér var líka hent út," segir Davíð Þorláksson, frambjóðandi til formanns Heimdallar, en andstæðingur hans og mótframbjóðandi, Árni Helgason, ritaði pistil á vefsvæði sitt þar sem hann tilkynnti að aðgangur hans á Facebook hefði verið afturkallaður. Þar sagðist hann gruna að óprúttnir aðilar hefðu kvartað undan honum á þar til gerðum takka á Facebook síðu sinni. Aðrir þóttust sjá hörku færast í formannskjörið í þessari stærstu ungliðahreyfingu stjórnmálaflokks hér á landi sem telur sjö þúsund manns. Báðum formannsframbjóðendunum hefur því verið meinaður aðgangur að síðunni. Aðspurður segist Davíð ekki trúa því að þarna sé um róttæka árás á Heimdall að ræða. „Ég hélt fyrst að ég væri svona lélegur að logga mig inn," segir hinn tæplega þrítugi Davíð Þorláksson um það þegar hann reyndi að skrá sig inn á Facebook í morgun eins og aðra daga. Þá kom í ljós að reikningur hans var horfinn með öllu. Hann segist ekki hafa skráð sig inn á samskiptavefinn vinsæla fyrr en í síðasta mánuði en hann notaði Facebook meðal annars til þess að vekja athygli á sér og viðburðum sér tengdum. Hann segist ekki trúa því að einhver sé svo illviljaður að hann hafi kvartað undan báðum formannsframbjóðendunum með fyrrgreindum afleiðingum. Heldur telur Davíð að Facebook hafi talið þá vera í einhverskonar markaðsstarfi en slíkt er bannað á síðunni. „Þetta er talsverður missir," segir Davíð enda notaði hann Facebook nokkuð í kynningastarfi sínu. En þó það sé búið að loka aðganginum hans þá er engu að síður hægt að finna stuðningssíðu á Facebook í hans nafni. Að sögn Davíðs eru hann og Árni í góðu sambandi. Hann segir þá tala saman daglega auk þess sem þeir ræddu málið eftir að þeim var meinaður aðgangur að Facebook. Missirinn er augljóslega mikill hjá báðum frambjóðendum enda kosningabaráttan að ná hámarki. Aðspurður hvort Davíð hafi kvartað undan Facebook-reikningi Árna segir hann hlæjandi: „Ég kvartaði ekki undan Árna. Ég kann svo illa á þetta ég lét vin minn setja upp mína eigin síðu." Kosningarnar fara fram í Valhöll á morgun á milli 20:00 til 22:00.
Mest lesið Hefja söfnun fyrir fjölskyldu Víglundar Innlent „Glútenóþol var orðið óhreinn hattur yfir þetta allt saman“ Innlent Hinn látni erlendur ríkisborgari á þrítugsaldri Innlent Þekkir ekki eina stelpu sem ekki hefur verið áreitt Innlent Borðaði súrdeigsbrauð og mældist með áfengi í útblæstri Innlent Hefur skilning á báðum sjónarmiðum í Heiðmerkurmálinu Innlent Bað um 12 milljónir til að halda tónlistarhátíð í öðru sveitarfélagi Innlent Segja ógnarstjórn ríkja á Þjóðminjasafninu Innlent Lækkandi fæðingartíðni er vandamál sem leysist ekki án innflytjenda Innlent Býður til flugveislu á Reykjavíkurflugvelli Innlent Fleiri fréttir „Glútenóþol var orðið óhreinn hattur yfir þetta allt saman“ Ók hlaupahjólinu á tré með pizzu í annarri Hefja söfnun fyrir fjölskyldu Víglundar Borðaði súrdeigsbrauð og mældist með áfengi í útblæstri Hefur skilning á báðum sjónarmiðum í Heiðmerkurmálinu Þekkir ekki eina stelpu sem ekki hefur verið áreitt Umferðartafir vegna framkvæmda við Kringlumýrarbraut í sumar Hinn látni erlendur ríkisborgari á þrítugsaldri Býður til flugveislu á Reykjavíkurflugvelli Sóttu veikan mann í rússneskan togara Lækkandi fæðingartíðni er vandamál sem leysist ekki án innflytjenda Rannsókn lokið í manndrápsmáli Lögðu hald á nokkuð magn fíkniefna og hnífa Sláandi tölur: Kyrkingartökum og eltihrellum fer fjölgandi Mætti með steikarhníf á leikskóla Kyrkingartök og elltihrellahegðun fara vaxandi og myndband af áreitni í miðborginni Grill í ljósum logum úti á svölum Vilja endurbyggja verkstæðið en nágrannar mótmæla harðlega Margra kílómetra bílaröð eftir árekstur á Vesturlandsvegi Halda framkvæmdastjóra Félagsbústaða þrátt fyrir alvarlegt vantraust Telja að maðurinn sé fundinn „Þetta er mjög þungt og erfitt“ „Ég vara mjög við því að menn beiti þessu úrræði“ „Verið að búa til óseðjandi kerfi þar sem bátum mun fjölga“ Eldur kviknaði í vörubíl á Reykjanesbraut Bað um 12 milljónir til að halda tónlistarhátíð í öðru sveitarfélagi „Yndisleg kvöldstund í þessum þunga harmi okkar“ Leit hefst á ný eftir hádegi Klúðursleg rannsókn lögreglu leiddi til sýknu skipstjóra Reknir fyrir að vinna ekki nógu mikið Sjá meira