Innlent

Kristján hættur í forsætisráðuneytinu

Kristján Kristjánsson, sem hefur starfað sem upplýsingafulltrúi forsætisráðuneytisins, er hættur störfum hjá ráðuneytinu.

Hann segir í samtali við Vísi að ráðningarsamningur hans hafi gilt til mánaðamóta. Það ráðist síðar hvað taki við.

Kristján starfaði sem fréttamaður í Kastljósi Sjónvarpsins um árabil, áður en hann fór til starfa hjá FL-group. Hann hætti störfum þar án skýringa og réð sig síðar til starfa í forsætisráðuneytinu, meðan sjálfstæðismenn fóru þar með lyklavöld. Þar situr nú Jóhanna Sigurðardóttir, Samfylkingu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×