Innlent

Sjö af átta umsækjendum konur

Hafnarfjarðarkirkja
Hafnarfjarðarkirkja
Átta umsækjendur eru um embætti prests í Hafnarjarðarpretstakalli, Kjalarnesprófastsdæmi. Frestur til að sækja um embættið rann út 27. ágúst en embættið veitist frá 1.október. Sjö af þessum átta umsækjendum eru konur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Biskupsstofu.

Umsækjendur eru:

• Séra Arna Ýrr Sigurðardóttir

• Cand. theol. Arndís B. Bernharðsdóttir Linn

• Séra Ása Björk Ólafsdóttir

• Cand. theol. Bryndís Valbjarnardóttir

• Séra Guðbjörg Jóhannesdóttir

• Cand. theol. Haraldur Örn Gunnarsson

• Séra Yrsa Þórðardóttir

• Séra Þórhildur Ólafs

Það er Biskup Íslands sem skipar í embættið til fimm ára að fenginni umsögn valnefndar. Valnefnd skipa níu manns úr prestakallinu ásamt prófasti Kjalarnessprófastsdæmis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×