Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ragnar SF með aflamet Hraðfiskibáturinn Ragnar SF frá Hornafirði setti aflamet smábáta í nýliðnum ágústmánuði, þegar hann veiddi rösklega tvö hundruð tonn í rúmlega tuttugu róðrum frá Seyðisfirði. 1.9.2009 07:12
Nýtt fiskveiðiár á miðnætti Nýtt fiskveiðiár hófst á miðnætti í skugga mikils niðurskurðar á kvótum mikilvægra tegunda. Mestu munar að ýsukvótinn á þessu fiskveiðiári verður heilum 30 þúsund tonnum minni en á síðasta fiskveiðiári, eða aðeins 63 þúsund tonn, samanborið við 93 þúsund tonn á nýliðnu fiskveiðiári. 1.9.2009 07:09
Orkan lækkar eldsneytisverð Bensínorkan lækkaði verð á bensíni og dísilolíu síðdegis í gær. Í tilkynningu frá félaginu segir að það sé gert vegna lækkunar á heimsmarkaðsverði á olíu og hækkandi gengis krónunnar gagnvart Bandaríkjadollar, en olíuviðskipti fara fram í dollurum. 1.9.2009 07:07
Fimm í fangageymslum eftir innbrot Fimm menn gista fangageymslur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eftir að hafa verið gripnir við innbrot í nótt. Einn hafði brotist inn í fyrirtæki við Gjáhellu í Hafnarfirði og fanst í hnipri undir fjórhjóli. 1.9.2009 07:03
Aðgerðir á ís vegna Icesave Hugsanleg aðkoma lífeyrissjóðanna að verklegum framkvæmdum er að mestu órædd og með öllu óákveðin. Annir starfsfólks fjármálaráðuneytisins vegna Icesave-málsins ráða þar mestu um en mikið álag var á ráðuneytisfólki við meðferð Alþingis á málinu. 1.9.2009 06:30
Barnaverndarmálum fjölgar um fimmtung Tilkynnt var um 17 prósentum fleiri börn til Barnaverndar Reykjavíkur fyrstu sex mánuði ársins en á sama tíma í fyrra. Tilkynningum í heild fjölgaði um fjórðung. Mest er fjölgunin í Reykjavík en er þó talsverð um landið allt. 1.9.2009 06:00
Þeir sem fóru mjög geyst í góðærinu fái líka aðstoð Viðskiptaráðherra segir að eflaust komi til verulegra afskrifta. Eflaust finnist einhverjum það ósanngjarnt þegar þeir sem skuldsettu sig um of fái aðstoð. Bönkum kunni að koma vel að umbreyta erlendum lánum. 1.9.2009 06:00
Sviku sig inn í Vítisenglana Tugmilljónasvik út úr Íbúðalánasjóði eru talin hafa verið síðasta prófraunin sem vélhjólaklúbburinn Fáfnir þurfti að standast til að fá aðild að alþjóðasamtökum Hells Angels. Ríkislögreglustjóri vill banna klúbbinn. 1.9.2009 05:30
Deild fyrir einhverf börn stofnuð í haust Skólakerfið tekur ekki nægjanlegt tillit til ólíkrar getu og þroska barna, segir Margrét Pála Ólafsdóttir. Hjallastefnan opnar sérdeild fyrir einhverf börn árið 2010. „Frábærar fréttir,“ segir framkvæmdastjóri Umsjónarfélags einhverfra. 1.9.2009 05:30
Nauðgari krafinn um milljónatugi Eitt fórnarlamba nauðgarans Jóns Péturssonar hefur krafið hann um rúmlega tuttugu milljónir í skaðabætur fyrir hönd ólögráða sonar síns. Bótakrafan er til komin vegna andlegs skaða sem pilturinn varð fyrir þegar hann horfði upp á ofbeldi Jóns gegn móður hans. Pilturinn er metinn með 25 prósenta örorku vegna þess andlega áfalls sem hann varð fyrir. 1.9.2009 05:00
Þriðjungur er með skert laun Ríflega þriðjungur, eða 35 prósent þeirra sem eru í launaðri vinnu, hefur orðið fyrir því að laun eða starfshlutfall hefur verið skert frá hruni bankanna í október. Þetta kemur fram í skoðanakönnun sem Capacent Gallup gerði fyrir Alþýðusamband Íslands í júní. Flestir eða rúmlega átján prósent hafa lent í launalækkun, hjá níu prósentum hefur vinnutími verið styttur og átta prósent hafa orðið fyrir annarskonar skerðingu. Þetta er mikil aukning frá því í desember 2008 þegar 21 prósent launafólks hafði orðið fyrir í slíkri skerðingu. 1.9.2009 04:45
Forstjóri skammar atvinnurekendur fyrir gagnrýnisleysi Forstjóri N1 telur að hagsmunasamtök atvinnurekenda ættu að beina sjónum inn á við í endurreisninni og gagnrýna eigin félaga þegar þeir brjóta lög. Framkvæmdastjóri SA segir þetta ekki hlutverk samtakanna. 1.9.2009 04:30
OR gekk að tilboði Magma í HS Orku Stjórnvöld vilja kaupa meirihluta í HS Orku. Geysir Green Energy á um 55 prósenta hlut en opinberir aðilar hafa ekki rætt við félagið um kaup á hlut þeirra. Ríkið, lífeyrissjóðir og sveitarfélög skoða kaup á meirihluta í HS Orku. 1.9.2009 04:30
Framlenging útboðs vegna símaþjónustu ógilt „Það eru gleðifréttir fyrir okkur að þetta ferli sé að virka,“ segir Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Símans, um ógildingu kærunefndar útboðsmála á framlengingu útboðs Ríkiskaupa á fjarskiptaþjónustu fyrir Landspítalann. 1.9.2009 04:30
Eignarhald á kirkjum í ólestri Þinglýsingar á eignarhaldi kirkna og hlunnindum þeirra eru í miklum ólestri. Kirkjuráð hyggst nú freista þess að koma skikki á þessa hluti. 1.9.2009 04:15
Einkaspítalinn vonandi ekki reistur á loftköstulum „Ég hef ekki aldrei verið hugfanginn að markaðsvæðingu á heilbrigðisþjónustu en ég hef í sjálfu sér ekkert við einkaspítala að athuga fyrr en farið er að gera út á skattgreiðendur,“ segir Ögmundur Jónasson, heilbrigðisráðherra, aðspurður um fyrirhugaðan einkaspítala og heilsuhótel. 31.8.2009 22:25
Slökkvilið kallað út vegna reyks Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins barst á ellefta tímanum í kvöld tilkynning um mikinn reyk sem barst út um glugga á 7. hæð. Suðurlandsbraut 12. Allt tiltækt lið slökkviliðsins var sent á staðinn en við nánari skoðun kom í ljós að reykurinn kom frá pizzaofni, en veitastaðurinn Eldsmiðjan er með rekstur á fyrstu hæð hússins. Enginn eldur reyndist vera laus í húsinu. 31.8.2009 23:01
Áframhaldandi gæsluvarðhalds krafist vegna morðsins í Dalshrauni Friðrik Smári Björgvinsson yfirlögregluþjónn segir að gerð verði krafa á morgun um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir Bjarka Frey Sigurgeirssyni, en hann hefur játað að hafa orðið Braga Friðjónssyni að bana í húsnæði Dalshrauni í Hafnarfirði mánudagskvöldið 17. ágúst. 31.8.2009 21:08
Nokkrir yfirheyrðir vegna skemmdarverka á eignum auðmanna Nokkrir menn hafa verið yfirheyrðir vegna skemmdarverka sem framin hafa verið á bílum og húsnæði auðmanna og fólks sem tengist tengdust íslensku útrásinni eða hruninu. Þetta kom fram í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins. 31.8.2009 20:32
Heilsuspítali mun skila milljörðum í gjaldeyristekjur Stefnt er að því að hefja byggingu á einkaspítala og heilsuhóteli á næsta ári. Forsvarsmenn spítalans telja að starfsemin muni geta skilað allt að 10 þúsund ferðamönnum til landsins og rúmlega 10 milljörðum í gjaldeyristekjur. Fyrirhugaður spítali verði byggður upp á grænum gildum, að sögn framkvæmdastjóra Primacare sem stendur á bak við verkefnið. 31.8.2009 20:08
Ekki móðurfélagsábyrgð og því ekki hægt að ganga að Magma ef illa fer „Þá er það mikið áhyggjuefni að móðurfélagsábyrgð Magma er ekki á skuldabréfinu heldur einungis veð í bréfum í HS orku,“ segir í bókun Sigrúnar Elsu Smáradóttur, borgarfulltrúa Samfylkingarinnar og fulltrúa flokksins í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur, vegna sölu á hlut fyrirtækisins í HS orku til kanadíska félagsins Magma Energy. 31.8.2009 19:45
Læknarnir komast ekki af vaktinni í vetur Vegarklúðrið á Melrakkasléttu veldur því að heilsugæslulæknarnir á Kópaskeri og Þórshöfn sjá ekki fram á að komast neitt frá vinnu í vetur. Læknirinn á Þórshöfn vill að menn taki slaginn og fari með ýturnar á síðasta spottann sem á vantar. 31.8.2009 18:51
Vill hefja olíuleitina strax næsta sumar Norska olíufélagið Sagex Petrolium vonast til að geta hafið olíuleitina á Drekasvæðinu þegar á næsta ári með nákvæmum hljóðbylgjurannsóknum. Borpallur kemur hins vegar ekki á svæðið nema fleiri olíufélög fáist í verkefnið. 31.8.2009 18:45
Telur að Ólafur verði við áskoruninni Undirskriftarlisti með nöfnum tíu þúsund einstaklinga var afhentur Forseta íslands í dag en þar skorað á forsetann að staðfesta ekki lög um Icesave samkomulagið. Talsmaður kjósa.is segist trú því að forsetinn verði við þessari áskorun. 31.8.2009 18:39
Málstaður Íslendinga styrkist í Bretlandi og Hollandi Málstaður Íslendinga vegna Icesave málsins virðist vera að styrkjast í Bretlandi og Hollandi. Stjórnmálamenn eru sagðir mildari í afstöðu sinni og háskólaprófessorar halda íslenskum sjónarmiðum á lofti. 31.8.2009 18:36
Stjórnarformaður Orkuveitunnar: Ekki verið að einkavæða HS orku „Með þessum samningum er ekki verið að einkavæða HS Orku,“ segir Guðlaugur G. Sverrisson, stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur. Stjórn fyrirtækisins samþykkti á fundi sínum í dag kaupsamning við Magma Energy um 16,58% hlut OR og tæplega 15% hlut Hafnarfjarðarbæjar í HS Orku. Jafnframt samþykkti stjórnin samkomulag við Hafnarfjarðarbæ um uppgjör milli aðila vegna viðskipta þeirra með hluti í Hitaveitu Suðurnesja. 31.8.2009 17:54
Stefnt að HS orka verði í meirihlutaeigu opinberra aðila Viðræðuhópur verður skipaður á næstu dögum sem muna kanna forsendur þess að ganga til samninga við Geysir Green um meirihluta félagsins í HS Orku þannig að félagið verði í meirihlutaeigu opinberra aðila. Miðað er við að niðurstaða viðræðna um möguleg kaup liggi fyrir á næstu vikum. 31.8.2009 17:21
Salan til Magma samþykkt í stjórn OR Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur samþykkti í dag að selja hlut sinn í HS Orku til kanadíska félagsins Magma Energy. Samningurinn er gerður með fyrirvara um samþykki borgarráðs og borgarstjórnar Reykjavíkur. Fulltrúar minnihlutans í stjórninni greiddu atkvæði gegn samningnum og gagnrýna þeir þann skamma tíma sem stjórnarmönnum gafst á að kynna sér efni samningsins. 31.8.2009 17:15
Nálgunarbann staðfest í Hæstarétti Hæstiréttur staðfesti í dag úrskurð Héraðsdóms Suðurlands þess efnis að manni skuli gert að sæta nálgunarbanni í þrjá mánuði. Manninum er meinað að koma nálægt heimili konu sinnar og þriggja barna þeirra. Jafnframt er honum bannað að veita konunni og börnunum eftirför, ónáða þau á almannafæri eða setja sig með öðru móti í samband við þau. 31.8.2009 16:51
Hús Lárusar Welding atað málningu í miðjum gleðskap Blárri blöðru með rauðri málningu var hent á heimili Lárusar Welding, fyrrum bankastjóra Glitnis, í Blönduhlíð á föstudagskvöldið svo húsið varð útatað. Tilkynning um atvikið barst lögreglu klukkan 23:37. 31.8.2009 16:49
Forsetahjónin á Stefnumóti á Ströndum Yfir sextíu aðilar á Ströndum tóku þátt í atvinnu- og menningarsýningunni Stefnumót á Ströndum. 31.8.2009 16:18
Vill lagabreytingar til að takast á við Vítisengla Stýrihópur ríkislögreglustjóra kom saman til fundar í dag, og var þar farið yfir fyrirliggjandi upplýsingar um umsvif Hells Angels hér á landi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ríkislögreglustjóra. 31.8.2009 15:57
Hvattur til þess að synja ríkisábyrgð á Icesave Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, veitti undirskriftalista Kjósa.is viðtökur klukkan þrjú í dag á Bessastöðum. Þetta var í fyrsta skiptið sem forsetinn tekur við slíkri áskorun í eigin persónu. 31.8.2009 15:48
Ellefu teknir fyrir vímuakstur um helgina Sex ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina, að því er segir í tilkynningu frá lögreglu. Einn var stöðvaður á laugardag og fimm á sunnudag. Þetta voru fjórir karlar á aldrinum 19-44 ára og tvær konur, 18 og 40 ára. Tveir þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi. 31.8.2009 15:47
35 prósent launþega hafa lent í skerðingu Ríflega þriðjungur eða 35% þeirra sem eru í launaðri vinnu hafa lent í því að laun eða starfshlutfall hefur verið skert frá hruni bankanna í október. Frá þessu er greint á heimasíðu ASÍ en Capacent Gallup gerði könnun á þessu fyrir sambandið í júní. Þar kemur í ljós að flestir, eða rúmlega 18 prósent hafa lent í launalækkun, hjá 9 prósentum hefur vinnutími verið styttur og 8 prósent hafa orðið fyrir annarskonar skerðingu. Í samskonar könnun sem gerð var í desember 2008 var hlutfallið mun lægra en þá höfðu 21 prósent launafólks orðið fyrir slíkri skerðingu. 31.8.2009 15:30
Fjölbýlishús rýmt eftir reyk úr ruslalúgu Fjölbýlishús að Flúðaseli 91 í Breiðholti var rýmt um klukkan þrjú í dag eftir að tilkynning barst um reyk í ruslageymslu hússins. 31.8.2009 14:59
Rafmagnslaust frá Sævarlandi að Sléttuvegi Bilun varð á háspennustreng í Fossvogi um klukkan 14:00 og er rafmagnslaust frá Sævarlandi að Sléttuvegi. 31.8.2009 14:12
Fimmtán þúsund manns gæddu sér á túnfiskís og bjórís Talið er að tæplega fimmtán þúsund gestir hafi sótt Ísdaginn mikla í Hveragerði á laugardaginn. Aðstandendur telja að íslandsmet hafi verið sett í íssmökkun og segja svo virðast sem ókeypis fjölskylduskemmtanir séu í sókn. 31.8.2009 13:43
Þrjú og hálft ár í fangelsi fyrir Hummer-ákeyrslu og íkveikju Jón Kristinn Ásgeirsson var í morgun dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir að hafa ekið Hummer-bifreið á 26 ára gamlan mann í janúar síðastliðnum og fyrir að eiga aðild að því að bera eld að húsi á Kleppsvegi í júní. Frá dómnum dregst 85 daga gæsluvarðhald sem Jón Kristinn hefur sætt. Hann er einnig dæmdur til þess að borga fórnarlambinu frá því í janúar tvær milljónir króna í miskabætur auk þess sem hann þarf að standa skil á málskosntaði. 31.8.2009 13:06
Beygjuljós á mótum Kringlumýrarbrautar og Borgartúns Beygjuljósum verður komið fyrir á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Borgartúns, akreinum fjölgað og sérstök vinstribeygjuakrein verður fyrir strætó af Kringlumýrarbraut inn í Borgartún. Þá verður bætt við hægribeygjuakrein frá Kringlumýrarbraut inn á Sæbraut og verður hún með umferðarljósum. 31.8.2009 12:45
Barðastrandarræningi meinaði sjö ára börnum för Einn af Barðastrandaræningjunum var handtekinn á laugardagskvöldið eftir að hafa gengið í skrokk á sautján ára pilti upp í Breiðholti. Atvikið átti sér stað um kvöldið en pilturinn hafði farið að vitja systkina sinna. Í ljós kom að Barðastrandaræninginn, auk félaga sem var með honum, höfðu meinað börnunum, sem eru um sjö ára aldur, að komast heim til sín. 31.8.2009 12:19
Handtekinn fyrir sprengjugabb við 10-11 Piltur sem tilkynnti um sprengju í tösku fyrir utan 10-11 verslun við Laugarima í Grafarvogi á ellefta tímanum í gærkvöldi var handtekinn í gærkvöldi. 31.8.2009 12:05
Steingrímur fór fram á lengri frest en fékk ekki Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra óskaði eftir lengri fresti til þess að móta hugmyndir um aðkomu lífeyrissjóðanna og sveitarfélaga að kaupum á hlut Orkuveitunnar í HS Orku. Guðlaugur Sverrisson stjórnarformaður OR segir ekki hægt að verða við beiðninni. Tilboð Magma Energy í hlutinn rennur út klukkan fimm í dag. 31.8.2009 11:42
Ólafur F.: Með jafnhreinan skjöld nú sem fyrr „Árið 2008 var ekki unað við það af okkar hálfu að flokkur úti í bæ sem var ekkert að vinna með okkur ætlaði að fá aftur þetta fé annað árið í röð til þess eins í besta falli að klekkja á okkur, en ekki til að láta fjármuni renna til framboðsins," segir Ólafur F. Magnússon, óháður borgarfulltrúi. 31.8.2009 11:35
Hafnar ásökunum um sögufölsun Þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Tryggvi Þór Herbertsson, skrifar á bloggið sitt að Magnús Orri Schram, þingmaður Samfylkingarinnar, sé beinlínis að reyna að falsa söguna. Ástæða þessarar harkalegu ummæla Tryggva Þórs er viðtal við þingmennina tvo sem var tekið í Íslandi í Bítið í morgun. Þar sátu þeir og skeggræddu meðal annars Icesave frumvarpið. Þar sagði Magnús Orri að það hefði alltaf staðið til innan Samfylkingarinnar að setja fyrirvara á Icesave-samninginn. 31.8.2009 11:33