Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Slasaðist alvarlega í árekstri jepplings og vörubíls Þyrla Landhelgisgæslunnar er nú á leið með mann til Reykjavíkur sem slasaðist alvarlega í árekstri jepplings og vörubifreiðar á Hrútafjarðarhálsi í Húnavatnssýslu um þrjúleytið í dag. 9.1.2008 16:44
Fundu fíkniefni og byssur í húsleit Lögregla fann í gær meint fíkniefni, riffil og haglabyssu heima hjá tæplega þrítugum manni sem hún hafði afskipti af. 9.1.2008 16:29
Framsókn fyllir nefndir á kostnað frjálslyndra Vægi frjálslynda flokksins í ráðum og nefndum borgarinnar er í engu samræmi við niðurstöður síðustu borgarstjórnarkosninga þegar flokkurinn hlaut um 10 prósenta fylgi. 9.1.2008 16:11
Samið við bandarískt fyrirtæki um lagningu DANICE-strengsins Eignarhaldsfélagið Farice hefur samið við bandaríska fyrirtækið Tyco Telecommunications um að hanna, framleiða og leggja hinn svokallaða DANICE-ljósleiðarasæstreng frá Íslandi til Danmerkur. 9.1.2008 15:55
Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna alvarlegs umferðarslyss Þyrlan Landhelgisgæslunnar er nú á leið að Laugabakka í Húnavatnssýslu þar sem alvarlegt umferðarslys varð fyrir stundu. Litlar upplýsingar er að fá að svo stöddu en svo virðist sem tveir bílar hafi skollið saman. 9.1.2008 15:44
Rúmlega fjórðungi fleiri útköll hjá flugdeild Gæslunnar Útköll þyrlna og flugvélar Landhelgisgæslunnar voru 28 prósentum fleiri á síðasta ári en árið 2006 eftir því sem segir í tilkynningu gæslunnar. 9.1.2008 15:15
Afskrá fjögur ökutæki á klukkustund Nærri átta þúsund úrsérgengnum ökutækjum var skila til úrvinnslu á síðasta ári sem er svipaður fjöldi og árin tvö þar á undan. 9.1.2008 14:24
Nýr samningur um menningarmál á Austurlandi Menntamálaráðherra, iðnaðarráðherra og formaður Sambands sveitarfélaga á Austurlandi undirrituðu í dag þriggja ára samning um samstarf ríkis og allra níu sveitarfélaganna á Austurlandi um menningarmál og menningartengda ferðaþjónustu 9.1.2008 13:52
Undirbúningur að tvöföldun vegar á Kjalarnesi hefjist strax Stjórn Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi telur að hefjast eigi nú þegar handa við að tvöfalda þjóðveg 1 á Kjalarnesi því þegar sé búið að tryggja fé til verksins. 9.1.2008 13:01
Rætt um aukna fjárþörf Hafró vegna loðnuleitar Ríkisstjórnin fjallaði í gær um aukna fjárþörf Hafrannsóknastofnunar vegna viðleitni hennar til að átta sig á loðnustofninum. 9.1.2008 12:45
Segir tillögur um takmarkanir á uppgreiðslugjöldum litlu skipta Fjármálaráðgjafi segir tillögur viðskiptaráðherra um takmarkanir á álagningu uppgreiðslugjalda lána á breytilegum vöxtum litlu skipta því enginn banki hérlendis fari fram á uppgreiðslugjald á slíkum lánum. Niðurfelling seðilgjalda skipti neytandann hins vegar miklu fari öll fjármálafyrirtæki eftir því. 9.1.2008 12:25
Mál Gunnars Wathne tekið fyrir í Bandaríkjunum Gunnar Stefán Wathne, Íslendingur sem grunaður er um peningaþvætti í Bandaríkjunum, kom fyrir dóm í Newark í New Jersey á mánudag. Þar var honum birt ákæra í málinu. 9.1.2008 12:19
Laugavegshúsin ekki á borð ráðherra fyrr en eftir tvær vikur Nikulás Úlfar Másson, forstöðumaður Húsafriðunarnefndar, segir tilmæli nefndarinnar um að húsin á Laugavegi 4 og 6 verði friðuð muni ekki koma inn á borð menntamálaráðherra fyrr en eftir tvær vikur. Á fundi nefndarinnar í gær var ákveðið að vinna að tillögu þess efnis að húsin verði friðuð og í því ferli felst meðal annars að gefa eigendum húsanna færi á því að gera athugasemdir við tilmælin. Þeir hafa tvær vikur til þess að bregðast við. 9.1.2008 12:17
Hækkun fasteignaskatta slæm fyrir kjaraviðræður Hækkun fasteignaskatta nú um áramót er slæmt innlegg í kjaraviðræður og áformar verkalýðsforystan að krefjast þess að sveitarfélögin falli frá skattahækkuninni. 9.1.2008 12:04
Farið yfir það innan borgarkerfisins hvaða þýðingu tilmæli hafa Verið er að fara yfir það innan borgarkerfisins hvaða þýðingu tilmæli Húsafriðunarnefndar til menntamálaráðherra um friðun Laugavegar 4 og 6 hefur fyrir borgina. Að sögn Guðmundar Steingrímssonar, aðstoðarmanns borgarstjóra, vill borgarstjóri bíða niðurstöðu þeirrar yfirferðar áður en hann tjáir sig frekar um málið. 9.1.2008 11:56
Líftími reykskynjara um 10 ár Líftími reykskynjara er almennt um 10 ár og þarf að skipta þeim út fyrir nýja að endingartíma loknum. Á þetta bendir Öryggismiðstöðin í tilkynningu sem send er út vegna tíðra og válegra eldsvoða að undanförnu. 9.1.2008 11:24
45 daga fangelsi fyrir húsbrot og árás á konu Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann í 45 daga fangelsi, sem skilorðsbundið er til tveggja ára, fyrir að hafa ruðst inn í hús óboðinn og ráðist á konu sem þar var gestkomandi. 9.1.2008 11:10
Stefán Ólafsson er nýr stjórnarformaður TR Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, hefur skipað Stefán Ólafsson, prófessor við Háskóla Íslands, stjórnarformann Tryggingarstofnunar ríkisins en stofnunin heyrir nú undir félags- og tryggingamálaráðuneytið. 9.1.2008 09:33
Réttindalaus á bíl um borð í Herjólfi Lögreglulmenn frá Selfossi gripu nýverið réttindalausann ökumann um borð í Herjólfi þar sem skipið lá við bryggju í Þorlákshöfn. 9.1.2008 09:07
Flugeldaóðir unglingar í Grindavík Lögreglan á Suðurnesjum var hvað eftir annað kölluð út í gærkvöldi vegna þess að unglingar í Grindavík voru að sprengja flugelda og heimatilbúnar sprengjur. 9.1.2008 08:40
Þjófur gripinn í lyfjaleit á tannlæknastofu Lögreglumenn gripu innbrotsþjóf glóðvolgann, þar sem hann var að leita lyfja í tannlæknisstofu í Mjódd í Reykjavík í nótt. 9.1.2008 08:36
Lögreglan lýsir enn eftir 17 ára dreng Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir enn eftir Hans Aðalsteini Helgasyni. Hann er 17 ára, 183 sentímetrar á hæð, snoðklipptur, klæddur í gallabuxur og hvíta hettupeysu og í svörtum hjólabrettaskóm. Hans er saknað síðan á laugardag. 9.1.2008 07:06
Almenningur gæti tapað hundruðum milljóna Eigendur Kaupangs, einkahlutafélagsins sem á húsin að Laugavegi 4-6 og byggingarrétt á lóðinni, segja að ef ákvörðun verði tekin um að friða húsin muni það leiða til þess að fjárfesting og kostnaður sem nemi hundruðum milljóna króna ónýtist og bótaskylda skapist sem lendi á skattgreiðendum. 8.1.2008 21:04
Davíð Smári er fórnarlambið Davíð Arnórsson sem varð fyrir fólskulegri árás Davíðs Smára Helenarsonar, þekkts ofbeldishrotta, segir að Davíð Smári sé fórnarlamb, en ekki þeir sem hafi þolað árásir af hendi hans. 8.1.2008 19:10
„Rosa sjokk að vera tekinn" Idol stjarnan, Karl Bjarni Guðmundsson eða Kalli Bjarni, segist gera ráð fyrir því að hefja afplánun næsta sumar. Þetta kom fram í viðtali við við Ragnhildi Steinunni Jónsdóttur, í Kastljósinu í kvöld. 8.1.2008 20:20
Fagnar því að mál Þorsteins sé á leið til umboðsmanns Þingflokksformaður Samfylkingarinnar fagnar því að ráðning Þorsteins Davíðssonar skuli vera á leið til umboðsmanns Alþingis. Hann segir ekki gott þegar ráðherra og fagnefnd séu ósammála í svo veigamiklu máli. 8.1.2008 22:26
Borgar sig aldrei að gefast upp „Ég get ekki sagt annað en að ég sé afar glaður yfir þessum fréttum enda liðin tæplega 3 ár síðan ég byrjaði að beita mér fyrir þessum málum," segir Ólafur F. Magnússon, forseti borgarstjórnar, þegar hann er spurður hvað honum finnist um ákvörðun Húsafriðunarnefndar um að beina því til menntamálaráðherra að húsin við Laugaveg 4 og 6 verði friðuð. 8.1.2008 19:13
Laugavegshúsin verði friðuð Húsafriðunarnefnd Ríkisins hefur ákveðið að beina þeim tilmælum til Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, menntamálaráðherra, að húsin við Laugaveg 4 - 6 verði friðuð. Nikulás segir að það sé mat nefndarinnar að fyrirhugaðar nýbyggingar á reitnum rýri varðveislugildi Laugavegar 2 og séu auk þess ekki í takt við þá götumynd sem þessi hús eru mikilvægir hlekkir í. 8.1.2008 17:58
Á tvöföldum hámarkshraða á Reykjanesbraut Karlmaður á þrítugsaldri ók á 137 kílómetra hraða á Reykjanesbraut nærri Vífilsstaðavegi, þar sem hámarkshraði er 70. Tuttugu og þrjú umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær. Flest voru þau minniháttar en í tveimur tilfellum var um afstungu að ræða. 8.1.2008 17:54
Margrét S. Frímannsdóttir á Litla-Hraun Margrét S. Frímannsdóttir, fyrrverandi alþingismaður, hefur verið sett forstöðumaður Fangelsisins Litla-Hrauni tímabundið frá 1. febrúar næstkomandi. Margrét er sett í embættið vegna leyfis Kristjáns Stefánssonar skipaðs forstöðumanns. 8.1.2008 17:21
Ræða um rökstuðning Árna á næstunni Nefndin sem fjallaði um hæfi umsækjenda um embætti dómara við Héraðsdóm Norðurlands eystra og Austurlands fyrir jól kemur saman á næstu dögum til þess að ræða rökstuðning Árna Mathiesen, fjármálaráðherra og setts dómsmálaráðherra, fyrir því að skipa Þorstein Davíðsson í embættið. 8.1.2008 16:58
Fórnarlamb Dabba Grensás í Íslandi í dag í kvöld Davíð Arnórsson, 28 ára bakari, varð fyrir fólskulegri árás Davíðs Smára Helenarsonar á Apótekinu um jólin. 8.1.2008 16:42
Áfram í farbanni vegna Vesturgötumáls Héraðsdómur Reykjaness féllst í dag á farbannskröfu lögreglunnar á Suðurnesjum yfir karlmanni sem grunaður er um að hafa ekið á fjögurra ára gamlan dreng á Vesturgötu í Reykjanesbæ í lok nóvember með þeim afleiðinugm að drengurinn lést. 8.1.2008 16:06
Á eina af merkustu uppgötvunum ársins Dr. Yngvi Björnsson, dósent við tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík, á eina af uppgötvunum síðasta árs að mati hins virta vísindatímarits Science Magazine. 8.1.2008 15:54
Tólf bjargað úr bruna Tólf manneskjum var bjargað út úr fjölbýlishúsi í Jórufelli 4 í Breiðholti og fjórar fluttar á sjúkrahús með grun um reykeitrun þegar eldur kom upp í stigagangi og geymslu rétt upp úr hádegi. Allt tiltækt lið slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu var kallað að húsinu. 8.1.2008 15:47
Bitist um skammstöfunina HRFÍ Deilan um skammstöfunina HRFÍ virðist vera að magnast. Á dögunum sagði Vísir frá því að Hundaræktarfélagið Íshundar hefði skráð skammstöfunina HRFÍ til Einkaleyfastofu. Formaður Hundaræktarfélags Íslands, sem stofnsett var árið 1969 og hefur alla tíð notast við téða skammstöfun, hafði þá ekki heyrt af málinu en sagði að um blekkingarleik af hálfu Íshunda væri að ræða ef rétt væri. 8.1.2008 15:35
RKÍ sendir þrjár milljónir til hjálparstarfs í Kenía Rauði kross Íslands hefur sent þrjár milljónir til hjálparstarfs í Kenía vegna átakanna sem brutust út milli þjóðarbrota í landinu í kjölfar forsetakosinganna skömmu fyrir áramót. 8.1.2008 15:02
Lögregla lýsir eftir 17 ára pilti Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Hans Aðalsteini Helgasyni, 17 ára. 8.1.2008 14:53
ÖBÍ mótmælir aukinni gjaldtöku af öryrkjum í heilbrigðiskerfinu Öryrkjabandalag Íslands mótmælir þeirri ákvörðun heilbrigðisráðherra að auka gjaldtöku af öryrkjum á sjúkrahúsum og heilsugæslustöðvum um allt að 70 prósent. 8.1.2008 14:50
Gefur lítið fyrir rökstuðning ráðherra Guðmundur Kristjánsson hæstaréttarlögmaður hyggst kvarta til umboðsmanns Alþingis vegna þeirrar ákvörðunar Árna Mathiesen, setts dómsmálaráðherra, að skipa Þorstein Davíðsson í embætti dómara við Héraðsdóm Norðurlands eystra og Héraðsdóms Austurlands. 8.1.2008 14:18
Allt á huldu um bruna síðustu daga Grunur leikur á að kviknaði hafi í út frá kertum í íbúð við Tungusel í gærnótt. Rannsókn er þó ekki lokið en margt bendir til þess að það hafi kviknað í út frá kertunum. 8.1.2008 14:18
Tvennt á sjúkrahús í Jórufellinu Búið er að reyklosa stigaganginn í Jórufelli 4 þar sem eldur kom upp í dag. Fjórum manneskjum var bjargað úr íbúð sinni með körfubíl og fóru tvær þeirra á sjúkrahús. 8.1.2008 13:44
Konan í Tunguseli útskrifuð í dag Helga Elísdóttir, móðir konunnar sem bjó í íbúðinni í Tunguseli sem eyðilagðist í eldi í gær, segir að dóttir sín og synir hennar tveir séu við góða líkamlega heilsu en að þau glími enn við andlega áfallið. Konan verður útskrifuð af sjúkrahúsi síðar í dag. Vinur fjölskyldunnar fórst í brunanum en áður tókst honum að bjarga konunni og drengjunum tveimur sem eru tólf og sjö ára gamlir. 8.1.2008 13:43
Góð síldveiði í Grundarfirði og við Stykkishólm Nokkur síldveiðiskip eru byrjuð síldveiðar á ný í Grundarfirði og við Stykkishólm og er veiðin góð og jöfn eins og hún hefur verið í allt haust. 8.1.2008 13:33
Skiptahlutur hjá Samvinnutryggingum rýrnar vegna hlutabréfa Enn dregst á langinn um óákveðinn tíma að endurgreiða um 40 þúsund tryggingatökum í Samvinnutryggingum eignarhlut þeirra í félaginu. Á meðan rýrnar skiptahluturinn vegna hlutabréfakaupa og lækkunar á verðbréfamarkaði. 8.1.2008 13:29