Innlent

Tólf bjargað úr bruna

Tólf manneskjum var bjargað út úr fjölbýlishúsi í Jórufelli 4 í Breiðholti og fjórar fluttar á sjúkrahús með grun um reykeitrun þegar eldur kom upp í stigagangi og geymslu rétt upp úr hádegi. Allt tiltækt lið slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu var kallað að húsinu.

Fjórum manneskjum var bjargað úr íbúð sinni með körfubíl. Talið er að kveikt hafi verið í geymslu í húsinu og mikill reykur myndaðist í stigaganginum. Búið er að reyræsta stigaganginn.

Ekki er vitað um meiðsli þeirra sem fluttir voru á sjúkrahús.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×