Fleiri
Metfjöldi á visir.is 14.12.2005 11:14 Fréttablaðið fær ekki afhent gögnin Fréttablaðið fær ekki afhent þau gögn sem sýslumaðurinn gerði upptæk í máli Jónínu Benediktsdóttur, að sögn lögmanns Jónínu. Hann segir lögbann sýslumannsins í Reykjavík enn vera í gildi, en Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði Kára Jónasson af skaðabótakröfu Jónínu í morgun. 14.12.2005 11:07 Fréttablaðið sýknað Sigurjón M. Egilsson, fréttaritstjóri Fréttablaðsins, segir að fullnaðarsigur hafi fengist í máli Jónínu Benediktsdóttur gegn blaðinu vegna birtinga þess á tölvupóstum hennar. Dómur var kveðinn upp í málinu fyrir stundarfjórðungi á þá leið að ritstjóri Fréttablaðsins, Kári Jónasson, var sýknaður af skaðabótakröfu Jónínu. 14.12.2005 11:01 Fleiri vilja íslenskt vatn Útflutningur á íslensku vatni hefur aukist um þriðjung frá síðasta ári, en það er þrátt fyrir að síðustu þrír mánuðir þessa árs séu ekki taldir með. Forstjóri stærsta vatnsútflytjandans á íslensku vatni segir þó langt því frá að fyrirtækið sé dottið í lukkupottinn. 14.12.2005 10:15 95% félagsmanna Eflingar samþykktu kjarasamning við Reykjavíkurborg 14.12.2005 10:00 Dómur kveðinn upp í máli Jónínu Ben gegn Fréttablaðinu Dómur verður kveðinn upp í máli Jónínu Benediktsdóttur gegn Fréttablaðinu og Kára Jónassyni, ritstjóra blaðsins, í Héraðsdómi Reykjavíkur klukkan korter í ellefu. Málið snýst um tölvupósta Jónínu sem Fréttablaðið birti upplýsingar úr snemma í haust. <b>Bein útsending NFS frá Héraðsdómi er aðgengileg á VefTV Vísis. Dómur verður kveðinn upp klukkan 10:30</B> 14.12.2005 09:31 Hallæri í góðærinu Grundvöllur búsetu verður æ ótraustari í sjávarbyggðum á öllu norðanverðu landinu, frá Snæfellsnesi að Vopnafirði. Þingmenn úr röðum stjórnarliða og stjórnarandstöðu tala um ómarkvissa byggðastefnu og áhugaleysi stjórnvalda. 14.12.2005 09:30 Nafn mannsins sem lést Maðurinn sem lést í umferðarslysi í Svalbarðsstrandarhreppi á mánudagsmorguninn hét Sigurður Arnar Róbertsson, fæddur árið 1967 í Reykjavík. Hann var búsettur að Laxagötu 6 á Akureyri. Sigurður lætur eftir sig þrjú börn. 14.12.2005 08:33 Fjögurra klukkustunda gjaldfrjáls leikskólavist Öll börn á Seyðisfirði fá fjögurra klukkustunda gjaldfrjálsa leikskólavist frá og með áramótum. Bæjarstjórn ákvað á fundi sínum í gær að bjóða dagfrjálsan leikskóla hálfan daginn fyrir börn á aldrinum eins til fjögurra ára en þetta stendur fimm ára börnum þegar til boða. 14.12.2005 08:07 Erlend fiskiskip að veiðum í íslenskri lögsögu? Landhelgisgæslan hefur rökstuddan grun um að erlend fiskiskip hafi leikið það undanfarnar vikur og mánuði að slökkva á fjareftirlitsbúnaði sínum að næturlagi, laumast allt að 20 sjómílur inn í íslensku fiskveiðilögsöguna og stundað þar veiðar. 14.12.2005 08:03 Tólf fangar í ónýtu fangelsi Tólf fangar sitja nú í Hegningarhúsinu á Skólavörðustíg, sem rekið hefur verið á undanþágum um áratuga skeið. Í bráðabirgðaskýrslu eftirlitsnefndar Evrópuráðsins segir það óásættanlegt að gæsluvarðhaldsfangar skuli vistaðir þar, enda standist það engan veginn þær kröfur sem nú séu gerðar til slíkra fangelsa. 14.12.2005 08:00 Enn hálkublettir víða um land 14.12.2005 07:54 Óviðunandi árangur í byggðapólitík Árangur stjórnvalda er rýr og jafnvel óviðunandi í byggðamálum segir í umsögnum um framvindu byggðaáætlunar 2002 til 2005. Meginmarkmið í áætluninni eru sögð skýrari nú en í fyrri áætlunum. Þó skorti á að þeim sé fylgt eftir. 14.12.2005 06:00 100% verðmunur Allt að 100 prósent verðmunur var á jólabókum í gær að því er fram kemur á fréttavef ASÍ. Þetta eru niðurstöður verðlagseftirlits ASÍ í fjórtán verslunum á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Bónus var oftast með lægsta verðið á 26 titlum af 36 en oft var lítill verðmunur milli Bónuss og Nettós. 14.12.2005 07:30 Öll börn fái fjóra tíma gjaldfrjáls á leikskóla Öll börn á Seyðisfirði frá eins árs til fimm ára aldurs eiga að fá fjögurra klukkustunda ókeypis dagvistun á leikskólum samkvæmt samþykkt bæjarstjórnar Seyðisfjarðar í dag. 13.12.2005 23:00 Sjá næstu 50 fréttir
Áfram skrölti hann þó Ölvaður ökumaður, sem leið átti um Öxnadalinn í nótt, missti stjórn á bíl sínum sem fór út af veginum, valt heila veltu og kom niður á hjólinn aftur. Við það hvell sprakk á öðru framhjólinu, en með þrjú hjól undir bílnum, skrölti hann áfram- þó. 15.12.2005 07:12
Sendi ríkislögreglustjóra bréf varðandi fyrrum forstjóra Byggðastofnunar Magnús Þór Guðmundsson, þingflokksformaður Frjálslynda flokksins, sendi ríkislögreglustjóra bréf þar sem hann bendir á ummæli Kristinn H. Gunnarssonar, þingmanns Framsóknarflokks, varðandi afglöp fyrrum forstjóra Byggðastofnunar í starfi. Magnús Þór telur að afglöpin varði við lög, eigi fullyrðingar Kristins við staðreynd að styðjast, og furðar sig á því að málið hafi ekki verið rannsakað af lögreglu á sínum tíma. 14.12.2005 23:37
Þolinmæði leikskólakennara á þrotum Þolinmæði leikskólakennara í Reykjavík er þrotum. Þeir saka borgaryfirvöld um að sýna menntun sinni lítilsvirðingu og hroka og krefjast leiðréttingar á kjörum sýnum hið fyrsta. Launanefnd sveitarfélaga hyggst á næstunni funda með forystumönnum Félags leikskólakennara vegna málsins. 14.12.2005 23:16
Hefja aftur skipulagða leit á miðnætti Björgunarsveitarmenn hafa hætt leit í bili í Fossvoginum að Einari Haraldssyni, átján ára gömlum pilt, sem saknað er síðan eftir miðnætti. Björgunarsveitarmenn hefja aftur skipulagða leit í kringum miðnætti og ganga þá fjörur í Fossvoginum. 14.12.2005 21:50
Mæðrastyrksnefnd afhent jólatré Mæðrastyrksnefnd fékk jólatré afhent frá Umhverfissviði Reykjavíkurborgar. Sú venja hefur skapast að gefa Mæðrastyrksnefnd jólatré eftir grisjun furulunda í útmörk Reykjavíkur. Ragnhildur G. Guðmundsdóttir formaður Mæðrastyrksnefndar, segir jólatrén koma sér vel og þegin af heilum hug. 14.12.2005 21:49
Leitað að 18 ára gömlum pilt Leit stendur yfir að Einari Haraldssyni, átján ára gömlum dreng , en ekkert hefur spurst til hans síðan hann rétt eftir miðnætti. Lögreglan í Reykjavík óskar eftir upplýsingum um ferðir Einars. 14.12.2005 21:13
Byrjuð á nýrri glæpasögu Yrsa Sigurðardóttir rithöfundur og verkfræðingur er byrjuð á nýrri glæpasögu. Söguna skrifar hún á kvöldin hátt uppi á fjöllum í vinnubúðum við Kárahnjúka. 14.12.2005 21:11
Misskildi sitt eigið frumvarp Iðnaðarráðherra segist hafa misskilið sitt eigið frumvarp um breytingu á lögum um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu. Það sé ekki rétt að handhafar rannsóknarleyfa á auðlindum í jörðu eigi að hafa forgang að virkjunarleyfi. Þingmaður Samfylkingarinnar segir að flokkurinn hefði stutt frumvarpið ef ákvæði um vilyrði ráðherra fyrir nýtingarleyfi hefði verið fellt brott. 14.12.2005 20:54
Kveikt í dagblöðum í fjölbýlishúsi Eldur kom upp í stigagangi í Grýtubakka tvö um fimm-leytið í dag. Töluverður reykur var í stigaganginum þegar lögregla kom að, en eldurinn logaði ekki lengur. Svo virðist sem einhverjir óprúttnir náungar hafi kveikt í bunka af dagblöðum, en lögregla veit ekki en hver eða hverjir voru að verki. 14.12.2005 20:50
Félag um lýðheilsu mótmælir lokun Heilsuverndarstöðvar Aðalfundur Félags um lýðheilsu lýsir áhyggjum sínum yfir að Heilsuverndarstöðin sem akkeri og minnismerki í heilsuvernd á Íslandi hverfi úr því hlutverki. Ráðamenn eru hvattir til að tryggja áframhaldandi stöðu Heilsuverndarstöðvarinnar og starfsemi hennar í í lýðheilsu Íslendinga. 14.12.2005 20:03
Barnadauði á Íslandi er sá lægsti í heiminum Atli Dagbjartsson, yfirlæknir á vökudeild segir ástæður fyrir lágri tíðni ungbarnadauða á Íslandi vera meðal annars góð mæðravernd, meðferð og lækningar við fæðingu og virkt ungbarnaeftirlit, sem farið er eftir. 14.12.2005 19:57
Samtök ferðaþjónustunnar mótmæla háu matvöruverði Samtök ferðaþjónustunnar taka undir með Samkeppniseftirlitinu að óásættanlegt sé að íslenskir neytendur og veitingahúsin í landinu, greiði 42% hærra verð fyrir matvæli en aðrar þjóðir í ESB löndunum. 14.12.2005 19:00
Óskað eftir upplýsingum um piltinn Lögreglan í Reykjavík óskar eftir upplýsingum um ferðir Einars Haraldssonar. Hann er 18 ára og fór frá Laugarásbíói um kl 00:30 og hefur ekki sést síðan. Grunur leikur á að Einar hafi farið í átt að Öskjuhlíð. 14.12.2005 18:54
Jónas ekki sáttur Jónas Garðarson, formaður Sjómannafélags Reykjavíkur, hefur ýmislegt að athuga við rannsókn sjóslyssins á Viðeyjarsundi. Það hvarflar ekki að honum að segja af sér formennsku vegna málsins. 14.12.2005 18:45
Ekki enn fundinn Lögregla hefur ekki enn fundið 18 ára gamlan dreng sem hefur verið leitað síðan síðdegis í dag. Ekki hefur spurst til hans síðan um miðnættið í gær, en þá sást til hans við Öskjuhlíð. Fjölmennt leitarlið er nú í Öskjuhliðinni. 14.12.2005 18:37
Stúlkan fundin Lögreglan hefur fundið tíu ára gamla þroskahefta stúlku sem leitað var að í Hlíðunum í dag. Hún var hjá vinkonu sinni og kom í leitirnar þar. 14.12.2005 17:37
Starfshópur skipaður um aðgerðaráætlunina "Einfaldara Ísland" Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra hefur skipað starfshóp með fulltrúum stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins til að undirbúa aðgerðaráætlunina „ Einfaldara Ísland." Meginmarkmið áætlunarinnar, sem kynnt var í stefnuræðu forsætisráðherra nú í haust, verður einföldun laga og reglna, ekki síst til þess að auka samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs. 14.12.2005 17:23
Jólin klámvædd í gosdrykkjaauglýsingu? „Það vilja allar mömmur kyssa jólasveininn okkar." Þetta fullyrðir Ölgerðin í auglýsingu sem birst hefur í dagblöðum síðustu daga þar sem sjá má jólasvein með bera bringu, og konu krjúpandi við hlið sér. „Klámvæðing á jólunum," segja femínistar. 14.12.2005 17:20
Karlmenn um 88% viðmælenda í íþróttafréttum Karlar eru mun meira áberandi í fjölmiðlum en konur. Svipuð kynjahlutföll eru í fréttum, sjónvarpsþáttum og auglýsingum en það hallar verulega á hlut kvenna. Hlutfall karla í fjölmiðlum er á bilinu 65-80% á móti 20-35% kvenna en hlutfallið breytist lítillega eftir því hvort um er að ræða auglýsingar, fréttir, fréttatengda þætti eða sjónvarpsþætti. 14.12.2005 17:15
Lögbann á gögn áfram í gildi Fréttablaðið fær ekki afhent þau gögn sem sýslumaðurinn í Reykjavík gerði upptæk að kröfu Jónínu Benediktsdóttur í september síðastliðnum þrátt fyrir dóminn sem féll í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun þar sem blaðið var sýknað af kröfum Jónínu. Að sögn Sigurjóns M. Egilssonar, fréttaritstjóra Fréttablaðsins, gildir lögbann sýslumanns enn þar sem málinu verði áfrýjað til Hæstaréttar. 14.12.2005 17:08
Baugur Group gengur frá kaupum í Þætti eignarhaldsfélagi Baugur Group hefur gengið frá kaupum á tuttugu prósent hluti í Þætti eignarhaldsfélagi ehf. Kaupverðið verður greitt í reiðufé og hlutabréfum í Íslandsbanka. Þáttur sem áður var að fullu í eigu Milestone ehf., mun um leið taka yfir rúmlega sextán komma fjögur prósenta eignahlut Milstone í Íslandsbanka og ríflega sextíu og sex prósenta hluti í Sjóvá. 14.12.2005 17:01
Leitað að 10 ára stúlku og ungum manni Lögreglan í Reykjavík hefur hafið leit að tíu ára gamalli stúlku sem ekki hefur spurst til síðan á milli tvö og þrjú í dag. Síðast sást til hennar við Hamrahlíðina í Reykjavík. Þá leitar fjölmennt lið björgunarsveitarmanna og lögreglu nú að ungum manni sem ekkert hefur spurst til síðan um miðnættið í gær. Síðast spurðist til mannsins við Öskjuhlíð og því einblína leitarmenn á svæðið þar í kring. 14.12.2005 16:54
Mörgu ábótavant í mannréttindamálum hérlendis Mannréttindafulltrúi Evrópuráðsins kynnti skýrslu sína til úrbóta um stöðu mannréttindamála á Íslandi. hann hefur margt við mannréttindamál hérlendis að athuga og leggur fram fjölmargar breytingartillögur. Hann vill m.a. endurskoða ráðningarferli hæstaréttardómara og bæta aðgang fanga að sálfræðiaðstoð. 14.12.2005 16:45
Ráðamenn tryggi áframhaldandi stöðu Heilsuverndarstöðvar Félag um lýðheilsu lýsir áhyggjum sínum yfir að Heilsuverndarstöðin sem akkeri og minnismerki í heilsuvernd á Íslandi hverfi úr því hlutverki, en eins og greint hefur verið frá hefur húsnæði Heilsuverndarstöðvarinnar við Barónsstíg verið selt. Í ályktun frá félaginu eru ráðamenn hvattir til að tryggja áframhaldandi stöðu Heilsuverndarstöðvarinnar og starfsemi hennar í lýðheilsu Íslendinga. 14.12.2005 16:41
Fimm sækja um embætti dómara við Héraðsdóm Reykjaness Fimm umsækjendur eru um embætti héraðsdómara við Héraðsdóm Reykjaness sem taka mun til starfa 1. febrúar á næstkomandi. 14.12.2005 15:30
Jarðskjálfti upp á 3 á Richter úti fyrir Grímsey Jarðskjálfti upp á þrjá á Richter mældst um tólf kílómetra norður af Grímsey í nótt. Frá því í gær hafa 16 skjálftar mælst þar, flestir minni en tveir að stærð. Jarðskjálftahrinur eru algengar á þessu svæði. 14.12.2005 15:15
Hefur lagt hald á yfir 500 kannabisplöntur á árinu Lögregla er búin að leggja hald á nokkuð á sjötta hundrað kannabisplöntur á árinu og er talið að næstum allt marijúana, sem neytt er hér á landi, sé framleitt innanlands. 14.12.2005 14:55
Hjálmar leiðréttir misskilning sinn Hjálmar Árnason, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, segir sér bæði ljúft og skylt að leiðrétta misskilning sinn um tímasetningu ráðgjafar ríkislögmanns í máli Valgerðar H. Bjarnadóttur, fyrrverandi framkvæmdastjóra Jafnréttisstofu, gegn ríkinu. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Hjálmar sendi frá sér í dag. 14.12.2005 13:07
Matvæli dýrust á Íslandi af löndum Evrópu Matvæli er dýrust á Íslandi af löndum Evrópu. Matvöruverð hérlendis er 42 prósentum hærra en að meðaltali í löndum Evrópusambandsins. Innflutningshömlur á búvörum eru talin helsta skýringin, að því er fram kemur í skýrslu samkeppniseftirlita á Norðurlöndum, sem kynnt var í morgun. 14.12.2005 12:50
Tíðni ungbarnadauða í heiminum lægst á Íslandi Tíðni ungbarnadauða í heiminum er lægst á Íslandi. Þetta er meðal þess sem kemur fram í ársskýrslu UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, sem birt var í morgun. Hundruð milljóna barna þjást vegna mikillar misnotkunar og kúgunar og eru beinlínis ósýnileg gagnvart umheiminum. 14.12.2005 12:16
Fréttablaðið fær ekki afhent gögnin Fréttablaðið fær ekki afhent þau gögn sem sýslumaðurinn gerði upptæk í máli Jónínu Benediktsdóttur, að sögn lögmanns Jónínu. Hann segir lögbann sýslumannsins í Reykjavík enn vera í gildi, en Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði Kára Jónasson af skaðabótakröfu Jónínu í morgun. 14.12.2005 11:07
Fréttablaðið sýknað Sigurjón M. Egilsson, fréttaritstjóri Fréttablaðsins, segir að fullnaðarsigur hafi fengist í máli Jónínu Benediktsdóttur gegn blaðinu vegna birtinga þess á tölvupóstum hennar. Dómur var kveðinn upp í málinu fyrir stundarfjórðungi á þá leið að ritstjóri Fréttablaðsins, Kári Jónasson, var sýknaður af skaðabótakröfu Jónínu. 14.12.2005 11:01
Fleiri vilja íslenskt vatn Útflutningur á íslensku vatni hefur aukist um þriðjung frá síðasta ári, en það er þrátt fyrir að síðustu þrír mánuðir þessa árs séu ekki taldir með. Forstjóri stærsta vatnsútflytjandans á íslensku vatni segir þó langt því frá að fyrirtækið sé dottið í lukkupottinn. 14.12.2005 10:15
Dómur kveðinn upp í máli Jónínu Ben gegn Fréttablaðinu Dómur verður kveðinn upp í máli Jónínu Benediktsdóttur gegn Fréttablaðinu og Kára Jónassyni, ritstjóra blaðsins, í Héraðsdómi Reykjavíkur klukkan korter í ellefu. Málið snýst um tölvupósta Jónínu sem Fréttablaðið birti upplýsingar úr snemma í haust. <b>Bein útsending NFS frá Héraðsdómi er aðgengileg á VefTV Vísis. Dómur verður kveðinn upp klukkan 10:30</B> 14.12.2005 09:31
Hallæri í góðærinu Grundvöllur búsetu verður æ ótraustari í sjávarbyggðum á öllu norðanverðu landinu, frá Snæfellsnesi að Vopnafirði. Þingmenn úr röðum stjórnarliða og stjórnarandstöðu tala um ómarkvissa byggðastefnu og áhugaleysi stjórnvalda. 14.12.2005 09:30
Nafn mannsins sem lést Maðurinn sem lést í umferðarslysi í Svalbarðsstrandarhreppi á mánudagsmorguninn hét Sigurður Arnar Róbertsson, fæddur árið 1967 í Reykjavík. Hann var búsettur að Laxagötu 6 á Akureyri. Sigurður lætur eftir sig þrjú börn. 14.12.2005 08:33
Fjögurra klukkustunda gjaldfrjáls leikskólavist Öll börn á Seyðisfirði fá fjögurra klukkustunda gjaldfrjálsa leikskólavist frá og með áramótum. Bæjarstjórn ákvað á fundi sínum í gær að bjóða dagfrjálsan leikskóla hálfan daginn fyrir börn á aldrinum eins til fjögurra ára en þetta stendur fimm ára börnum þegar til boða. 14.12.2005 08:07
Erlend fiskiskip að veiðum í íslenskri lögsögu? Landhelgisgæslan hefur rökstuddan grun um að erlend fiskiskip hafi leikið það undanfarnar vikur og mánuði að slökkva á fjareftirlitsbúnaði sínum að næturlagi, laumast allt að 20 sjómílur inn í íslensku fiskveiðilögsöguna og stundað þar veiðar. 14.12.2005 08:03
Tólf fangar í ónýtu fangelsi Tólf fangar sitja nú í Hegningarhúsinu á Skólavörðustíg, sem rekið hefur verið á undanþágum um áratuga skeið. Í bráðabirgðaskýrslu eftirlitsnefndar Evrópuráðsins segir það óásættanlegt að gæsluvarðhaldsfangar skuli vistaðir þar, enda standist það engan veginn þær kröfur sem nú séu gerðar til slíkra fangelsa. 14.12.2005 08:00
Óviðunandi árangur í byggðapólitík Árangur stjórnvalda er rýr og jafnvel óviðunandi í byggðamálum segir í umsögnum um framvindu byggðaáætlunar 2002 til 2005. Meginmarkmið í áætluninni eru sögð skýrari nú en í fyrri áætlunum. Þó skorti á að þeim sé fylgt eftir. 14.12.2005 06:00
100% verðmunur Allt að 100 prósent verðmunur var á jólabókum í gær að því er fram kemur á fréttavef ASÍ. Þetta eru niðurstöður verðlagseftirlits ASÍ í fjórtán verslunum á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Bónus var oftast með lægsta verðið á 26 titlum af 36 en oft var lítill verðmunur milli Bónuss og Nettós. 14.12.2005 07:30
Öll börn fái fjóra tíma gjaldfrjáls á leikskóla Öll börn á Seyðisfirði frá eins árs til fimm ára aldurs eiga að fá fjögurra klukkustunda ókeypis dagvistun á leikskólum samkvæmt samþykkt bæjarstjórnar Seyðisfjarðar í dag. 13.12.2005 23:00