Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
17 % færri umferðaslys það sem af er þessu ári en á sama tíma í fyrra. 19 manns hafa látist í bílslysum það sem af er árinu. Samkvæmt Einari Magnúsi Magnússyni, upplýsingafulltrúa Umferðarstofu, hefur almennum slysum þó fækkað um 17% frá því í fyrra, sé miðað við fyrstu níu mánuði áranna. 13.12.2005 22:23
Gripinn með nokkur kíló af hassi í Leifsstöð Karlmaður situr í gæsluvarðhaldi eftir að hafa verið tekinn með nokkur kíló af hassi í fórum sínum í Leifsstöð. Þetta er mesta magn af hassi sem tekið hefur verið á einum manni það sem af er árinu. 13.12.2005 22:15
Lést í umferðarslysi í Svalbarðstrandarhreppi Maðurinn sem lést í umferðarslysi í Svalbarðsstrandarhreppi í gærrmorgun hét Sigurður Arnar Róbertsson, fæddur árið 1967 í Reykjavík. Hann var búsettur að Laxagötu 6 á Akureyri. Sigurður lætur eftir sig þrjú börn. 13.12.2005 22:03
Fornminjar fundust við Útskála í Garði Fornleifar frá lokum víkingaaldar fundust við jarðrask vegna framkvæmda að Útskálum í Garði í gær. Björgunaruppgröftur fornleifafræðinga er hafinn því að ekki stendur til að hætta við framkvæmdirnar, þótt mannvistarleifarnar séu mjög fornar. 13.12.2005 22:00
Seld til útlanda fyrir metfé JPV útgáfa hefur selt útgáfuréttinn að bók Árna Þórarinssonar Tíma nornarinnar til Þýskalands fyrir tveggja og hálfrar milljóna króna fyrirframgreiðslu. Jóhann Páll Valdimarsson útgefandi segir þetta líklega hæstu fyrirframgreiðslu sem fengist hefur fyrir íslenska bók í útlöndum. 13.12.2005 21:45
Undirbúningur fyrir þingkosningar í Palestínu stöðvaður Yfirkjörstjórn Palestínu hefur stöðvað allan undirbúning fyrir þingkosningarnar í janúar vegna árása á kosningaskrifstofur. Það eru Hamas-liðar sem gera árásirnar. 13.12.2005 21:45
Auðlindafrumvarp ráðherra þvert á niðurstöður nefndar Frumvarp iðnaðarráðherra um rannsóknir og nýtingu á auðlindum jarðar gengur þvert á niðurstöður auðlindanefndar, sem Davíð Oddsson skipaði á sínum tíma. Meginniðurstöður þeirrar nefndar voru að jafnræði ætti að ríkja við úthlutun og að greiða þyrfti gjald fyrir afnotin. 13.12.2005 21:45
Lögregla fann stolinn jeppa og hluti úr öðrum Lögreglan á Selfossi fann á dögunum Nissan Patrol jeppa sem stolið hafði verið í Njarðvík í byrjun nóvember. Eftir ábendingu fannst jeppinn í bílskúr í bænum og í ljós kom að maður í Þorlákshöfn leigði skúrinn. Sá var handtekinn og færður í fangageymslur. Í jeppanum fundust hlutir sem tengdust öðrum Partrol-jeppa sem stolið var í Reykjavík í síðustu viku og fannst strípaður við Rauðavatn. 13.12.2005 21:23
Ærumeiðandi skilaboð á garðvegg fyrrverandi forstjóra Skeljungs Þú ert mesti þjófur Íslands! Þessi orð úðaði spellvirki á garðvegg hjónanna Kristins Björnssonar, fyrrverandi forstjóra Skeljungs, og Sólveigar Pétursdóttur alþingismanns, við Fjólugötu. Lögreglunni var tilkynnt um spellvirkið rétt fyrir klukkan tvö í dag og í þann mund er fréttamann bar að garði var vinur þeirra hjóna í óða önn að mála yfir veggjakrotið. Hjónin eru stödd í útlöndum. Lögreglan leitar nú vísbendinga um hver hafi staðið að þessu skemmdarverki. 13.12.2005 21:15
Persónulegir munir Bobby Fischer til sölu á ebay Sautján stórir pappakassar eru til sölu á ebay og innihalda rúmlega eitt þúsund hluti sem eru eða voru í eigu skáksnillingsins Bobbys Fischers. Álitamál er hvort uppboðið sé lögmætt og hafa hópar hérlendis sem erlendis áhuga á að athuga hvort hægt verði að koma búslóðinni í hendur Fichers. 13.12.2005 19:02
Skipstjóri Hörpunnar var ölvaður þegar báturinn steytti á skeri Eigandi skemmtibátsins Hörpunnar sem steytti á Skarfaskeri á Viðeyjarsundi í haust og sökk með þeim afleiðingum að tveir fórust, var undir áhrifum áfengis þegar hann stýrði skipinu. Hann var einn við stjórn bátsins í ferðinni. Þetta er niðurstaða rannsóknar lögreglunnar á tildrögum slyssins. 13.12.2005 18:09
Krafist verður gæsluvarðhalds vegna kannabisræktunar Lögreglan í Árnessýslu hyggst fara fram á að maðurinn, sem handtekinn var í morgun eftir að um 150 kannabisplöntur fundust í sláturhúsi við Laugarás í Bláskógabyggð, verði úrskurðaður í gæsluvarðhald. Ekki hafa þó fengist upplýsingar um hversu lengi það á að vera. 13.12.2005 17:45
Nýbygging við heilsugæslustöð á Skagaströnd Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, undirritaði í dag verksamning vegna nýbyggingar Heilsugæslustöðvar á Skagaströnd. Við sama tækifæri tók ráðherrann fyrstu skóflustungu að nýbyggingunni, en húsið verður reist austan við hús dvalarheimilisins Sæborgar og tengist því með tengigangi. 13.12.2005 17:15
Flest börn ganga eða hjóla í skólann Tæplega 80 prósent grunnskólabarna fara fótgangandi eða á hjóli í skólann sinn að vetri til en einungis rúmlega 20 prósent með einkabíl eða í strætisvagni. Þetta kemur fram í símakönnun sem IMG Gallup gerði fyrir Umhverfissvið Reykjavíkurborgar á ferðamáta grunnskólabarna í síðasta mánuði. 13.12.2005 17:00
Skilorðsbundinn dómur vegna fíkniefnabrota Ungur karlmaður var í dag í Héraðsdómi Reykjaness dæmdur í eins mánaðar fangelsi, sem skilorðsbundið er til þriggja ára, fyrir fíkniefnabrot. Maðurinn var handtekinn þegar lögregla fann á honum nokkur grömm af marijúana eftir að hafa stöðvað bíl hans. Við leit heima hjá manninum fundust um 80 grömm af hassi, hátt 40 grömm af marijúana auk kannabisfræja. 13.12.2005 16:45
Í fangelsi fyrir umferðarlagabrot Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í dag karlmann í mánaðarfangelsi og til sviptingar ökuréttinda ævilangt fyrir tvö umferðalagabrot á þessu ári. Maðurinn var ákærður fyrir of hraðan akstur annars vegar og ölvunarakstur hins vegar en hann hefur áður komist í kast við lögin og verið dæmdur fyrir bæði þjófnaði og umferðarlagabrot. 13.12.2005 16:30
Stíga frekari skref í átt til gjaldfrjáls leikskóla Bæjarstjórn Seyðisfjarðar hefur samþykkt að stefna að því ap tryggja öllum börnum með lögheimili á Seyðisfirði á aldrinum eins árs til fimm ára fjögurra tíma dvöl á leikskóla bæjarins án endurgjalds, en þetta er liður í fjölskyldustefnu bæjarins. Þetta er annað skrefið í átt að gjaldfrjálsum leikskóla en fyrir um ári var leikskólinn gerður gjaldfrjáls í 4 tíma fyrir 5 ára börnin. 13.12.2005 16:15
Kristján skipaður ráðuneytisstjóri í iðnaðarráðuneyti Kristján Skarphéðinsson hefur verið skipaður ráðuneytisstjóri í iðnaðarráðuneytinu frá áramótum eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá ráðuneytinu. Kristján er 48 ára að aldri og hefur verið skrifstofustjóri í iðnaðarráðuneytinu frá árinu 1999 og settur ráðuneytisstjóri í iðnaðar- og viðskiptaráðuneytum frá 1. janúar 2003. 13.12.2005 16:00
Úrskurður óbyggðanefndar ekki felldur úr gildi Íslenska ríkið var í dag sýknað í Héraðsdómi Suðurlands af kröfum Prestsetrasjóðs um að úrskurður óbyggðanefndar vegna þjóðlenda í Hrunamannahreppi yrði felldur úr gildi að hluta til. 13.12.2005 15:35
Maður með hníf handtekinn í miðbænum í dag Lögreglan í Reykjavík handtók í dag mann á sextugsaldri í miðborginni sem gengið hafði á milli verslana með stóran hníf. Að sögn lögreglu ógnaði hann þó engum en setti hnífinn, sem var með um 15 sentímetra blaði, milli tanna sér. 13.12.2005 15:20
Fasteignaverð hefur hækkað mest á Vesturlandi Fasteignaverð hefur hækkað mest á Vesturlandi á undanförnum fimmtán árum. Verðið er þó hæst á höfuðborgarsvæðinu. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu um þróun fasteignaverðs hér á landi sem kynnt var í dag. 13.12.2005 15:09
Dæmdir til að greiða sekt vegna ummæla um Ástþór Illugi Jökulsson, fyrrverandi ritstjóri DV, og Mikael Torfason, ritstjóri DV, voru sýknaðir af miskabótakröfu Ástþórs Magnússonar vegna skrifa í DV en nokkur ummæli sem féllu um Ástþór dæmd ómerk. 13.12.2005 15:04
Gunnar lagður af stað af suðurpólnum Gunnar Egilsson, sem í gær bætti heimsmetið í að komast á suðurpólinn á sem stystum tíma ásamt breskum félögum sínum, er lagður af stað af pólnum aftur. Í samtali við vefinn Suðurland.net skömmu fyrir klukkan tíu í gærkvöldi sagði hann þá félaga vera búna að hvíla sig og að þeir væru að gera sig klára í heimferðina. 13.12.2005 14:49
Metaukning innflutnings Innflutningur hefur aldrei aukist jafn mikið á einum ársfjórðungi og á þriðja ársfjórðungi ársins 2005 en þá jókst hann um 32,2 prósent. Á sama tíma minnkaði útflutningur um 3,3 prósent. 13.12.2005 12:34
Slapp ótrúlega vel úr vinnuslysi Maður slapp nær ómeiddur þegar þrjú fiskikör féllu á hann ofan af vörubifreið sem hann vann við að afferma í Grindavík í gær. Víkurfréttir greina frá því að maðurinn hafi verið fluttur á slysadeild Landspítalans í Reykjavík en reyndist einungis hafa marist nokkuð og fékk að fara heim að skoðun lokinni. 13.12.2005 11:30
Hraðvirkasta leitarvélin fyrir flug Dohop.com opnaði í dag nýja gerð flugleitarvélar sem inniheldur 650 flugfélög, þar með talin 80 lággjaldafélög. Aðstandendur vefsins segja leitarvélina bæði ítarlegri og hraðvirkari en áður hefur þekkst. 13.12.2005 11:01
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur barn síns tíma Verzlunarmannafélag Reykjavíkur er barn síns tíma og á ekki lengur við - það er að segja, nafn félagsins. Þetta er mat stjórnenda VR og því hefur verið boðað til samkeppni um nýtt nafn. 13.12.2005 10:54
Fundu kannabisplöntur við húsleit Lögreglumenn frá Selfossi fundu í morgun á annað hundrað kannabisplöntur og talsvert af Marijuana við húsleit í uppsveitum Árnessýslu. Einn maður hefur verið handtekinn vegna málsins og eru lögreglumenn enn á vettvangi. Maðurinn mun áður hafa gerst bortlegur við lög. 13.12.2005 09:01
200 samningslausir sjómenn "Ég er nokkuð viss um að við erum eina stéttin í landinu sem hefur enga samninga og því dapra stöðu gagnvart okkar vinnuveitendum," segir Þorkell Pétursson, smábátasjómaður frá Skagaströnd. Hann er í hópi tæplega 200 sjómanna sem hafa enga samninga við útgerðir þær er eiga þá smábáta er þeir starfa á. 13.12.2005 08:00
Heimabankaræninginn viðurkennir verknaðinn Tæplega þrítugur karlmaður hefur viðurkennt að hafa stolið um tveimur milljónum króna úr heimabönkum í nokkrum færslum. Hann hefur hins vegar ekki viljað segja hvað hann gerði við peningana og hefur lögregla ekki haft uppi á þeim. 13.12.2005 07:58
Ekkert frekara grjóthrun í Óshlíð Ekkert frekara grjóthrun hefur orðið í Óshlíð á milli Ísafjarðar og Bolungarvíkur eftir að nokkur björg, tvö til fjögur tonn að þyngd, féllu niður á veginn á sjöunda tímanum í gærkvöldi. Svo vel vildi til að engin átti leið um veginn í sama mund og hrunið varð og hlutust því engin slys af. 13.12.2005 07:55
Handtekinn með fíkniefni eftir eltingarleik Ökumaður bíls, sem var á leið niður Ártúnsbrekkuna á sjötta tímanum í morgun, gaf allt í botn þegar hann sá lögreglubíl gefa sér stöðvunarmerki. Hann ók á miklum hraða niður í Mörkina þar sem hann nauðhemlaði, stökk út úr bílnum og tók til fótanna. Það gerðu lögreglumenn líka og hlupu hann uppi. 13.12.2005 07:42
Slagar upp í Kárahnjúka Áætlanir Orkuveitu Reykjavíkur gera ráð fyrir að árið 2011 slagi raforkuframleiðsla á Hengilssvæðinu á Hellisheiði upp í Kárahnjúkavirkjun. Gangi vonir tengdar djúpborun eftir má gera ráð fyrir töluvert meiri orku. 13.12.2005 07:30
Starfsmannaleiga innsigluð Fulltrúar frá sýslumanninum í Hafnarfirði stöðvuðu starfsemi starfsmannaleigunar Tveir plús einn þar í bæ vegna vangoldinna vörsluskatta. Um 60 til 70 manns starfa hjá fyrirtækinu. 13.12.2005 07:15
Heimabankaþjófur játar milljónastuld Maðurinn sem setið hefur í gæsluvarðhaldi vegna gruns um að hafa stolið úr heimabönkum hefur játað. Ekki hefur dregið úr notkun fólks á netbönkum þrátt fyrir umrædd þjófnaðarmál. 13.12.2005 07:00
Aldrei fleiri börn í Barnahús Það sem af er árinu 2005 hefur 227 börnum verið vísað í Barnahús vegna gruns um kynferðislegt ofbeldi gagnvart þeim. Er það metfjöldi ábendinga. Að sögn Vigdísar Erlendsdóttur, forstöðumanns Barnahúss er fyrra met, samanborið við sama árshluta, 210 börn á árinu 2003. 13.12.2005 06:45
Látinn þegar lögregla kom að Þrjátíu og átta ára karlmaður lést þegar bifreið sem hann ók lenti út af Svalbarðsstrandarvegi við bæinn Sætún í austanverðum Eyjafirði í gærmorgun. Eldur kom upp í bifreiðinni, sem hafnaði á hvolfi, en vegfarendum sem að slysinu komu tókst ekki að slökkva eldinn með handslökkvitæki. 13.12.2005 06:30
Lítil ástæða til bjartsýni "Þetta er að flestu leyti eins og við var að búast og við höfðum spáð fyrir um," segir Kristján Kristinsson hjá Hafrannsóknarstofnun. Frumniðurstöður úr stofnmælingu botnfiska á þessu hausti gefa litla ástæðu til bjartsýni. 13.12.2005 06:15
Hávaði í mötuneytum geti leitt til heyrnaskaða Hávaði í mötuneytum sumra grunnskóla í Reykjavík er slíkur að það getur leitt til þess að börn skaðist á heyrn. Nýjar hljómælingar sýna að mesti hávaði er töluvert yfir viðmiðunarmörkum Umhverfissviðs borgarinnar í að minnsta kosti einum skóla og nálægt mörkunum í tveimur öðrum. 12.12.2005 22:45
Stóraukinn vatnsútflutningur Útflutningur á drykkjarvatni er orðinn þriðjungi meiri en hann var á síðasta ári, og það þrátt fyrir að þrír síðustu mánuðir þessa árs séu ekki taldir með. 12.12.2005 20:45
Bruni í bílum sjaldgæfur Afar sjaldgæft er að kvikni í bílum við árekstra. Þegar slíkt gerist er það oftast nær tengt rafkerfi bílanna og byrja slökkviliðsmenn venjulega á því að aftengja rafkerfin þegar þeir koma á slysstað. 12.12.2005 20:35
Fær enn martröð þrem vikum eftir slysið Særún Sveinsdóttir Williams, sem missti báða fætur í bílslysi í Bandaríkjunum fyrir þremur vikum, fær enn martraðir eftir slysið. Hún liggur alvarlega slösuð á sjúkrahúsi, en segist afar þakklát fyrir að vera á lífi. Hafin er fjársöfnun til handa þessari einstæðu þriggja barna móður. 12.12.2005 20:30
Ráðherra vonar að málið fjúki í burtu Árni Magnússon, félagsmálaráðherra, mun ekki segja af sér vegna dóms hæstarréttar sem féll fyrir helgi og neitar að ræða málið efnislega. Ástráður Haraldsson, lögmaður Valgerðar Bjarnadóttur, segir Árna einbeita sér að því að drepa málinu á dreif og fá það til að snúast um eitthvað annað í þeirri von að tali hann nógu mynduglega og með nógu djúpum tóni þá muni þetta mál fjúka í burtu. 12.12.2005 20:13
Réðum illa við eldinn ef kviknaði í í Örfirisey Olíubirgðastöðin fyrir norðan Lundúnir sem stendur í ljósum logum er af svipaðri stærð og olíubirgðastöðin í Örfirisey. Slökkviliðsstjóri höfuðborgarsvæðisins segir ekki nægar froðubirgðir til í landinu til þess að slökkva eld eins og þann sem logar í Bretlandi. 12.12.2005 20:00
Jólasveinninn flaug í bæinn Jólasveinninn kom fljúgandi í bæinn með þyrlu Landhelgisgæslunnar síðasta laugardag þegar hann kom til að taka þátt í jólaballi gæslunnar. Með honum í för voru þau Birta og Bárður úr Stundinni okkar í Sjónvarpinu. 12.12.2005 20:00