Innlent

Starfshópur skipaður um aðgerðaráætlunina "Einfaldara Ísland"

MYND/Vilhelm

Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra hefur skipað starfshóp með fulltrúum stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins til að undirbúa aðgerðaráætlunina „Einfaldara Ísland." Meginmarkmið áætlunarinnar, sem kynnt var í stefnuræðu forsætisráðherra nú í haust, verður einföldun laga og reglna,ekki síst til þess að auka samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs. Erstarfshópnum ætlað að gera tillögur um hvernig best sé að standa að slíkri einföldun á meðan ábyrgð á því að hrinda áætluninni sjálfri íframkvæmd verður fyrst og fremst verkefni einstakra ráðuneyta.

Formaður starfshópsins er Páll Þórhallsson lögfræðingur í forsætisráðuneytinu. Aðrir í starfshópnum eru Anna Guðrún Björnsdóttir sviðsstjóri hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Ari Edwald f ramkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, Baldur Pétursson skrifstofustjóri í iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu, Gylfi Arnbjörnsson framkvæmdastjóri Alþýðusambands Íslands, Ingvi Már Pétursson lögfræðingur í fjármálaráðuneytinu, Katrín Pétursdóttir framkvæmdastjóri Lýsis hf., Kristinn Hugason stjórnsýslufræðingur í sjávarútvegsráðuneytinu og Sigríður A. Arnardóttir skrifstofustjóri í umhverfisráðuneytinu.

Starfshópnum er ætlað að skila tillögum fyrir mitt ár 2006. Starfshópurinn verður ólaunaður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×