Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Má búast við miklum vindhviðum Búast má við hviðum allt að 30-40 m/s á Kjalarnesi og undir Hafnarfalli í kvöld og fram á nóttina, eftir því sem Veðurstofan segir. Einnig má gera ráð fyrir miklum vindhviðum undir Eyjafjöllum og í Öræfasveit. Versnandi veður á fjallvegum um vestan- og norðvestanvert landið seint í kvöld, hríðarveður og slæmt skyggni verður fram á nóttina um leið og skil lægðar ganga yfir. 3.2.2012 22:23
Of hraður akstur varð ráðherra að falli Chris Huhne, orkumálaráðherra í Bretlandi, ætlar að láta af embætti vegna ásakana um að hann hafi truflað framgang réttvísinnar. Huhne og eiginkona hans voru stöðvuð fyrir of hraðan akstur árið 2003. Hann er talinn hafa ekið bílnum en fullyrt eftir að þau voru stöðvuð að það hafi verið eiginkona hans sem hafi verið á bakvið stýri. Huhne segist vera saklaus af ásökununum en hann ætli að láta af embætti til að skapa ró um það. Ed Davey viðskiptaráðherra tekur ráðherraembættið yfir en Nick Clegg aðstoðarforsætisráðherra Bretlands segist vonast til þess að Huhne eigi afturkvæmt í ríkisstjórnina. 3.2.2012 21:27
Vilja skattaívilnanir fyrir þá sem spara fyrir íbúðarkaupum Níu þingmenn á Alþingi lögðu fram frumvarp í dag þar sem gert er ráð fyrir sérstökum skattívilnunum til handa þeim sem eru að spara vegna húsnæðisöflunar. Frumvarpið er hugsað til viðbótar öðrum opinberum úrræðum sem auðvelda eiga fólki að eignast húsnæði, til dæmis vaxtabótakerfi og Íbúðalánasjóði. 3.2.2012 20:07
VIll að PIP fyllingarnar verði fjarlægðar úr öllum konum Geir Gunnlaugsson landlæknir telur ráðlegt að PIP brjóstafyllingar verði fjarlægðar úr öllum konum sem þær bera. Þetta er niðurstaða hans eftir að Vísindanefnd Evrópusambandsins um nýjar og vaxandi heilsuvár gaf út skýrslu um PIP púðana í gær. Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra segir mat landlæknis byggt á faglegum forsendum og að velferðarráðuneytið muni bregðast við í samræmi við þær ábendingar sem þar komi fram. Unnið verði að skipulagningu viðbragða og framkvæmd aðgerða á næstu dögum og muni ráðherra taka málið fyrir á fundi ríkisstjórnar næstkomandi þriðjudag. 3.2.2012 19:46
Orkusalan vefur ársins á SVEF-verðlaununum Orkusalan.is var rétt í þessu valinn besti íslenski vefurinn á Íslensku vefverðlaunum. Jón Gnarr, borgarstjóri Reykavíkur, afhenti verðlaunin. Samtök vefiðnaðarins standa að verðlaununum og var athöfnin haldin í Tjarnarbíói. Veittar voru viðurkenningar fyrir framúrskarandi vefi í 11 flokkum. Alls bárust yfir 100 tilnefningar til verðlaunanna og sá dómnefnd um að stilla upp í tilnefningar til verðlaunanna sem félagsmenn kusu síðan um. Þetta er í 11. skipti sem Íslensku vefverðlaunin eru haldin. 3.2.2012 19:00
Fundu á annað hundrað grömm af kannabisefnum í Herjólfi Lögreglumenn fundu um 150 - 200 grömm af maríhúana í farangursgeymslu bíls í Herjólfi þegar hann var að fara frá Þorlákshöfn um hálffjögur í dag. Ökumaður bílsins reyndist vera undir áhrifum fíkniefna og að auki hafði hann verið sviptur ökuleyfi. Það var fíkniefnahundurinn Luna sem fann fíkniefnin. Farþegi í bifreiðinni, 22 ára gamall karlmaður og eigandi hennar, viðurkenndi að eiga efnin. Hann sagði þau ætluð til eigin nota. 3.2.2012 17:29
Hnífamaður í gæsluvarðhald Héraðsdómur Reykjaness féllst á gæsluvarðhaldsúrskurð yfir karlmanni um tvítugt sem er grunaður um að hafa stungið karlmann á fertugsaldrinum í síðuna með hníf. Maðurinn sem var stunginn þurfti að gangast undir aðgerð en hann var hætt kominn. Hann er hinsvegar úr lífshættu núna. 3.2.2012 16:40
Fæddi sjö kílóa barn Ljósmæðrum og læknum í litlum bæ í norður Kazakstan brá heldur í brún þegar að risavaxið barn kom í heiminn í morgun. Barnið vó hvorki meira né minna en sjö kíló en ný fædd börn eru yfirleitt í kringum þrjú og þrjú og hálft kíló. 3.2.2012 15:32
Eldfjall með flestar tilnefningar til Eddunnar Eldfjall hlaut flestar tilnefningar til Eddunnar í ár eða fjórtán alls. Þá hlaut Á annan veg ellefu tilnefningar. Báðar myndirnar eru meðal annars tilnefndar sem bíómyndir ársins, fyrir leikstjórn, handrit og svo eru aðalleikarar myndanna tilnefndir sem leikarar ársins. 3.2.2012 14:57
Jafn margir á nagladekkjum og í fyrra Hlutfall nagladekkja undir bifreiðum er svipað í janúar 2012 og það var á sama tíma í fyrra eða 33 prósent á móti 67 prósent á öðrum dekkjum. Færðin í höfuðborginni reyndist því ekki hvati fyrir ökumenn til að skipta yfir á negld dekk, segir á vef Reykjavíkurborgar. Árið 2009 var hlutfall negldra dekkja í janúar mun hærra eða 41% og árið 2008 var það 41,8% í janúar. Áfram má því gera ráð fyrir að nagladekkjum fækki á götum borgarinnar en þau skapa loft- og hljóðmengun í borginni. 3.2.2012 16:37
Einn ölvaður og tveir dópaðir undir stýri Tæplega 70 ökumenn voru stöðvaðir í miðborginni í gærkvöld og nótt í umferðareftirliti lögreglunnar. Einn þeirra, karl á fimmtugsaldri, reyndist ölvaður við stýrið. Á sama tímabili voru tveir aðrir karlar, annar á þrítugsaldri en hinn á fertugsaldri, teknir við akstur annars staðar í borginni en þeir voru báðir undir áhrifum fíkniefna. Þá var 18 ára pilti gert að hætta akstri í Árbæ síðdegis í gær en sá hafði þegar verið sviptur ökuleyfi. 3.2.2012 15:55
Tæplega 800 hvítir Kangoo í umferð Alls eru 759 hvítir Renault Kangoo bílar skráðir hjá Umferðarstofu en lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti á dögunum eftir karlmanni og hvítri sendibifreið af gerðinni Kangoo í tengslum við rannsókn á sprengjunni sem fannst á Hverfsigötu á þriðjudagsmorgun. 3.2.2012 14:46
Hæstiréttur staðfestir gæsluvarðhald Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir Sævari Sverrissyni, karlmanni á sextugsaldri sem ákærður hefur verið fyrir að hafa staðið að innflutningi á miklu magni af sterum og fíkniefnum til landsins. Hann var úrskurðaður í gæsluvarðhald til 28. febrúar næstkomandi, eða þar til dómur fellur í máli hans. Sævar hefur setið í gæsluvarðhaldi frá 11. október á síðasta ári 3.2.2012 13:11
Kærleikar í miðborginni á morgun Það er langur laugardagur í miðbæ Reykjavíkur á morgun eins og alla fyrstu laugardaga hvers mánaðar. Þá eru verslanir opnar lengur en ella og ýmsir viðburðir í boði. Á morgun verður ölli tjaldað til þefar "Kærleikar í miðborginni“ fara fram. 3.2.2012 13:10
Einu matvöruversluninni í Vogum lokað Einu matvöruversluninni í Vogum á Vatnsleysisströnd hefur verið lokað samkvæmt bæjarblaðinu Hafnarfjörðu, Álftanes, Vogar. 3.2.2012 13:04
Stjórnvöld fara yfir skýrslu um PIP brjóstafyllingar Íslensk heilbrigðisyfirvöld fjalla nú um niðurstöður sérfræðinganefndar um PIP brjóstafyllingar til að meta hvort þær gefi tilefni til endurskoðunar á aðgerðum stjórnvalda sem kynntar voru 10. janúar síðastliðinn. 3.2.2012 12:42
Hundrað manns fastir um borð í ferju Óttast er að yfir hundrað manns séu fastir um borð í ferju sem sökk undan ströndum Nýju Gíneu í aftakaveðri í gær. 3.2.2012 12:32
Skutu þrjá mótmælendur til bana í Egyptalandi Egypska lögreglan skaut þrjá til bana í mótmælum sem haldin voru víðsvegar um Egyptaland í gær og nótt í kjölfar afdrifaríks fótboltaleiks þar í landi. Fjöldi liggur særður eftir átök við lögreglu. 3.2.2012 12:10
Fundu kannabisplöntur á eyðibýli Lögreglan á Blönduósi, ásamt lögreglunni á Akureyri, fundu 34 kannabisplöntur á eyðibýli á Skaga síðasta þriðjudag. 3.2.2012 12:01
Sautján daga baráttu um myndun nýs meirihluta gæti lokið um helgina Sautján daga baráttu við að koma saman nýjum meirihluta í Kópavogi gæti lokið um helgina. Oddvitar Sjálfstæðisflokks, Lista Kópavogsbúa og Framsóknar hittast til að vinna að málefnasamningi eftir hádegi. 3.2.2012 12:01
Dýrara fyrir eldri borgara að fá akstur - Úr 350 krónum í 1000 krónur "Við erum auðvitað ekki ánægð með þetta," segir Sigurður Einarsson, framkvæmdastjóri Félags eldri borgara. Um áramótin tóku í gildi hækkanir á þjónustu Reykjavíkurborgar við eldri borgara og mótmælir félagið þeim harðlega. 3.2.2012 11:27
Maðurinn úr lífshættu Karlmaður um fertugt, sem stunginn var nokkrum djúpum stungum í kvið og síðu í nótt er úr lífshættu eftir aðgerð á Landsspítalanum og liggur nú á gjörgæsludeild. 3.2.2012 10:55
Bruggari handtekinn á Vestfjörðum - ætlaði að selja norðanmegin Lögreglan á Vestfjörðum framkvæmdi húsleit hjá bruggara á miðvikudaginn síðasta. Við húsleitina fannst ólöglega tilbúið áfengi og áhöld til þess að framleiða bruggið. 3.2.2012 09:46
Vilja lækka vaskinn á barnaföt Þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa lagt fram á þingi frumvarp til laga sem myndi lækka virðisaukaskatt á barnafötum og öðrum nauðsynjavörum tengdum barnauppeldi úr 25,5 prósentum í sjö prósent. Í greinargerð með frumvarpinu segir að þegar til lengri tíma sé litið beri að stefna almennt að lækkun virðisaukaskatt þá komi núverandi aðstæður í ríkisbúskapnum í veg fyrir að því markmiði verði náð á kjörtímabilinu. 3.2.2012 09:38
Fundu 400 e-töflur í húsleit á Akureyri Í gær framkvæmdi lögreglan á Akureyri húsleit vegna gruns um fíkniefnamisferli. Við leitina fundust í íbúð rúmlega 400 e-töflur. 3.2.2012 09:14
Harður árekstur á Breiðholtsbraut Ökumaður smábíls slapp lítið meiddur eftir að hafa lent í hörðum árekstir við jeppa á gatnamótum Breiðholtsbrautar og Stekkjabakka rétt fyrir miðnætti. 3.2.2012 07:27
Trump lýsir yfir stuðningi við Romney Hinn litríki viðskiptamaður Donald Trump hefur lýst yfir stuðningi sínum við Mitt Romney í baráttunni um hver verði valinn sem forsetaefni Repúblikanaflokksins í haust. 3.2.2012 07:21
Tveir skotnir til bana í Egyptalandi Tveir voru skotnir til bana og fleiri hundruð hafa særst í miklum mótmælum sem haldin voru víða í Egyptalandi í gærkvöldi og nótt. 3.2.2012 07:11
Leiguþyrla gæslunnar til landsins í dag Þyrlan, sem Landhelgisgæslan hefur tekið á leigu á meðan TF LÍF er í stórri skoðun ytra, er væntanleg til landsins í dag. 3.2.2012 07:09
Enn er hundrað saknað úr ferjuslysi við Papua Nýju Gíneu Enn er um hundrað manns saknað úr ferjuslysinu við Papua Nýju Gíneu. Óttast er að þetta fólk hafi lokast inni í ferjunni þegar hún sökk í gær á siglingu sinni milli bæjanna Kimbe og Lae. 3.2.2012 07:05
Fundu stór krabbadýr á 7 kílómetra dýpi Vísindamenn hafa fundið stór krabbadýr á 7 kílómetra dýpi undan ströndum Nýja Sjáland. Krabbar þessir eru kallaðir ofurrisar því þeir eru tífalt stærri en þeir krabbar af sömu tegund sem fundist hafa áður í heiminum. 3.2.2012 07:03
Vill auka öryggi í smábátum Ásbjörn Óttarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hvetur Ögmund Jónasson innanríkisráðherra til þess að lögleiða björgunarflotbúninga um borð í öllum skipum. Í dag er bátum undir tólf metrum ekki gert að hafa slíka búninga um borð. Ögmundur ætlar að beita sér fyrir því að málið verði skoðað í ráðuneytinu en tillaga þessa efnis hefur legið í ráðuneytinu árum saman. 3.2.2012 07:00
Karlmaður illa haldinn eftir hnífsstungu í nótt Karlmaður á fertugsaldri gengst nú undir aðgerð á Landsspítalanum eftir hnífstungu, sem honum var veitt í Kópavogi á fjórða tímanum í nótt. 3.2.2012 06:59
Fjórðungur spörfugla í Danmörku frjósa í hel Hinn mikli kuldi í Danmörku þessa vikuna hefur haft þær afleiðingar að um 25% af öllum spörfuglum landsins hafa frosið í hel. 3.2.2012 06:57
Dönsk fegurðardrottning fyrir norskan hæstarétt Norski bærinn Sandefjord hefur ákveðið að áfrýja til hæstaréttar landsins máli sem bærinn tapaði í héraðsdómi gegn dönsku fegurðardrottningunni Linu Kruuse Nilsen. 3.2.2012 06:53
Bretar senda eitt öflugasta herskip sitt til Falklandseyja Spennan mili Bretlands og Argentínu vegna Falklandseyja fer stigvaxandi. Bretar hafa ákveðið að senda eitt öflugasta og fullkomnasta herskip sitt til Falklandseyja. 3.2.2012 06:49
Lögreglu og her kennt um Margir Egyptar, jafnt þingmenn sem almenningur, kenna bæði hernum og lögreglunni um það hvernig fór á fótboltavelli í Port Said á fimmtudagskvöld, þegar 74 manns létu lífið í troðningum og uppþoti. 3.2.2012 06:00
Á annað hundrað látnir í frosti Vetrarhörkurnar í Evrópu síðustu daga hafa kostað hátt á annað hundrað manns lífið. Síðast í gær létust að minnsta kosti tuttugu manns í Úkraínu, níu í Póllandi, átta í Rúmeníu, einn í Serbíu og einn í Tékklandi. 3.2.2012 05:00
Fært á hjólastól yfir Markarfljót Áhugahópurinn Vinir Þórsmerkur hefur fengið heimild í skipulagsnefnd Rangárþings til að vinna tillögu að breyttu deiliskipulagi vegna byggingar göngubrúar yfir Markarfljót á móts við Húsadal í Þórsmörk. 3.2.2012 05:00
Eðlilegt að hlera við rannsókn á hruninu Ríkir almannahagsmunir eru fyrir því að upplýsa brot í aðdraganda bankahrunsins og beita til þess hlerunum segir ráðgjafi sérstaks saksóknara. Formaður Lögmannafélagsins segir dómstóla túlka almannahagsmuni of vítt. 3.2.2012 03:15
Dóttir klippir hárið á krabbameinssjúkri móður Ótrúlegt myndband sem sýnir unga dóttur klippa hárið af móður sinni hefur vakið mikla athygli á veraldarvefnum. 2.2.2012 22:36
Ekki útilokað að Guðrún Páls verði áfram bæjarstjóri Sjálfstæðisflokkur, Framsóknarflokkur og Listi Kópavogsbúa hafa hafið viðræður um myndun meirihluta í bæjarstjórn Kópavogs. Ekki er útilokað að Guðrún Pálsdóttir verði áfram bæjarstjóri í skjóli nýs meirihluta. Gunnar I. Birgisson, fyrrverandi bæjarstjóri, gæti komist í lykilstöðu í eins manns meirihluta í bænum. 2.2.2012 18:54
Vaka sigraði í Stúdentaráðskosningum Vaka, félag lýðræðissinnaðra stúdenta, fór með sigur úr býtum í stúdentaráðskosningum Háskóla Íslands. Á kjörskrá voru 15.203 og var heildarfjöldi atkvæða 4.807. 2.2.2012 23:39
Vill samstarf allra flokka í bæjarstjórn Hjálmar Hjálmarsson, oddviti Næst Besta Flokksins í Kópavogi, býst ekki við því að meirihluti Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Lista Kópavogsbúa sé starfhæfur. Ómögulegt sé að mynda starfhæfan meirihluta. 2.2.2012 22:58
Allir í bænum unnu í happdrætti nema einn maður Spænskur maður situr eftir með sárt ennið eftir að allir bæjarbúar í heimabæ hans unnu í happdrætti nema hann. Þau skiptu á milli sín 600 milljónum evra. 2.2.2012 22:56