Innlent

Sautján daga baráttu um myndun nýs meirihluta gæti lokið um helgina

Kópavogur
Kópavogur
Sautján daga baráttu við að koma saman nýjum meirihluta í Kópavogi gæti lokið um helgina. Oddvitar Sjálfstæðisflokks, Lista Kópavogsbúa og Framsóknar hittast til að vinna að málefnasamningi eftir hádegi.

Hópurinn hittist í gær og ræddi saman en að sögn Ármanns Kr. Ólafssonar, oddvita Sjálfstæðismanna í Kópavogi, verður fyrsti formlegi málefnafundur flokkanna eftir hádegi í dag. Hann vildi ekkert tjá sig efnislega um málefnavinnuna sem fram undan er, en sagði í samtali við fréttastofu í morgun að æskilegt væri að klára myndun nýs meirihluta nú um helgina.

Meirihluti Samfylkingar, Næst besta flokksins og Lista Kópavogsbúa sprakk með nokkrum látum fyrir röskum hálfum mánuði og það hefur ekki verið heiglum hent að raða saman nýjum meirihluta. Ellefu bæjarfulltrúar eru í bæjarstjórn Kópavogs og eru þeir fulltrúar sex flokka.

Stærstir eru Sjálfstæðisflokkur með fjóra menn en Samfylking þrjá- þeir voru því einu tveir flokkarnir sem gátu myndað saman meirihluta.

Í fyrstu gengu þeir tveir flokkar ásamt Vinstri grænum til meirihlutaviðræðna en upp úr þeim slitnaði á miðvikudaginn. Enda ljóst, samkvæmt heimildum fréttastofu, að Sjálfstæðismenn gengu ekki samtaka til þeirra viðræðna þar sem persónulegar væringar munu vera milli Guðríðar Arnardóttur oddvita Samfylkingar og Gunnars I. Birgissonar fyrrverandi bæjarstjóra.

Hann mun hafa lagst gegn samstarfi við Samfylkingu og því hafi í raun ekki verið annað í stöðunni fyrir oddvita Sjálfstæðisflokks en að hefja viðræður við litlu flokkana í bæjarstjórn. Hvað út úr þeim viðræðum kemur ætti að skýrast um helgina.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×