Erlent

Fæddi sjö kílóa barn

Sjö kíló takk fyrir.
Sjö kíló takk fyrir.
Ljósmæðrum og læknum í litlum bæ í norður Kazakstan brá heldur í brún þegar að risavaxið barn kom í heiminn í morgun. Barnið vó hvorki meira né minna en sjö kíló en ný fædd börn eru yfirleitt í kringum þrjú og þrjú og hálft kíló.

Móður og barni heilsast vel og sagði læknirinn við fjölmiðla í landinu að þetta sé stærsta barn sem hann hefur tekið á móti.

Talið er að eitt af hverjum 1500 börnum sem fæðast í heiminum séu yfir fimm kíló, en að börn nái sjö kílóum er mjög óalgengt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×