Erlent

Lögreglu og her kennt um

Þriggja daga þjóðarsorg var lýst yfir í gær í Egyptalandi vegna atburðanna í Port Said. nordicphotos/AFP
Þriggja daga þjóðarsorg var lýst yfir í gær í Egyptalandi vegna atburðanna í Port Said. nordicphotos/AFP
Margir Egyptar, jafnt þingmenn sem almenningur, kenna bæði hernum og lögreglunni um það hvernig fór á fótboltavelli í Port Said á fimmtudagskvöld, þegar 74 manns létu lífið í troðningum og uppþoti.

Kamal el-Ganzouri forsætisráðherra kallaði þjóðþing landsins saman á neyðarfund. Hann sagðist hafa rekið stjórn knattspyrnusambands Egyptalands. Einnig hafi ríkisstjórinn í Port Said og lögreglustjórinn þar sagt af sér.

Ólátin hófust með því að stuðningsmenn tveggja liða tóku að berjast með hnífum, kylfum og grjóti.- gb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×