Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Föt fulltrúa farþega Costa Concordia voru í káetu skipstjórans Björgunarmenn hafa fundið kjóla, nærföt og snyrtivörur í káetu skipstjóra skemmtiferðaskipsins Costa Concordia sem strandaði undan vesturströnd Ítalíu í síðasta mánuði. 2.2.2012 20:44
Óhugnanlegir skúlptúrar birtast í stórborgum víða um heim Myndlistarmaður hefur komið fyrir óhefðbundnum skúlptúrum í stórborgum víða um heim. Verkin hafa vakið gríðarlega athygli og hafa nokkrir vegfarendur jafnvel haft samband við lögregluyfirvöld eftir að hafa séð listaverkin. 2.2.2012 20:17
Snjallsími úr bambusreyr væntanlegur Hugmyndaríkur námsmaður í Bretlandi hefur hannað snjallsíma úr bambusreyr. Nokkrir snjallsímaframleiðendur reyna nú að tryggja sér einkarétt á uppfinningunni. 2.2.2012 19:49
Enn leitað að manni og bíl vegna sprengjunnar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar enn að karlmanni og hvítri sendibifreið (Renault Kangoo) í tengslum við rannsókn hennar á sprengjunni sem fannst neðst á Hverfisgötu í Reykjavík á þriðjudagsmorgun. Maðurinn var klæddur í víðar, bláar gallabuxur (dökkar) og var með lyklakippu hangandi í buxunum. Hann var í dökkri úlpu og mögulega í hettupeysu innan undir. Maðurinn er þéttvaxinn og var þunglamalegur í hreyfingum. Óvíst er með aldur hans en líklega er maðurinn á miðjum aldri. Hann er talinn vera meðalmaður á hæð. 2.2.2012 17:52
Ekkju greiddar bætur þrátt fyrir að eiginmaðurinn reykti Tryggingafélagið Okkar líftryggingar hf., var dæmt til þess að greiða ekkju fullar bætur vegna líftryggingar eiginmanns hennar sem lést árið 2010. Tryggingafélagið neitaði í fyrstu að greiða trygginguna og hélt því fram að hinn látni hefði vanrækt upplýsingaskyldu sína gagnvart félaginu í sviksamlegum tilgangi þegar hann svaraði því til, þegar hann keypti trygginguna, að hann reykti ekki. 2.2.2012 13:19
Segir viðræðurnar hafa gengið vel Ómar Stefánsson, oddviti framsóknarmanna í bæjarstjórn Kópavogs, segir ekkert liggja fyrir um það hver taki við bæjarstjórnarstólnum í Kópavogi. Oddvitar Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Lista Kópavogs hafa setið í dag að meirihlutaviðræðum. "Mín upplifun var sú að þetta gekk vel,“ segir Ómar. Hann vill ekkert segja til um það hversu langan tíma meirihlutaviðræðurnar gætu tekið. "Við skulum bara sjá hvað morgundagurinn ber í skauti sér,“ segir hann. Ómar segir að einungis oddvitar flokkanna hafi komið að viðræðunum í dag. Hann vill ekkert segja um hverjir gætu bæst inn í þær samningaviðræður. 2.2.2012 20:24
Segir útspil Já vera klúður Sérfræðingur í almannatengslum segir útspil Já vera klúður að óþörfu, en fyrirtækið hefur látið hanna límmiða til að líma yfir forsíðu símaskrár síðasta árs en á henni er mynd af Agli Einarssyni, öðru nafni Gillz, og fimleikastúlkum úr Gerplu. 2.2.2012 19:39
Mottumars á næsta leiti Nú er fullt tilefni fyrir karlmenn til þess að fara að huga að skeggsöfnun því Mottumars verður hleypt formlega af stokkunum 1. mars næstkomandi. Úrslitin ráðast ekki fyrr en mánuði seinna, eða í lok mars. Þetta er í fimmta sinn sem Krabbameinsfélagið stendur fyrir sérstöku átaki um karlmenn og krabbamein en í þriðja sinn sem karlmenn eru hvattir til að safna yfirvararskeggi og styrktaráheitum. 2.2.2012 18:55
Hætta á að aldraðir einangrist Aldraðir hafa sumir hverjir ekki efni á að taka þátt í félagsstarfi. Þetta segir tæplega sjötug kona en sjálf átti hún tæpar sautján þúsund krónur til að lifa af eftir að hafa greitt reikningana í janúar. Um áramótin hækkaði Reykjavíkurborg verð á þjónustu við aldraða. Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni hefur mótmælt þessum hækkunum og segir þær koma illa við aldraða. Sigurður Einarsson, framkvæmdastjóri Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni, segir mikið um að fólk hringi á skrifstofuna og beri sig illa. Hann segir að þó ekki sé um háar upphæðir að ræða safnist þær saman. Verð á máltíðum hækkaði til að mynda úr 550 kr. í 610 kr. Kaffi hækkaði úr 100 kr. í 150 kr. Námskeiðisgjöld og brennslugjald fyrir leir og postulín hækkaði úr 200 kr. í 250 kr. og akstursgjald fer í mörgum tilfellum úr 350 krónum í 1.000 krónur. Sigurður óttast að hækkanirnar komi til með að draga úr þátttöku aldraðra í félagsstarfi. ,, Þetta gæti aukið einangrun fólks. Að það sæki síður félagsstarf. Farið síður út úr húsi og stefna Reykjavíkurborgar undanfarin ár hefur einmitt verið að koma í veg fyrir að fólk einangrist heima hjá sér að það sæki meira út". Eva Ólöf Hjaltadóttir verður sjötug á árinu. Hún getur nú sjaldnar en áður tekið þátt í félagsstarfi vegna kostnaðar. Ellilífeyrir hennar er 144 þúsund krónur á mánuði eftir skatta. Tæpar 90 þúsund krónur fara í leigu og svo þarf hún einnig að greiða hita, rafmagn og aðra reikninga. ,, Í janúar átti ég 16.700 krónur eftir þegar ég var búin að borga allt". Fjöldi íbúða fyrir aldraða er í sama húsi og félagsmiðstöðin og hafa fleiri í blokkinni dregið úr þátttöku í félagsstarfinu. ,, Það hefur hækkað það mikið að eiginlega sjáum við ekki fólkið sem á heima í húsinu nema endrum og eins", segir Eva. 2.2.2012 18:30
Ólafur Ragnar og Al Gore skoða mörgæsir og seli Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Dorrit Moussaieff forsetafrú, eru enn stödd á Suðurskautslandinu ásamt fríðu föruneyti. Forsetaembættið hefur nú birt fleiri myndir úr ferðinni. 2.2.2012 16:41
Landhelgisgæslan leigir þyrlu - bilaði á leiðinni heim Landhelgisgæslan hefur tekið þyrluna TF-SYN á leigu frá Noregi en þyrlan bilaði á leiðinni til Íslands. Þyrlan þurfti að lenda í Færeyjum. Við skoðun á vélinni í Færeyjum kom í ljós leki í vökvakerfi á aðalgírboxi sem verið er að kanna nánar. 2.2.2012 16:16
Kannast ekki við nýjan meirihluta í Kópavogi "Þú ert að segja mér fréttir,“ segir Rannveig Ásgeirsdóttir, bæjarfulltrúi Lista Kópavogsbúa, í samtali við Vísi nú fyrir stundu. Á vef Morgunblaðsins er fullyrt að búið sé að mynda nýja meirihluta í bænum með fulltrúum Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Lista Kópavogsbúa. 2.2.2012 15:36
Öllu starfsfólki Herjólfs sagt upp Öllu starfsfólki Herjólfs hefur verið sagt upp eða um fjörtíu manns. Þetta kemur fram á vef Eyjafrétta í dag. 2.2.2012 15:22
Stöðvuðu áfengissölu á tveimur veitingahúsum í nótt Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði sölu áfengis á tveimur veitingahúsum í miðborg Reykjavíkur í nótt, en á öðru þeirra voru gestir staðarins jafnframt að bera með sér áfengi út af staðnum. 2.2.2012 15:16
Sérstakur saksóknari með aðgerðir hjá KPMG Fulltrúar á vegum embættis Sérstaks saksóknara fóru inni í endurskoðandafyrirtækið KPMG nú fyrir skömmu. Samkvæmt upplýsingum frá Sigurði Jónssyni, framkvæmdastjóri KPMG komu fulltrúar sérstaks saksóknara inni í fyrirtækið og óskuðu eftir upplýsingum tengdum Milestone. 2.2.2012 14:11
Fötluð kona þurfti að fara af leiksýningu - engin þjónusta eftir ellefu Í gærkvöldi þurfti kona í hjólastól að yfirgefa sýningu í leikhúsinu áður en henni lauk. Útskýring sem hún gaf var sú að félagsþjónustan býður ekki upp á að sækja fólk eftir klukkan korter í ellefu á kvöldin. 2.2.2012 13:41
Seldist upp á Jethro Tull á sjö mínútum Miðar á tónleika Jethro Tull í Hörpu þann 21. júní næstkomandi seldust upp á aðeins sjö mínútum en miðasala hófst á hádegi í dag. Í kjölfar þessara kröftugu viðbragða hefur verið ákveðið að halda aukatónleika daginn eftir, 22. júní, og hefst sala á þá nú klukkan 14 í dag í Hörpu og á midi.is. 2.2.2012 13:34
Deilt um minnsta mann í heimi - segist vera fjórum sentimetrum minni Nú deila menn um hvort hinn filipeyski Junrey Balawing sé í raun minnsti maður í heimi. Rúmlega sjötugur Nepali heldur því nefnilega fram að hann sé fimmtíu og sex sentimetra hár, eða tæpum fjórum sentimetrum minni en Junrey. 2.2.2012 12:45
Kemur til greina að rannsaka endurreisn bankanna og Icesave Forsætisráðherra segir það vel koma til greina að láta rannsaka endurreisn bankana og ferli Icesave málsins. Þetta kom fram í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í morgun. 2.2.2012 12:30
Bensínsveiflur öllum til óþurftar Full ástæða er til að hafa áhyggjur af hækkandi bensínverði að mati Helga Hjörvars formanns efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis. Hann telur mörk fyrir því hversu langt hægt er að ganga langt í sköttum á eldsneyti en nefnd hans ætlar að skoða málið á næstunni. 2.2.2012 12:15
Friðjón ekki beðinn afsökunar "Þeir sáu ekki sóma sinn í að biðjast afsökunar,“ segir Heiðar Ásberg Atlason, verjandi Friðjóns Þórðarsonar, sem hefur stefnt ríkinu vegna ásakana um peningaþvætti. 2.2.2012 11:17
Útgefandi símaskrárinnar býður fólki að líma yfir Egil "Við höfum útbúið tvær tegundir af límmiðum fyrir þá sem þess óska," segir Guðrún María Guðmundsdóttir, ritstjóri og sviðsstjóri hjá Já. 2.2.2012 10:00
4 ára fangelsi fyrir hrottalega nauðgun við Reykjavíkurflugvöll Tveir erlendir karlmenn voru dæmdir í fjögurra ára fangelsi fyrir hrottalega nauðgun við Reykjavíkurflugvöll í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Þá var mönnunum gert að greiða fórnarlambinu 1200 þúsund krónur í miskabætur. 2.2.2012 09:52
Sami maðurinn framdi þrjú ofbeldisfull rán í miðborginni Þrjú rán voru framin í miðborginni í eftirmiðdaginn í gær. Talið er að um sama aðila hafi verið að ræða í öll skipti en grunaði er nú í haldi, þrítugur karlmaður og lögreglu vel kunnugur vegna fjölda afbrota. 2.2.2012 09:44
Þjóðarsorg í Egyptalandi vegna óeirðanna Búið er að lýsa yfir þriggja daga þjóðarsorg í Egyptalandi vegna óeirðanna sem brutust út eftir fótboltaleik í borginni Port Said í gær. 2.2.2012 09:25
Fundu kyrkislöngu við húsleit Enn koma skriðdýr við sögu hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, en kyrkjuslanga fannst við húsleit í Reykjavík um síðustu helgi. 2.2.2012 09:23
Nýjar meirihlutaviðræður í Kópavogi í dag Oddvitar Sjálfstæðisflokks, Farmsóknarflokks og Lista kópavogs ætla í dag að ræðast við um hugsanlega myndun nýs meiirhluta í bæjarstjórn Kópavogs, eftir að viðræður Sjálfstæðismanna annarsvegar og Samfylkingar og Vinstri grænna hinsvegar fóru út um þúfur í gærkvöldi. 2.2.2012 08:14
Fundu einstaka eftirlíkingu af Monu Lisu Fundist hefur einstök eftirlíking af hinu þekkta málverki Mona Lisa eftir Leonardo da Vinci en þessi eftirlíking hefur hangið til sýnis á listasafninu Prado í Madríd á Spáni árum saman án þess að listfræðingar gerðu sér grein fyrir mikilvægi hennar. 2.2.2012 07:46
Mjólkurbíl ekið á fjósvegg Sá óvenjulegi árekstur varð í síðasta mánuði að glænýjum mjólkurbíl var ekið á fjósvegg að bænum Akri í Eyjafjarðarsveit. 2.2.2012 07:43
Margar ábendingar í sprengjumálinu en enginn handtekinn Engin hefur enn verið handtekinn vegna sprengjutilræðisins við Hverfisgötu fyrir tveimur sólarhringum, en lögreglu bárust margar ábendingar eftir að hún birti myndir úr eftirlitsmyndavélum af hinum grunaða og bíl hans í gær. 2.2.2012 07:40
Mikil óánægja hjá foreldrum barna í Hamraskóla Mikil óánægja kom fram á fjölmennum fundi foreldra barna í Hamraskóla í Grafarvogi í gærkvöldi, með formanni menntasviðs borgarinnar, vegna þeirrar ákvörðunar borgaryfirvalda að sameina Hamraskóla, Húsaskóla og Foldaskóla á unglingastigi. 2.2.2012 07:37
Rannsaka grun um barnavændi Lögregla rannsakar nú hvort karlmaður á sextugsaldri, sem á sunnudagskvöld var rændur af pilti og stúlku undir tvítugu, hafi falast eftir því að kaupa vændi af stúlkunni. Hún er einungis sextán ára. Maðurinn tilkynnti um ránið til lögreglu á sunnudagskvöld. Hann hafði boðið stúlkunni í heimsókn en þegar hann hleypti henni inn ruddist inn með henni piltur vopnaður hnífi. 2.2.2012 07:30
Tvær konur teknar við að pissa á almannafæri Tvær konur um tvítugt voru handteknar á Skólavörðustíg um hálf tvö leitið í nótt og kærðar fyrir brot á lögreglusamþykkt Reykjavíkur. 2.2.2012 07:28
Ferja með 350 manns um borð sökk við Papua Nýju Gíneu Ferja með um 350 manns innanborðs sökk undan norðurströnd Papua Nýju Gíneu í seint í gærkvöldi. 2.2.2012 07:27
Varðskipið Þór sent til Bergen til viðgerða Nýja varðskipinu Þór verður siglt til Bergen í Noregi til viðgerða vegna alvarlegra galla, og gætu þær tekið nokkrar vikur, að minnsta kosti. 2.2.2012 07:20
Fótboltabullur í hópslagsmálum á Strikinu Lögreglan í Kaupmannahöfn var kölluð út á Strikið í gærkvöldi þar sem blóðug hópslagsmál höfðu brotist út milli áhangenda fótboltaliðanna Bröndby og FCK. 2.2.2012 07:06
Bílnúmerið ógreinilegt á upptökunni Lögreglu hafði í gærkvöldi enn ekki tekist að hafa hendur í hári þess sem talinn er hafa sprengt heimatilbúna sprengju á Hverfisgötu snemma á miðvikudagsmorgun. Vitni hefur greint frá því að skömmu eftir að sprengjan sprakk hafi það séð lágvaxinn, feitlaginn mann á miðjum aldri hlaupa af vettvangi og aka brott á litlum, hvítum sendiferðabíl. 2.2.2012 07:00
Hægt að hylja mynd af Agli Já hefur látið hanna og framleiða límmiða til að líma á forsíðu símaskrár síðasta árs. Á forsíðunni er mynd af Agli Einarssyni og fimleikastúlkum í Gerplu. Tilgangur límmiðanna er að gera fólki kleift að líma yfir Egil Einarsson. "Við höfum útbúið tvær tegundir af límmiðum fyrir þá sem þess óska,“ staðfestir Guðrún María Guðmundsdóttir, ritstjóri og sviðsstjóri hjá Já.Egill hefur verið kærður í tvígang fyrir kynferðisbrot á síðustu mánuðum en niðurstaða í málunum liggur ekki fyrir. 2.2.2012 07:00
Geymdu smyglað áfengi í líkkistum Sænska lögreglan hefur ákært 86 manns í stóru smyglmáli sem komið er upp í Svíþjóð. Um var að ræða smygl á sterku áfengi til landsins. 2.2.2012 06:58
Síberíukuldinn breiðist út um Evrópu Síberíukuldinn sem hrjáð hefur íbúa í mið- og austurhluta Evrópu undanfarna daga hefur breiðst út víðar um álfuna. Nær kuldinn nú allt suður til Ítalíu og austur til Tyrklands. 2.2.2012 06:46
Hittir skotmark sitt á 2 km færi Bandaríski vopnaframleiðandinn Sandia hefur hannað fjarstýrða byssukúlu sem getur hæft skotmörk í allt að tveggja kílómetra fjarlægð. Kúlan er hönnuð fyrir bandaríska herinn. Byssukúlan lítur út eins og 10 sentimetra langt flugskeyti. Hún fær kraft sinn úr hefðbundinni púðurhleðslu eins og aðrar byssukúlur, samkvæmt frétt BBC.Kúlunni er stýrt í mark sem lýst hefur verið upp með þar til gerðum leysigeisla. Sérfræðingar vara við hættu sem þessi nýjung gæti valdið í höndum óprúttinna einstaklinga þar sem hún gæti auðveldað skotárás af löngu færi. 2.2.2012 06:00
Fjórir af sex liðum standa enn þá eftir Mál á hendur Geir H. Haarde, fyrrum forsætisráðherra, hefur verið mikið í umræðunni. Tillaga Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, um að draga ákæruna á hendur honum til baka hefur valdið titringi innan þingsins og skipt stjórnarliðum í tvo hópa. Mikið hefur verið rætt um að tillagan sé ekki pólitísk en engum blöðum er um það að fletta að hún hefur haft pólitískar afleiðingar. Fréttablaðið beinir nú sjónum að ákærunni sjálfri og rifjar upp fyrir hvað Geir er ákærður. Líkt og áður segir standa fjórir liðir ákærunnar eftir. 2.2.2012 05:00
Flóttafólk undirbýr heimferð til Búrma „Það er mjög auðvelt að undirrita friðarsamning. Þú getur gert það á fáeinum mínútum. En framkvæmdin er annað mál,“ segir Simon Htoo, prestur karenaþjóðflokksins að lokinni messu í fimmtíu þúsund manna flóttabúðum í Taílandi, rétt handan landamæra Búrma. 2.2.2012 04:00
Fer líklega utan til viðgerðar Ekki hefur gengið að laga óeðlilegan titring í vél varðskipsins Þórs þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir sérfræðinga frá Rolls Royce verksmiðjunum. Líklegt er að skipið þurfi að fara til Noregs til viðgerðar, að því er segir á vef Landhelgisgæslu Íslands. 2.2.2012 04:00
Starfa í Eyjum Hjallastefnan átti lægsta tilboð í rekstur leikskólans Sóla í Vestmannaeyjum. Stýrihópur á vegum bæjarins leggur til að gengið verði til samninga við Hjallastefnuna. Þrjú tilboð bárust og uppfylltu tvö sett skilyrði sem sett voru. Hjallastefnan bauð dvalargildi á 11.905 krónur, en önnur tilboð hljóðuðu upp á 12.449 krónur og 14.440 2.2.2012 04:00