Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Skógareldarnir ógna 12 þúsund heimilum Skógareldar breiðast nú stjórnlaust um stórt svæði norður af Los Angelesborg í Kaliforníuríki. Ríflega 180 ferkílómetra skóg- og ræktarland hafa orðið eldunum að bráð. Talið er að þeir ógni um 12 þúsund heimilum í jaðri borgarinnar og hafa mörg þúsund íbúar verið fluttir frá heimilum sínum. 31.8.2009 23:45
Einkaspítalinn vonandi ekki reistur á loftköstulum „Ég hef ekki aldrei verið hugfanginn að markaðsvæðingu á heilbrigðisþjónustu en ég hef í sjálfu sér ekkert við einkaspítala að athuga fyrr en farið er að gera út á skattgreiðendur,“ segir Ögmundur Jónasson, heilbrigðisráðherra, aðspurður um fyrirhugaðan einkaspítala og heilsuhótel. 31.8.2009 22:25
Slökkvilið kallað út vegna reyks Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins barst á ellefta tímanum í kvöld tilkynning um mikinn reyk sem barst út um glugga á 7. hæð. Suðurlandsbraut 12. Allt tiltækt lið slökkviliðsins var sent á staðinn en við nánari skoðun kom í ljós að reykurinn kom frá pizzaofni, en veitastaðurinn Eldsmiðjan er með rekstur á fyrstu hæð hússins. Enginn eldur reyndist vera laus í húsinu. 31.8.2009 23:01
Meira enn helmingur Afríkumanna beittir líkamlegu ofbeldi Ráðist hefur verið á rúmlega 60% Afríkumanna sem búsettir er í Moskvu, höfuðborg Rússlands, og þeir beittir líkamlega ofbeldu vegna litarháttar og uppruna þeirra. Í mörgum tilvikum er um afar grófar árásir að ræða. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn sem greint er frá á vef breska ríkisútvarpsins. 31.8.2009 22:31
Áframhaldandi gæsluvarðhalds krafist vegna morðsins í Dalshrauni Friðrik Smári Björgvinsson yfirlögregluþjónn segir að gerð verði krafa á morgun um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir Bjarka Frey Sigurgeirssyni, en hann hefur játað að hafa orðið Braga Friðjónssyni að bana í húsnæði Dalshrauni í Hafnarfirði mánudagskvöldið 17. ágúst. 31.8.2009 21:08
Nokkrir yfirheyrðir vegna skemmdarverka á eignum auðmanna Nokkrir menn hafa verið yfirheyrðir vegna skemmdarverka sem framin hafa verið á bílum og húsnæði auðmanna og fólks sem tengist tengdust íslensku útrásinni eða hruninu. Þetta kom fram í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins. 31.8.2009 20:32
Breskir hermenn féllu í Afganistan Tveir breskir hermenn féllu í sprengjuárás í Helmand-héraði í suð-vestur Afganistan í kvöld. Nú hafa 210 breskir hermenn fallið í landinu frá því Bretar hófu afskipti af málum þar árið 2001, þar af á annan tug í ágústmánuði. Talíbanar eru sagðir bera ábyrgð á ódæðunum. 31.8.2009 21:39
Heilsuspítali mun skila milljörðum í gjaldeyristekjur Stefnt er að því að hefja byggingu á einkaspítala og heilsuhóteli á næsta ári. Forsvarsmenn spítalans telja að starfsemin muni geta skilað allt að 10 þúsund ferðamönnum til landsins og rúmlega 10 milljörðum í gjaldeyristekjur. Fyrirhugaður spítali verði byggður upp á grænum gildum, að sögn framkvæmdastjóra Primacare sem stendur á bak við verkefnið. 31.8.2009 20:08
Ekki móðurfélagsábyrgð og því ekki hægt að ganga að Magma ef illa fer „Þá er það mikið áhyggjuefni að móðurfélagsábyrgð Magma er ekki á skuldabréfinu heldur einungis veð í bréfum í HS orku,“ segir í bókun Sigrúnar Elsu Smáradóttur, borgarfulltrúa Samfylkingarinnar og fulltrúa flokksins í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur, vegna sölu á hlut fyrirtækisins í HS orku til kanadíska félagsins Magma Energy. 31.8.2009 19:45
Telur sig hafa persónutöfra Ég hef víst persónutöfra sagði Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, í heimsókn sinni til Noregs í dag. Fastafulltrúi Norðmanna hjá Sameinuðu þjóðunum hafði áður gagnrýnt stjórnunarstíl framkvæmdastjórans harðlega og sagt hann gjörsneiddan persónutörfum. 31.8.2009 18:59
Læknarnir komast ekki af vaktinni í vetur Vegarklúðrið á Melrakkasléttu veldur því að heilsugæslulæknarnir á Kópaskeri og Þórshöfn sjá ekki fram á að komast neitt frá vinnu í vetur. Læknirinn á Þórshöfn vill að menn taki slaginn og fari með ýturnar á síðasta spottann sem á vantar. 31.8.2009 18:51
Vill hefja olíuleitina strax næsta sumar Norska olíufélagið Sagex Petrolium vonast til að geta hafið olíuleitina á Drekasvæðinu þegar á næsta ári með nákvæmum hljóðbylgjurannsóknum. Borpallur kemur hins vegar ekki á svæðið nema fleiri olíufélög fáist í verkefnið. 31.8.2009 18:45
Eyru og nef skorin af Afgana þegar hann ætlaði að kjósa Eyru og nef voru skorin af átta barna föður í fjallahéruðum Afganistans þegar hann reyndi að kjósa í forsetakosningunum í landinu fyrr í mánuðinum. Hann kennir Talíbönum um. Bandarískur hershöfðingi segir að endurskoða þurfi baráttuna gegn þeim eigin hún að hafa áhrif. Við vörum við myndunum sem fylgja sjónvarpshluta þessarar fréttar. 31.8.2009 18:42
Telur að Ólafur verði við áskoruninni Undirskriftarlisti með nöfnum tíu þúsund einstaklinga var afhentur Forseta íslands í dag en þar skorað á forsetann að staðfesta ekki lög um Icesave samkomulagið. Talsmaður kjósa.is segist trú því að forsetinn verði við þessari áskorun. 31.8.2009 18:39
Málstaður Íslendinga styrkist í Bretlandi og Hollandi Málstaður Íslendinga vegna Icesave málsins virðist vera að styrkjast í Bretlandi og Hollandi. Stjórnmálamenn eru sagðir mildari í afstöðu sinni og háskólaprófessorar halda íslenskum sjónarmiðum á lofti. 31.8.2009 18:36
Stjórnarformaður Orkuveitunnar: Ekki verið að einkavæða HS orku „Með þessum samningum er ekki verið að einkavæða HS Orku,“ segir Guðlaugur G. Sverrisson, stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur. Stjórn fyrirtækisins samþykkti á fundi sínum í dag kaupsamning við Magma Energy um 16,58% hlut OR og tæplega 15% hlut Hafnarfjarðarbæjar í HS Orku. Jafnframt samþykkti stjórnin samkomulag við Hafnarfjarðarbæ um uppgjör milli aðila vegna viðskipta þeirra með hluti í Hitaveitu Suðurnesja. 31.8.2009 17:54
Stefnt að HS orka verði í meirihlutaeigu opinberra aðila Viðræðuhópur verður skipaður á næstu dögum sem muna kanna forsendur þess að ganga til samninga við Geysir Green um meirihluta félagsins í HS Orku þannig að félagið verði í meirihlutaeigu opinberra aðila. Miðað er við að niðurstaða viðræðna um möguleg kaup liggi fyrir á næstu vikum. 31.8.2009 17:21
Salan til Magma samþykkt í stjórn OR Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur samþykkti í dag að selja hlut sinn í HS Orku til kanadíska félagsins Magma Energy. Samningurinn er gerður með fyrirvara um samþykki borgarráðs og borgarstjórnar Reykjavíkur. Fulltrúar minnihlutans í stjórninni greiddu atkvæði gegn samningnum og gagnrýna þeir þann skamma tíma sem stjórnarmönnum gafst á að kynna sér efni samningsins. 31.8.2009 17:15
Nálgunarbann staðfest í Hæstarétti Hæstiréttur staðfesti í dag úrskurð Héraðsdóms Suðurlands þess efnis að manni skuli gert að sæta nálgunarbanni í þrjá mánuði. Manninum er meinað að koma nálægt heimili konu sinnar og þriggja barna þeirra. Jafnframt er honum bannað að veita konunni og börnunum eftirför, ónáða þau á almannafæri eða setja sig með öðru móti í samband við þau. 31.8.2009 16:51
Hús Lárusar Welding atað málningu í miðjum gleðskap Blárri blöðru með rauðri málningu var hent á heimili Lárusar Welding, fyrrum bankastjóra Glitnis, í Blönduhlíð á föstudagskvöldið svo húsið varð útatað. Tilkynning um atvikið barst lögreglu klukkan 23:37. 31.8.2009 16:49
Forsetahjónin á Stefnumóti á Ströndum Yfir sextíu aðilar á Ströndum tóku þátt í atvinnu- og menningarsýningunni Stefnumót á Ströndum. 31.8.2009 16:18
Vill lagabreytingar til að takast á við Vítisengla Stýrihópur ríkislögreglustjóra kom saman til fundar í dag, og var þar farið yfir fyrirliggjandi upplýsingar um umsvif Hells Angels hér á landi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ríkislögreglustjóra. 31.8.2009 15:57
Hvattur til þess að synja ríkisábyrgð á Icesave Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, veitti undirskriftalista Kjósa.is viðtökur klukkan þrjú í dag á Bessastöðum. Þetta var í fyrsta skiptið sem forsetinn tekur við slíkri áskorun í eigin persónu. 31.8.2009 15:48
Ellefu teknir fyrir vímuakstur um helgina Sex ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina, að því er segir í tilkynningu frá lögreglu. Einn var stöðvaður á laugardag og fimm á sunnudag. Þetta voru fjórir karlar á aldrinum 19-44 ára og tvær konur, 18 og 40 ára. Tveir þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi. 31.8.2009 15:47
35 prósent launþega hafa lent í skerðingu Ríflega þriðjungur eða 35% þeirra sem eru í launaðri vinnu hafa lent í því að laun eða starfshlutfall hefur verið skert frá hruni bankanna í október. Frá þessu er greint á heimasíðu ASÍ en Capacent Gallup gerði könnun á þessu fyrir sambandið í júní. Þar kemur í ljós að flestir, eða rúmlega 18 prósent hafa lent í launalækkun, hjá 9 prósentum hefur vinnutími verið styttur og 8 prósent hafa orðið fyrir annarskonar skerðingu. Í samskonar könnun sem gerð var í desember 2008 var hlutfallið mun lægra en þá höfðu 21 prósent launafólks orðið fyrir slíkri skerðingu. 31.8.2009 15:30
Fjölbýlishús rýmt eftir reyk úr ruslalúgu Fjölbýlishús að Flúðaseli 91 í Breiðholti var rýmt um klukkan þrjú í dag eftir að tilkynning barst um reyk í ruslageymslu hússins. 31.8.2009 14:59
Rafmagnslaust frá Sævarlandi að Sléttuvegi Bilun varð á háspennustreng í Fossvogi um klukkan 14:00 og er rafmagnslaust frá Sævarlandi að Sléttuvegi. 31.8.2009 14:12
Fimmtán þúsund manns gæddu sér á túnfiskís og bjórís Talið er að tæplega fimmtán þúsund gestir hafi sótt Ísdaginn mikla í Hveragerði á laugardaginn. Aðstandendur telja að íslandsmet hafi verið sett í íssmökkun og segja svo virðast sem ókeypis fjölskylduskemmtanir séu í sókn. 31.8.2009 13:43
Þrjú og hálft ár í fangelsi fyrir Hummer-ákeyrslu og íkveikju Jón Kristinn Ásgeirsson var í morgun dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir að hafa ekið Hummer-bifreið á 26 ára gamlan mann í janúar síðastliðnum og fyrir að eiga aðild að því að bera eld að húsi á Kleppsvegi í júní. Frá dómnum dregst 85 daga gæsluvarðhald sem Jón Kristinn hefur sætt. Hann er einnig dæmdur til þess að borga fórnarlambinu frá því í janúar tvær milljónir króna í miskabætur auk þess sem hann þarf að standa skil á málskosntaði. 31.8.2009 13:06
Beygjuljós á mótum Kringlumýrarbrautar og Borgartúns Beygjuljósum verður komið fyrir á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Borgartúns, akreinum fjölgað og sérstök vinstribeygjuakrein verður fyrir strætó af Kringlumýrarbraut inn í Borgartún. Þá verður bætt við hægribeygjuakrein frá Kringlumýrarbraut inn á Sæbraut og verður hún með umferðarljósum. 31.8.2009 12:45
Barðastrandarræningi meinaði sjö ára börnum för Einn af Barðastrandaræningjunum var handtekinn á laugardagskvöldið eftir að hafa gengið í skrokk á sautján ára pilti upp í Breiðholti. Atvikið átti sér stað um kvöldið en pilturinn hafði farið að vitja systkina sinna. Í ljós kom að Barðastrandaræninginn, auk félaga sem var með honum, höfðu meinað börnunum, sem eru um sjö ára aldur, að komast heim til sín. 31.8.2009 12:19
Grunur um svínaflensudauðsfall í Svíþjóð Grunur leikur á að sænskur karlmaður á fertugsaldri hafi látist af vödlum svínaflensu. Endanlegrar niðurstöðu rannsókna er að vænta á morgun. Verði það staðfest yrði það fyrsta dauðsfall af völdum flensunnar á Norðurlöndunum. 31.8.2009 12:11
Handtekinn fyrir sprengjugabb við 10-11 Piltur sem tilkynnti um sprengju í tösku fyrir utan 10-11 verslun við Laugarima í Grafarvogi á ellefta tímanum í gærkvöldi var handtekinn í gærkvöldi. 31.8.2009 12:05
Steingrímur fór fram á lengri frest en fékk ekki Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra óskaði eftir lengri fresti til þess að móta hugmyndir um aðkomu lífeyrissjóðanna og sveitarfélaga að kaupum á hlut Orkuveitunnar í HS Orku. Guðlaugur Sverrisson stjórnarformaður OR segir ekki hægt að verða við beiðninni. Tilboð Magma Energy í hlutinn rennur út klukkan fimm í dag. 31.8.2009 11:42
Ólafur F.: Með jafnhreinan skjöld nú sem fyrr „Árið 2008 var ekki unað við það af okkar hálfu að flokkur úti í bæ sem var ekkert að vinna með okkur ætlaði að fá aftur þetta fé annað árið í röð til þess eins í besta falli að klekkja á okkur, en ekki til að láta fjármuni renna til framboðsins," segir Ólafur F. Magnússon, óháður borgarfulltrúi. 31.8.2009 11:35
Hafnar ásökunum um sögufölsun Þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Tryggvi Þór Herbertsson, skrifar á bloggið sitt að Magnús Orri Schram, þingmaður Samfylkingarinnar, sé beinlínis að reyna að falsa söguna. Ástæða þessarar harkalegu ummæla Tryggva Þórs er viðtal við þingmennina tvo sem var tekið í Íslandi í Bítið í morgun. Þar sátu þeir og skeggræddu meðal annars Icesave frumvarpið. Þar sagði Magnús Orri að það hefði alltaf staðið til innan Samfylkingarinnar að setja fyrirvara á Icesave-samninginn. 31.8.2009 11:33
Brotist inn en engu stolið Brotist var inn í tvö húsnæði á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Annarsvegar var brotist inn á heimili á Langholtsvegi en þjófurinn tók ekkert. Samkvæmt lögreglu á höfuðborgarsvæðinu er allavega ekki ljóst hvort eitthvað hafi verið tekið af heimilinu. 31.8.2009 10:46
Háskaakstur við vegaframkvæmdir Umferðarstofa biður ökumenn að fara varlega vegna framkvæmda á gatnamótum Kringlumýrabrautar, Suðurlandsbrautar og Laugavegar. 31.8.2009 10:17
Íhuga að kæra Ólaf F. fyrir fjárdrátt „Málið er að þegar hann var borgarstjóri lét hann færa þetta fé á eigin reikning án samráðs við okkur," segir Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins. 31.8.2009 10:03
Almenningi hleypt að leiði Edwards Kennedy Almenningi hefur verið opnaður aðgangur að leiði öldungadeildarþingmannsins Edwards Kennedy heitins en það var gert klukkan átta í gærmorgun að staðartíma í Virginíu, innan við tólf klukkustundum eftir að útförin fór fram. 31.8.2009 08:35
Pólverjar vilja afsökunarbeiðni frá Pútín Pólverjar krefjast þess að Vladimír Pútín, forsætisráðherra Rússlands, biðjist afsökunar á samkomulagi Sovétmanna við Adolf Hitler árið 1939. 31.8.2009 08:23
Ciudad Juarez að verða hættulegust borga Mexíkóska borgin Ciudad Juarez er á góðri leið með að næla sér í titilinn hættulegasta borg heimsins. 31.8.2009 08:20
Kínverskt frímerki boðið upp Sjaldgæft kínverskt frímerki frá 19. öld verður boðið upp í Hong Kong í september en frímerkið er metið á allt að 258.000 dollara, jafnvirði rúmlega 32 milljóna króna. 31.8.2009 08:15
Rændu leigubílstjóra og settu hann í farangursgeymslu Lögregla í Valby í Kaupmannahöfn var furðu lostin þegar hún brást við tilkynningu um hávaða úr farangursgeymslu leigubíls sem lagt hafði verið í stæði þar í bænum í gær. 31.8.2009 08:13
Kyrkti stjúpdóttur sína og hengdi sig Breskur vörubílstjóri kyrkti níu ára stjúpdóttur sína og hengdi sig að ódæðinu loknu. Lögreglumenn fundu bílinn og lík stjúpfeðginanna síðdegis á laugardag eftir að bílsins hafði verið saknað um tíma en hann flutti vörur fyrir stórmarkaðinn Spar. 31.8.2009 08:12