Innlent

Ellefu teknir fyrir vímuakstur um helgina

Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar
Lögreglan hafði í nógu að snúast.
Lögreglan hafði í nógu að snúast.
Sex ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina, að því er segir í tilkynningu frá lögreglu. Einn var stöðvaður á laugardag og fimm á sunnudag. Þetta voru fjórir karlar á aldrinum 19 til 44 ára og tvær konur, 18 og 40 ára. Tveir þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi.

Þá stöðvaði lögregla för fimm ökumanna undir áhrifum fíkniefna. Einn þeirra var jafnframt með fíkniefni í fórum sínum. Fjórir þessara ökumanna reyndust ennfremur vera próflausir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×