Innlent

Hús Lárusar Welding atað málningu í miðjum gleðskap

Lárus Welding, fyrrum bankastjóri Glitnis.
Lárus Welding, fyrrum bankastjóri Glitnis. Mynd/Vilhelm
Blárri blöðru með rauðri málningu var hent á heimili Lárusar Welding, fyrrum bankastjóra Glitnis, í Blönduhlíð á föstudagskvöldið svo húsið varð útatað. Tilkynning um atvikið barst lögreglu klukkan 23:37.

Samkvæmt heimildum fréttastofu var Lárus með gleðskap að heimili sínu þegar atvikið átti sér stað og olli uppákoman nokkru fjaðrafoki á meðal veislugesta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×