Innlent

Forsetahjónin á Stefnumóti á Ströndum

Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar
Forsetahjónin ásamt skrautbúnum Strandamanni.
Forsetahjónin ásamt skrautbúnum Strandamanni. Mynd/Ágúst G. Atlason
Yfir sextíu aðilar á Ströndum tóku þátt í atvinnu- og menningarsýningunni Stefnumót á Ströndum.

Sýningin var opnuð á laugardag og hélt Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands og verndari sýningarinnar, ræðu af tilefni dagsins. Einnig fluttu heimamenn á öllum aldri tónlistaratriði á hátíðardagskránni, kveðnar voru lausavísur og lesin vinakveðja úr Reykhólasveit. Þá hélt Jón Bjarnason landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra ræðu.

Dorrit lék á als oddi og faðmaði viðstödd börn - jafnvel þótt þau sneru öfugt. Mynd/Ágúst G. Atlason
Þá var þétt skipuð dagskrá yfir helgina, en meðal annars reistu fjórir ættliðir Strandamanna svokallaða vörðu til framtíðar utan við Félagsheimilið á Hólmavík. Forsetahjónin tóku þátt í að reisa vörðuna og lögðu til stein frá Bessastöðum. Hið sama gerðu ýmsir aðkomumenn.

Markmið með sýningunni er tvíþætt. Annars vegar að efla ímynd Stranda út á við sem aðlaðandi búsetu-, ráðstefnu- og ferðamannasvæði, en hins vegar að efla tengsl ólíkra aðila á Ströndum með því að leiða saman hefðbundna og óhefðbundna starfsemi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×