Íhuga að kæra Ólaf F. fyrir fjárdrátt Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar 31. ágúst 2009 10:03 Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslyndra, og óháði borgarfulltrúinn Ólafur F. Magnússon. Mynd/Stefán „
Málið er að þegar hann var borgarstjóri lét hann færa þetta fé á eigin reikning án samráðs við okkur," segir Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins. Hann segir Ólaf F. Magnússon, fyrrum borgarstjóri Reykjavíkur, hafa látið greiða lögbundinn styrk borgarinnar til stjórnmálaflokka inn á reikning með sinni kennitölu í upphafi árs 2008 en ekki til Frjálslynda flokksins líkt og tíðkast hefur. Ólafur F. klauf sig frá Frjálslynda flokknum í byrjun maí síðastliðnum og hefur starfað sem óháður borgarfulltrúi síðan þá. „Allan tímann sem við höfum boðið fram í borginni hafa fjármunirnir runnið til Frjálslynda flokksins," segir Guðjón, og bætir við að flokkurinn hafi staðið straum af kostnaði, meðal annars vegna baráttunnar í aðdraganda síðustu borgarstjórnarkosninga. Frjálslyndir hafi reiknað með þessum styrk til að standa undir slíkum greiðslum. Guðjón segist ekki viss um hversu háar fjárhæðir er um að ræða, en telur að þær gætu numið um þremur milljónum á ári. Hann segir fjármunina skipta flokkinn miklu máli til að laga skuldaumhverfi flokksins eftir kosningarnar. „Við erum margbúin að ræða þetta mál við Ólaf F. en án árangurs," segir Guðjón. Þeir Guðjón og Helgi Helgason, formaður fjármálaráðs flokksins, sendu Hönnu Birnu Kristjánsdóttur borgarstjóra bréf þar sem þeir fóru fram á leiðréttingu greiðslunnar. Hann útilokar ekki að leita liðsinnis lögreglu ef ekkert verður að gert, en á heimasíðu flokksins er framkvæmdastjórn flokksins sögð íhuga að kæra Ólaf til efnahagsbrotadeildar lögreglu. „Það er náttúrulega skrefið sem við hljótum að skoða ef við fáum enga leiðréttingu samkvæmt þessum aðferðum. Við erum friðsamir menn og viljum gjarnan leysa þetta í góðu, en einhverstaðar þarf að skera úr þessu," segir Guðjón.
Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Býr sig undir það versta en vonar það besta Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Fleiri fréttir „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Sjá meira