Steingrímur fór fram á lengri frest en fékk ekki 31. ágúst 2009 11:42 Guðlaugur G. Sverrisson, stjórnarformaður OR.
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra óskaði eftir lengri fresti til þess að móta hugmyndir um aðkomu lífeyrissjóðanna og sveitarfélaga að kaupum á hlut Orkuveitunnar í HS Orku. Guðlaugur Sverrisson stjórnarformaður OR segir ekki hægt að verða við beiðninni. Tilboð Magma Energy í hlutinn rennur út klukkan fimm í dag. Fjármálaráðherra fundaði með fulltrúum lífeyrissjóða og Grindavíkurbæjar um þessi mál í morgun og að sögn upplýsingafulltrúa fjármálaráðuneytisins er vilji til þess að koma að málinu. Þeir aðilar hafi hins vegar ekki treyst sér til þess að koma með tilboð í dag. Þess vegna hafi verið óskað eftir lengri tíma til þess að vinna að málinu. Guðlaugur Sverrisson stjórnarformaður Orkuveitunnar staðfestir í samtali við Vísi að farið hafi verið fram á lengri frest. „Þeir töldu sig þurfa lengri tíma en þeir vissu líka að Magma þurfti að gefa út yfirlýsingu í kauphöllinni í Toronto þegar fyrri fresturinn var gefinn út og að þeir geta ekki gefið út aðra slíka yfirlýsingu samkvæmt reglum þar á bæ. Þeir geta því ómögulega orðið við því að veita lengri frest," segir Guðlaugur. Hann bendir á að þegar hafi verið veittur tíu daga frestur fyrir utan að ferlið hafi verið í gangi síðastliðið hálft ár. Stjórnarfundur verður haldinn í Orkuveitunni klukkan eitt í dag. „Ef ekkert tilboð kemur frá stjórnvöldum býst ég við að ganga til samningum við Magma," segir Guðlaugur. Hann segist eiga von á því að minnihlutinn verði á móti í málinu en að meirihlutinn muni halda. „Við verðum að verja Orkuveituna eins og hægt er," segir Guðlaugur.
Mest lesið Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Innlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Innlent Fleiri fréttir Þjóðaratkvæðagreiðsla í sumar og hvalveiðibátur á sjó Handsala samstarfið og gera Hilmar að bæjarstjóra Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Hjalti Þór verður bæjarstjóri í Hornafirði Enginn meirihluti í Grindavík Ingimar verður bæjarstjóri í Hveragerði Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Stefán Carlsson er látinn Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Sjá meira