Innlent

Brotist inn en engu stolið

Innbrotsþjófur.
Innbrotsþjófur.

Brotist var inn í tvö húsnæði á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Annarsvegar var brotist inn á heimili á Langholtsvegi en þjófurinn tók ekkert. Samkvæmt lögreglu á höfuðborgarsvæðinu er allavega ekki ljóst hvort eitthvað hafi verið tekið af heimilinu.

Þá var brotist inn í fyrirtæki í Þverholti en atvinnurekandi á eftir að taka saman skaðann sem hlaust af innbrotinu. Því er óljóst hverju var stolið.

Innbrotahrina hefur verið á höfuðborgarsvæðinu undanfarna mánuði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×