Hafnar ásökunum um sögufölsun Valur Grettisson skrifar 31. ágúst 2009 11:33 Magnús Orri Schram segir að Samfylkingin hafi víst viljað setja fyrirvara við Icesave.
Þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Tryggvi Þór Herbertsson, skrifar á bloggið sitt að Magnús Orri Schram, þingmaður Samfylkingarinnar, sé beinlínis að reyna að falsa söguna vegna eftiráskýringar varðandi fyrirvara við Icesave. Ástæða þessarar harkalegu ummæla Tryggva Þórs er viðtal við þingmennina tvo sem var tekið í Íslandi í Bítið í morgun. Þar sátu þeir og skeggræddu meðal annars Icesave frumvarpið. Þar sagði Magnús Orri að það hefði alltaf staðið til innan Samfylkingarinnar að setja fyrirvara á Icesave-samninginn. Þessu neitar Tryggvi Þór algjörlega og skrifar á bloggið sitt: „Ég var í útvarpsþætti á Bylgjunni með samfylkingarþingmanni í morgun. Þar var m.a. rætt um IceSave-ósómann og óhætt er að segja að mér hafi verið stórlega misboðið. Þingmaðurinn hélt því þar fram að alltaf hefði staðið til að setja fyrirvara við ríkisábyrgðina þegar málið kæmi til þingsins. Þvílík ósannindi!" Magnús Orri ver orð sín og segir að strax í upphafi hafi verið fjölmargir innan þingflokks Samfylkingarinnar sem vildu herða á nokkrum atriðum varðandi Icesave. „Það kom strax upp sá vilji innan þingflokksins og þá var helst litið til efnahagslegu þáttanna. Þeim vilja var beint inn til nefndarinnar sem síðar sá um málið," segir Magnús Orri og á þá við að sterkum vilja Samfylkingarmanna um fyrirvara við Icesave-samninginn hafi verið beint til samflokksmanna innan fjárlaganefndar. „Ég hafna því alfarið að þarna hafi verið um sögufölsun að ræða," segir Magnús Orri og bendir á að hann hafi betri vitneskju um það sem gerist innan þingflokks Samfylkingarinnar heldur en Tryggvi Þór.
Mest lesið Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent „Andlitið á honum var skakkt“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Erlent Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. Innlent Eldur kviknaði við Stálhellu Innlent „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Innlent Fleiri fréttir Gestum komið fyrir á öðru hóteli Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Kaup Icelandair og ný fylgiskönnun í kvöldfréttum Sýnar Bandbrjálaðist og hrækti á lögreglumann Bíll og mótorhjól skullu saman við Vaðlaheiðargöng Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. „Jafnvel betur undirbúin en margur hver“ „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið „Þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella“ Bæta umferðaröryggi við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar „Andlitið á honum var skakkt“ Ari orðinn stjórnarformaður Rafleiðni aukist skarpt í Múlakvísl Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði við Stálhellu Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sjá meira