Innlent

Vill lagabreytingar til að takast á við Vítisengla

Valur Grettisson skrifar
Vítisengill.
Vítisengill.

Stýrihópur ríkislögreglustjóra kom saman til fundar í dag, og var þar farið yfir fyrirliggjandi upplýsingar um umsvif Hells Angels hér á landi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ríkislögreglustjóra. Þar kemur ennfremur fram að hann vilji lagabreytingar til þess að takast á við Vítisenglana.

Það var á föstudaginn sem Vísir greindi frá því að vélhjólaklúbburinn Fáfnir hefði verið lagður niður og hefði opiberlega verið viðurkenndur sem stuðningsaðili að Hells Angels.

Þá hefur Jón Trausti Lúthersson látið af formennsku í klúbbnum. Nýr formaður heitir Einar „Boom" Marteinsson en hann rak skemmtistaðinn Boom kickers á tímabili.

Í yfirlýsingu frá ríkislögreglustjóra segir að upplýsingarnar sem fram komu a Vísi á föstudaginn komi ekki á óvart og séu í fullu samræmi við það sem fram hefur komið í skýrslum ríkislögreglustjóra þar sem mat er lagt á skipulagða glæpastarfsemi hér á landi.

Í yfirlýsingu ríkislögreglustjóra segir að það sé staðfest að vélhjólklúbburinn Fáfnir mun að öllu óbreyttu geta sótt um fulla aðild að Hells Angels samtökunum á seinni hluta næsta árs.

Tilraunir Hells Angels til að ná fótfestu á Íslandi má rekja ein sjö ár aftur í tímann, hið minnsta. Viðbrögð lögreglu og tollgæslu hafa jafnan verið á sama veg. Ítrekað hefur komið til þess að hópar erlendra liðsmanna Hells Angels hafi verið stöðvaðir við komu til landsins og þeim meinuð landganga.


Tengdar fréttir

Fylgjast með íslensku Vítisenglunum

Bæjaryfirvöld í Hafnarfirði hafa ásamt lögreglunni fylgst með starfsemi Fáfnismanna, eða Hells Angels Prospects, eins og þeir heita nú, eftir að klúbburinn fluttist í Hafnarfjörð í vor.

Ríkislögreglustjóri kallar saman baráttuhóp gegn Vítisenglum

Ríkislögreglustjóri ætlar að kalla saman baráttuhóp lögreglunnar gegn Hells Angels strax eftir helgi. Mótorhjólaklúbburinn Fáfnir var lagður niður í síðustu viku og lét Jón Lúther Traustason, dæmdur ofbeldismaður, af formennsku. Þá tók við Einar Boom Marteinsson sem er kenndur við barinn Boom Kicker sem hann rak í Hafnarstræt




Fleiri fréttir

Sjá meira


×