Ólafur F.: Með jafnhreinan skjöld nú sem fyrr Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar 31. ágúst 2009 11:35 Ólafur F. Magnússon, óháður borgarfulltrúi. „
Árið 2008 var ekki unað við það af okkar hálfu að flokkur úti í bæ sem var ekkert að vinna með okkur ætlaði að fá aftur þetta fé annað árið í röð til þess eins í besta falli að klekkja á okkur, en ekki til að láta fjármuni renna til framboðsins," segir Ólafur F. Magnússon, óháður borgarfulltrúi. Ólafur segir borgarstjórnarflokk Frjálslynda flokksins, sem nú er orðinn óháður, ekki hafa fengið krónu af því fé sem hann segir ætlað til starfsemi flokksins, heldur hafi því verið varið í að greiða niður skuldir og halda úti skrifstofu Frjálslyndra, sem Ólafur kallar vinakerfi. Því hafi hann brugðið á það ráð að halda sjálfur utan um féð. Í lögum um stjórnmálaflokka segir að sveitarfélögum yfir ákveðinni stærð sé skylt að veita stjórnmálasamtökum sem ná ákveðnu lágmarksfylgi fjárframlög til starfsemi sinnar. Nú hafa risið upp deilur milli Ólafs og Guðjóns Arnars Kristjánssonar, formanns Frjálslyndra, um hvort féð skuli renna til borgarstjórnarflokksins, sem Ólafur skipar einn, eða til Frjálslyndra. „Þeir hafa sýnt sig um að vera ófærir um að stjórna eigin fjármálum. Ég held að ég hafi þvert á móti sýnt að ég sé ráðdeildarmaður í fjármálum, enda sá borgarfulltrúi sem hefur farið best með almannafé í gegnum tíðina," segir Ólafur, og harmar árásina sem hann telur forystu Frjálslyndra gera á mannorð sitt. Ólafur segir borgarmálafélag F-listans, sem stofnað var utan um starfsemi borgarstjórnarflokksins, hafa fyrir því lögfræðiálit að fjárframlagið eigi að renna til framboðsins Frjálslyndra og óháðra, en ekki til flokksins á landsvísu. Ólafur segir sáralítið fé hafa runnið úr sjóðnum undanfarið ár, en það hafi einkum verið vegna lögfræðikostnaðar og fundahalda. Hann muni að sjálfsögðu gera grein fyrir því. „Ég hef jafnhreinan skjöld í þessu og öllu sem ég hef starfað á opinberum vettvangi og mannorð mitt og heiðarleiki verður ekki dregið í efa nú frekar en fyrr," segir Ólafur, sem óttast ekki kæru Frjálslyndra á hendur honum vegna hins meinta fjárdrátts, heldur segist hlæja að henni.
Tengdar fréttir Íhuga að kæra Ólaf F. fyrir fjárdrátt „Málið er að þegar hann var borgarstjóri lét hann færa þetta fé á eigin reikning án samráðs við okkur," segir Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins. 31. ágúst 2009 10:03 Mest lesið Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Innlent Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Kærastinn var á staðnum Erlent Fleiri fréttir Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Sjá meira
Íhuga að kæra Ólaf F. fyrir fjárdrátt „Málið er að þegar hann var borgarstjóri lét hann færa þetta fé á eigin reikning án samráðs við okkur," segir Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins. 31. ágúst 2009 10:03