Innlent

Nokkrir yfirheyrðir vegna skemmdarverka á eignum auðmanna

Hummer jeppi Björgólfs Thors.
Hummer jeppi Björgólfs Thors.

Nokkrir menn hafa verið yfirheyrðir vegna skemmdarverka sem framin hafa verið á bílum og húsnæði auðmanna og fólks sem tengist tengdust íslensku útrásinni eða hruninu. Þetta kom fram í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins.

Meðal annarra sem hafa orðið fyrir málningarárásum af þessu tagi eru Bjarni Ármannsson, Birna Einarsdóttir, Hreiðar Már Sigurðsson, Hannes Smárason, Björgólfur Guðmundsson og Steingrímur Wernersson. Nú síðast var heimili Lárusar Welding atað málningu í miðjum gleðskap síðastliðið föstudagskvöld.

Þá var kveikt í Range Rover jeppa Stefáns Hilmarssonar, fyrrverandi fjármálastjóra Baugs. Einnig hafa verið unnin á heimilum fólks sem tengist orkugeiranum.

Hópur lögreglumanna fer með rannsókn þessara mála. Friðrik Smári Björgvinsson, yfirlögregluþjónn, segir að eftir að birt var upptaka þegar kveikt var í jeppa Stefáns hafi lögreglu borist vísbendingar. Búið sé að yfirheyra nokkra einstaklinga í tengslum við þessi mál en það hafi ekki leitt til handtöku.

Í langflest skiptin sem rauðri málningu hefur verið beitt hefur tilkynning um atvikin borist fjölmiðlum. Tölvupóstur er sendur frá aðila sem kallar sig „skap ofsa". Fréttastofa Stöðvar og Vísis hefur sent þessum aðila fyrirspurnir en ekki borist svar.


Tengdar fréttir

Hús Hreiðars Más málað rautt í nótt

Rauðri málningu var í nótt skvett á heimili Hreiðars Más Sigurðssonar fyrrverandi forstjóra hjá Kaupþingi. Þegar myndatökumann Stöðvar 2 bar að garði voru iðnaðarmenn í óða önn að þvo málninguna af húsinu. Hús Hreiðars er eitt af mörgum sem fengið hefur svipaða meðferð á síðustu vikum og síðast í gær gerðu umhverfissinnar svipaða árás á hús Rannveigar Rist forstjóra álversins í Straumsvík.

Lögregla rannsakar vettvang skemmdarverks

Tæknideild lögreglu heimsótti hús Sigurðar Einarssonar, fyrrum bankastjóra Kaupþings, í dag til að rannsaka skemmdarverk sem unnin voru á húsi hans í nótt.

Sprautuðu lakkeyði á bíla forstjóra OR

Milljónatjón varð á húsi og bílum Hjörleifs H. Kvaran, forstjóra Orkuveitunnar, þegar aðgerðasinnar unnu skemmdarverk á heimili hans aðfaranótt mánudags. Svo virðist sem þeir séu farnir að færa sig upp á skaftið, því þeir létu sér ekki nægja að skvetta málningu sem hægt er að spúla burt, heldur voru bílarnir líka eyðilagðir með lakkeyði.

Málningu slett á hús Bjarna Ármanns

Málningu var skvett á hús Bjarna Ármannssonar á Seltjarnarnesi í nótt. Einnig var málningu skvett á dúkkuhús barna Bjarna en samkvæmt yfirlýsingu aðgerðasinna var það ekki viljaverk.

Hús Lárusar Welding atað málningu í miðjum gleðskap

Blárri blöðru með rauðri málningu var hent á heimili Lárusar Welding, fyrrum bankastjóra Glitnis, í Blönduhlíð á föstudagskvöldið svo húsið varð útatað. Tilkynning um atvikið barst lögreglu klukkan 23:37.

Málningu skvett á hús Karls Werners og Hreiðars Más - myndir

Rauðri málningu var skvett á íbúðarhús athafnamannsins Karls Wernerssonar við Engihlíð í Reykjavík í nótt. Þá fékk heimili Hreiðars Más Sigurðssonar fyrrverandi forstjóra Kaupþings í Hlyngerði rauða málningargusu í annað sinn á stuttum tíma. Ekki er vitað hver eða hverjir voru þar að verki.

Málningu skvett á hús Steingríms

Blóðrauðri málningu var skvett á heimili Steingríms Wernerssonar í nótt. Þetta er í fimmta sinn sem eignaspjöll eru unnin á heimilum auðmanna eftir bankahrunið.

Skvettu málningu á hús Rannveigar Rist

Skemmdarvargar skvettu málningu á hús Rannveigar Rist, forstjóra álversins í Straumsvík, en verknaðarins varð vart í morgun. Skemmdarvargar virðast herja á heimili stjórnenda í stóriðjufyrirtækja þessa dagana því að fyrir rúmri viku var málningu skvett á hús Friðriks Sophussonar, forstjóra Landsvirkjunar.

Málningu slett á hús Hannesar og Björgólfs

Rauðri málningu var slett á heimili þeirra Björgólfs Guðmundssonar og Hannesar Smárasonar í nótt eða í morgun. Heimili þeirra eru við Vesturbrún annars vegar og Fjölnisveg hinsvegar. Þegar myndatökumann fréttastofu bar að garði var verið að þrífa málninguna af húsunum. Að sögn lögreglu er ekki vitað hverjir standi á bakvið sletturnar og er málið því í rannsókn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×