Fleiri fréttir

Níu af tíu segja ekki nóg gert

Ríflega 91 prósent þeirra sem afstöðu tóku í skoðanakönnun sem unnin var af Capacent Gallup fyrir ASÍ telur stjórnvöld þurfa að gera meira til að mæta greiðsluvanda heimilanna.

Hælisleitendurnir farnir til Bagdad

Hælisleitendurnir frá Írak, sem handteknir voru í kirkju í Kaupmannahöfn í síðasta mánuði, voru í gær sendir með flugvél til Íraks. Óvissa er um örlög þeirra í heimalandinu, en dönsk stjórnvöld segjast hafa farið rétt að öllu.

Jafnvel rætt við umsækjendur

Menntamálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir, bræðir nú með sér hvort rætt verður við umsækjendur um stöðu þjóðleikhússtjóra. Nokkuð var kvartað yfir því að umsagnaraðilinn, þjóðleikhúsráð, hefði ekki tekið viðtal við umsækjendur.

Lögreglan flæðir um götur

Tugir þúsunda ungra manna og kvenna hafa bæst í lögregluliðið í Kína. Tilefnið er sextíu ára afmæli kommúnistastjórnarinnar, sem komst til valda í byrjun október árið 1949.

Gengið á sjö stöðum

Árleg styrktarganga til styrktar rannsóknum á brjóstakrabbameini, Göngum saman, verður haldin næsta sunnudag. Gengið verður á sjö stððum á landinu; Reykjavík, Ísafirði, Akureyri, Mývatnssveit, Egilsstöðum, Höfn og Vestmannaeyjum. Þáttaka kostar 3.000 krónur og renna göngugjöldin óskipt í styrktarsjóð félagsins. Öll vinna við undirbúning og framkvæmd er unnin af sjálfboðaliðum.

Bensínafgreiðslumaður ærðist

Lögreglumál „Hann var alveg viti sínu fjær,“ segir yfirmaður bensínafgreiðslumanns Olís í Norðlingaholti sem ærðist við störf í gær. Hann veittist að viðskiptavinum bensínstöðvarinnar og samstarfsmönnum sínum og var að lokum færður burt í járnum.

Styrktu krabbameinssjúk börn

Nokkrir ungir menn sem standa að baki vefsíðunni 24tindar.com afhentu í gær Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna 109.000 krónur sem þeir söfnuðu í sumar.

Viðræður ráðamanna hefjast

Háttsettir ráðamenn Ísraelsstjórnar og Palestínustjórnar hittust í gær í fyrsta sinn frá því að Benjamin Netanjahú tók við sem forsætisráðherra Ísraels.

Atvinnulausum fjölgaði í ágúst

Atvinnulausum fjölgaði í ágústmánuði. Er það í fyrsta sinn sem þeim fjölgar frá því í mars síðastliðnum, samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun. Þetta kemur fram í morgunkorni Íslandsbanka.

ESB og evra besti kosturinn að mati sérfræðinga OECD

Stærð íslensku bankanna, lánveitingar til tengdra aðila og flókin eignatengsl gerðu þá veika fyrir í alþjóðlegri kreppu, segir sérfræðingur OECD. Halda þarf gjaldeyrishöftum og háum stýrivöxtum enn um sinn.

Obama ávarpar þingið í næstu viku

Barack Obama flytur ræðu um tillögur sínar um uppstokkun á bandaríska heilbrigðiskerfinu á sameiginlegum fundi fulltrúa- og öldungadeildar Bandaríkjaþings næstkomandi miðvikudag. Forsetinn hefur sagt núverandi kerfi allt of dýrt og þungt í vöfum.

Metuppskera hjá kartöflubændum í Hornafirði

Kartöflubændur í Hornafirði hafa ástæðu til að brosa breitt þessa dagana þegar þeir taka upp úr kartöflugörðum sínum því uppskeran er afar góð, að fram kemur á vefsíðunni Ríki Vatnajökuls sem er frétta og upplýsingavefur Hornafjarðar.

Ósiðleg hegðun öryggisvarða í Kabúl rannsökuð

Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna rannsakar nú mál sem varðar öryggisverði í sendiráði landsins í Afganistan. Verðirnir eru sakaðir um ósiðlega hegðun, þar á meðal að drekka áfengi af afturenda hvors annars.

Stjórnandi afgönsku leyniþjónustunnar drepinn

Talíbanar felldu í dag einn æðsta stjórnanda afgönsku leyniþjónustunnar. Skömmu áður tilkynntu Sameinuðu þjóðirnar um að tekist hefði að draga úr einni helstu tekjulind Talíbana, ópíumrækt.

Ekið á gangandi vegfarenda

Fólksbifreið var ekið á gangandi vegfarenda á Vífilstaðavegi á áttunda tímanum í kvöld. Einn var fluttur á slysadeild. Ekki fengust upplýsingar hjá lögreglu eða slökkviliði um hvort vegfarandinn sé mikið slasaður.

Kúabændur uggandi

Kúabóndi á Suðurlandi segist uggandi um stöðu landbúnaðarins, enda sé ekkert vitað hvað morgundagurinn muni bera í skauti sér. Skuldir hans hafa tvöfaldast og segir hann allt undir ef ekki fæst leiðrétting, bæði heimili fjölskyldunnar og ævistarfið.

Leiðin á milli Reykjavíkur og Ísafjarðar styttist á morgun

Ein mesta bylting sem um getur í samgöngumálum Vestfjarða verður á morgun þegar nýja bogabrúin yfir Mjóafjörð í Ísafjarðardjúpi verður vígð. Samgönguráðherra klippir á borðann klukkan tvö og eftir það verður brúin opnuð umferð.

Icelandair skoðar minni þotur

Icelandair stefnir að ákvörðun í næsta mánuði um kaup á minni þotum í flugflotann. Boeing 757 yrði þó áfram aðalvél félagsins. Ólíklegt er að Dreamliner-vélarnar, sem eru í pöntun, verði teknar inn í áætlunarflugið.

Skylt að merkja ferskar matjurtir eftir uppruna

Vegna þýðingarvillu í Evróputilskipun hefur fólk ekki getað tekið upplýsta ákvörðun í matvöruverslunum um að velja íslenskt - eða útlenskt grænmeti. Búið er að leiðrétta villuna og seljendur ferskra matjurta eru nú skyldugir að upplýsa fólk hvar grænmeti og ávextir voru ræktaðir.

HS orka reynir að semja við lánardrottna

HS orka, orkufyrirtæki Reykjaness, á í samningum við lánardrottna sína, sem nú geta gjaldfellt hátt í 30 milljarða króna skuldir félagsins. Kaup Kanadamanna á hlut Orkuveitunnar í fyrirtækinu, velta á því að HS orka endursemji við lánardrottna.

Landsvirkjun greiddi sveitarstjórnarmönnum fyrir skipulagsvinnu

Landsvirkjun greiddi fyrir fundarsetu sveitarstjórnarmanna í Skeiða- og Gnúpverjahreppi, um fyrirhugaðar virkjanir í hreppnum. Hver sveitarstjórnarmaður fékk 200 þúsund krónur, segir fyrrverandi sveitarstjóri. Oddviti hreppsins staðfestir að hafa fengið greiðslur frá Landsvirkjun, í gegnum hreppinn, en er ósáttur við að vera sakaður um mútuþægni.

Maður fótbrotnaði í 12 metra hæð

Karlmaður fótbrotnaði við vinnu í 12 metra háu sílói í Norðuráli í dag. Björgunarfélag Akraness var kallað út en maðurinn var látinn síga niður á börum.

Seinheppinn þjófur

Karl á þrítugsaldri var handtekinn við verslunarmiðstöð á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöld. Hann var grímuklæddur og vopnaður barefli og viðurkenndi að tilgangur hans hefði verið að ræna peningum úr verslun sem þarna er.

Starfsmaður á plani gekk í skrokk á viðskiptavini

Starfsmaður var handtekinn á Olís í Norðlingaholti milli tvö og þrjú í dag vegna átaka sem þar áttu sér stað. Samkvæmt lögreglunni lenti starfsmanninum saman við samstarfsfólk auk viðskiptavina. Lögreglan var kölluð á vettvang í kjölfarið og maðurinn handtekinn.

Benda á hvorn annan vegna hjartveiku barnanna

Upplýsingafulltrúar gamla og nýja Landsbankans hafa ekki viljað tjá sig um stefnu Styrktarsjóðs hjartveikra barna á hendur gamla bankanum og Landsvaka heldur benda á hvorn annan. Sjóðurinn hefur stefnt Landsvaka, sem nú tilheyrir nýja Landsbankanum og Lárusi Finnbogasyni, fyrrverandi formann skilanefndar gamla Landsbankans, vegna ráðstöfunar með fé sjóðsins í peningamarkaðssjóði Landsvaka fyrir bankahrun.

Þátttaka atvinnurekenda í stjórnun lífeyrissjóða verði endurskoðuð

Sjómannafélag Íslands hvetur önnur stéttarfélög í landinu til að endurskoða þátttöku atvinnurekenda í stjórnum lífeyrissjóða. Í ályktun stjórnar sem samþykkt var í dag segir að við blasi að fjármunir flestra lífeyrissjóða séu eign launafólks en ekki atvinnurekenda.

Karzai eykur við forskot sitt

Sitjandi forseti Afganistans Hamid Karzai hefur aukið við forystu sína í forsetakosningunum sem haldnar voru þann 20. ágúst síðastliðinn. Enn er verið að telja atkvæði en nú þegar um 60 prósent þeirra hafa verið talin er Karzai með rúm 47 prósent atkvæða en helsti keppinautur hans Abullah Abdullah er með 32 prósent. Verði þetta niðurstaðan er ljóst að kjósa þarf á ný á milli tveggja efstu frambjóðendanna því fimmtíu prósent atkvæða þarf til þess að sigra.

Fjórir þjófar í gæsluvarðhald

Fjórir menn af erlendum uppruna voru handteknir í Árbæ í gærkvöldi grunaðir um innbrot og þjófnað. Lögreglan fékk tilkynningu um innbrot og greip mennina í kjölfarið. Á þeim fannst mikið af tóbaki að sögn lögreglunnar

Þrílitu bindin seldust upp

Krabbameinsfélag Íslands stóð í annað sinn fyrir átakinu „Karlmenn og krabbamein" í mars. Átakið vakti mikla athygli en því var ætlað að vekja karlmenn til vitundar um krabbamein og þátt heilbrigðs lífsstíls í forvörnum gegn þessum erfiða sjúkdómi. Þrílit bindi sem seld voru til styrktar átaksins í verslunum Herragarðsins eru nú uppseld. Ágóðinn af sölunni var ríflega 1,2 milljónir króna en alls seldust 279 bindi.

Hagsmunir almennings þurfa að ríkja - flokkshagsmunir að víkja

Ábyrgðarmenn kjosa.is sem söfnuðu vel á ellefta þúsund undirskriftum þar sem skorað var á forseta Íslands að synja staðfestingar lögum um ríkisábyrgð vegna svonefndra Icesave-samninga segja að almenningur þurfi að fá sjálfstæðan rétt til þess að knýja fram þjóðaratkvæðagreiðslur. Forsetinn staðfesti lögin með undirskrift sinni í morgun.

Piparúði notaður gegn ísbjörnum

Pottar og pönnur og piparúði eru meðal helstu vopna í innbyrðisátökum Íslendinga síðustu mánuði og misseri. En þessir hlutir eru líka prýðilegar ísbjarnafælur. Sú er að minnsta kosti reynsla íslenskra ferðamanna sem fóru um Grænland fyrir skömmu og glímdu við birni.

Frístundastrætó í Grafarvogi

Reykjavíkurborg hyggst freista þess að útrýma skutli foreldra með börn til og frá tómstundastöðum í Grafarvogi með því að fjölga strætóferðum síðdegis í samvinnu við frístundafélög hverfisins. Vonast er til að hægt verði spara foreldrum hátt í níutíuþúsund kílómetra akstur á viku.

Enn beðið eftir framsalsgögnum vegna Ramos

Smári Sigurðsson yfirmaður alþjóðadeildar Ríkislögreglustjóra segir að viðeigandi gögn vegna framsals á Brasilíska lýtalækninum Hosmany Ramos sem handtekinn var hér á landi hafi ekki enn borist. Yfirvöld í Brasilíu hafa staðfest að þau muni krefjast framsals á Ramos en hann var dæmdur í þrjátíu daga fangelsi hér á landi. Ramos mun losna úr haldi þann 11.september.

Flugvél nauðlenti á Kjalarnesi

Flugvél nauðlenti á túninu gegnt Grundarhverfi á Kjalarnesi nú um hálf tólf. Um litla flugvél var að ræða en flugmaðurinn tilkynnti að hann þyrfti að nauðlenda skömmu áður.

Forsetinn skrifaði undir lög um ríkisábyrgð í morgun

Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands skrifaði í dag undir lög um ríkisábyrgð á Icesave samningana. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá forsetaembættinu. Um tíu þúsund manns höfðu skrifað undir áskorun til forsetans þess efnis að skrifa ekki undir lögin og vísa málinu þannig til þjóðarinnar. Forsetinn rökstyður ákvörðun sína hins vegar með því að vísa til þeirra fyrirvara sem settir voru við ríkisábyrgðina af hálfu Alþingis og þingmenn samþykktu með afgerandi hætti.

Að minnsta kosti fimmtán létust í Indónesíuskjálfta

Að minnsta kosti fimmtán eru látnir í Indónesíu eftir að stór jarðskjálfti reið þar yfir í morgun. Flóðbyljguviðvörun var gefin út fyrir öll lönd sem eiga strönd að Indlandshafi en hún hefur nú verið dregin til baka.

Ágúst Einarsson: Harmar hnífaárás á Bifröst

„Það er alltaf leiðinlegt þegar svona lagað gerist,“ segir Ágúst Einarsson rektor háskólans á Bifröst vegna hnífabardaga sem átti sér stað á skólalóðinni um klukkan fjögur í nótt. Maður skar annan mann í hendina. Sá slasaði var fluttur á slysadeild en reyndist ekki mikið meiddur.

Stór skjálfti skók Indónesíu

Stór jarðskjálfti skók Indónesíu í morgun og er flóðbylgjuviðvörun í gangi fyrir öll lönd sem eiga strönd að Indlandshafi. Skjálftinn var 7,4 á Richter-kvarðanum og voru upptök hans um 240 kílómetra frá höfuðborginni Jakarta. Engar fregnir hafa enn borist af skemmdum eða dauðsföllum af völdum skjálftans.

Sjá næstu 50 fréttir