Lögreglan flæðir um götur 3. september 2009 04:30 Tugir þúsunda manna hafa gengið til liðs við lögregluna í Kína á síðustu vikum.fréttablaðið/AP
Tugir þúsunda ungra manna og kvenna hafa bæst í lögregluliðið í Kína. Tilefnið er sextíu ára afmæli kommúnistastjórnarinnar, sem komst til valda í byrjun október árið 1949. Stjórnvöld þora ekki annað en efla öryggisráðstafanir til muna. Meðal annars sjá nokkur þúsund vopnaðra manna úr úrvalssveitum lögreglunnar um öryggisgæslu á þjóðhátíðardeginum 1. október. Hert öryggisgæsla verður einnig í Tíbet og Xinjiang, þar sem óánægja ríkir með yfirráð Kínverja. Einnig verður hert öryggisgæsla í fjármálaborginni Sjanghæ. Öryggissveitir lögreglunnar voru stofnaðar árið 1983. Þær eru vopnaðar og hafa það hlutverk að grípa inn í þegar verkefnin reynast almennum lögregluþjónum ofviða. Undanfarin tvö ár hafa þessar vopnuðu lögreglusveitir haft nóg að gera bæði í Tíbet og í Xinjiang, þar sem óánægja íbúa hefur brotist út í mótmælum og óeirðum. Í tilefni af afmælinu hefur flokkurinn einnig látið gera bíómynd um upphaf kommúnistastjórnarinnar, þar sem margir þekktustu leikarar Kína eru í áberandi hlutverkum, þar á meðal hasarmyndahetjurnar Jackie Chan og Jet Li.- gb
Mest lesið Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Erlent Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu Innlent Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Erlent Ungir Miðflokksmenn vildu ekki taka þátt í Gleðigöngunni Innlent Gæsluvarðhalds krafist yfir þriðja manninum Innlent Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Erlent „Einfaldlega ók bifreið frá punkti A á punkt B“ Innlent ,,Þetta eru kosningaherferðarfundir Kristrúnar Frostadóttur fyrir Já til að sjá'' Innlent Aðallega „karlar að drepa aðra karla“ Innlent Ætlar að hafa lokað þrátt fyrir tífaldan íbúafjölda Innlent Fleiri fréttir Assad dæmdur til dauða í heimalandinu Réttað yfir fyrrverandi glæpaforingja vegna morðsins á Tupac Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Tala látinna komin yfir hundrað Brutu reglur þegar þau tilkynntu óvart andlát konungsins Harður jarðskjálfti skók Kólumbíu og Ekvador Mannfall í drónaárás á olíuhreinsistöð í Tatarstan Frederiksen og Meloni taka höndum saman gegn innflytjendum Heitustu sumarmánuðir í Vestur-Evrópu í sögunni Ætlar að láta frysta egg sín og útilokar ekki forsetaframboð Segir allt að 50 þúsund hermenn frá Norður-Kóreu á leið til Rússlands Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Netanjahú hafnar friðaráætlun Trumps Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Gefur aftur í skyn að hann vilji embættið á ný Rússar taldir bera ábyrgð á sjálfsprengjudrónanum Heitir því að herða byssulöggjöf í kjölfar árásar Spánverjar taka upp landamæraeftirlit gagnvart Ítalíu Blanche staðfestur sem dómsmálaráðherra Sonur Bidens segir náðunina ekki góða ákvörðun Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Gert að greiða tugi milljarða fyrir að passa ekki öryggi barna Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Biður fjársterka stuðningsmenn um að styðja Vance 2028 Íranir segja viðræður á lokametrunum Vísa máli Fauci til dómstóla Sakar lekamenn um landráð vegna „rangra“ frétta Sjá meira