Innlent

Loftrýmisgæslu Bandaríkjamanna lokið

Úr myndasafni.
Úr myndasafni. Mynd/GVA
Loftrýmisgæslu bandaríska flughersins hér við land er lokið að sinni, að fram kemur á vef Varnarmálastofnunnar.

Bandaríski flugherinn var hér á landi með fjórar F-15 orrustuþotur frá 10. ágúst og til 27. ágúst en liðsflutningar stóðu auk þess yfir í nokkra daga.

Fram kemur á vef stofnunarinnar að alls hafi verið um 110 starfsmann bandaríska flughersins við störf hér á landi meðan loftrýmisgæslan „stóð yfir í boði íslenskra stjórnvalda" og í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun Atlantshafsbandalagsins fyrir Ísland.

Einnig voru flutninga- og eldsneytisflugvélar notaðar við verkefnið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×