Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vilja mislæg gatnamót Nýr vegur um Svínahraun verður boðinn út með þeim valkosti að gatnamót Þrengslavegar og Suðurlandsvegar verði mislæg. Bæjarstjórn Ölfuss, sem þrýstir á mislæg gatnamót, hefur frestað ákvörðun um framkvæmdaleyfi. 30.8.2004 00:01
Kennarar boða til verkfalls Grunnskólakennarar boða til verkfalls í þessari viku. Verkfallið hefst eftir réttar þrjár vikur takist ekki að semja. Mikillar svartsýni gætir á meðal kennara. 30.8.2004 00:01
Afrek að komast á Bandaríkjamarkað Sigurjón Sighvatsson kvikmyndaframleiðandi segir það afrek hjá Latabæ að komast inn á Bandaríkjamarkað. Hann telur hins vegar of snemmt að segja til um hvort Latibær verði ágóðafyrirtæki. 30.8.2004 00:01
Ræningi í helgarfríi fremur rán Glæpamaður í helgarfríi úr fangelsi rændi ásamt nýnasista peningaflutningabíl á Aker-bryggju í Osló í nótt. Lars Hannes er leiðtogi Bandidos-gengisins í Noregi. Hann fékk leyfi til að heimsækja foreldra sína um helgina og vantaði að því er virðist skotsilfur. 30.8.2004 00:01
Flokksþing Repúblikana hafið Sami grautur í annarri skál eða allt önnur Ella? Það er spurningin sem fréttaskýrendur og bandarískir kjósendur spyrja sig nú í upphafi flokksþings repúblíkana í New York. Fréttaskýrendur vestra segja repúblíkana eins og álfa út úr hól í þessari afar frjálslyndu borg 30.8.2004 00:01
Sala símans skili miklum hagnaði Ríkisstjórnin gerir ráð fyrir því að sala á hlutabréfum ríkisins í Landssímanum skili umtalsverðum tekjum í ríkissjóð á næsta ári. Stefnt er að því að salan fari fram í kringum næstu áramót. 30.8.2004 00:01
Krani og stillansar fuku Maður slasaðist lítillega þegar byggingarkrani fauk um koll í hávaðaroki sem blés um Hafnarfjörð í gær. Maðurinn var við vinnu uppi á þaki fjölbýlishúss sem verið er að byggja við Daggarvelli þegar kraninn fauk um koll og féll á húsið. Brak úr krananum lenti á manninum. Að auki fuku stillansar sem reistir höfðu verið við húsið. 30.8.2004 00:01
Einn lést þegar skúta sökk Einn maður lést en öðrum var bjargað um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar þegar kanadísk skúta sökk suðvestur af Malarrifi upp úr klukkan fimm í gærdag. Mjög slæmt veður var þegar skútan fórst, hávaðarok og öldur sem náðu fjögurra til fimm metra hæð. 30.8.2004 00:01
Yfirburðasigur í Tsjetsjeníu Rússneskum stjórnvöldum varð að ósk sinni þegar Alu Alkhanov var lýstur sigurvegari tsjetsjensku forsetakosninganna með nær 74 prósent greiddra atkvæða. Þessi helsti yfirmaður lögreglunnar í Tsjetsjeníu naut stuðnings stjórnvalda í Moskvu og hafa stjórnarandstæðingar kvartað undan víðfeðmu kosningasvindli. 30.8.2004 00:01
Endanlegur sigur vinnst ekki Baráttan gegn hryðjuverkum gerir heiminn öruggari fyrir komandi kynslóðir en ræður vart niðurlögum hryðjuverkamanna sagði George W. Bush Bandaríkjaforseti í viðtali við NBC sjónvarpsstöðina. "Ég held að við getum ekki unnið baráttuna," sagði Bush. 30.8.2004 00:01
Sjóðurinn væri 8,4 milljarðar Pétur Blöndal telur að sparisjóðir og minni fjármálafyrirtæki geti ekki keppt við ný lán bankanna. Einar Oddur Kristjánsson segir sparisjóðina verða að laga sig að nýjum aðstæðum. 30.8.2004 00:01
Bush sem hinn sterki leiðtogi George W. Bush er sterkur leiðtogi á stríðstímum er upplegg repúblikana á flokksþingi sínu sem hófst í gær. Þar er lögð áhersla á baráttuna gegn hryðjuverkum og skattalækkanir og aðgerðir í efnahagsmálum sem þeir segja forsenduna fyrir bættum efnahag Bandaríkjanna. 30.8.2004 00:01
Lokað fyrir olíuútflutning Uppreisnarmönnum í Írak hefur tekist að loka fyrir alla olíuflutninga frá Írak, í það minnsta út vikuna. Uppreisnarmenn hafa sprengt upp olíuleiðslur í suðurhluta landsins og þannig komið í veg fyrir að hægt sé að flytja olíu úr landinu á markaði erlendis. Þetta er mikið áfall fyrir stjórn landsins og bágborinn efnahag. 30.8.2004 00:01
Útseld vinna aukin á LSH Forráðamenn Landspítalans ætla að leita leiða til að auka útselda þjónustu á spítalanum, að sögn Jóhannesar M. Gunnarssonar setts forstjóra LSH. Rekstur spítalans er nú 0,9% fram úr fjárheimildum eftir sjö mánaða uppgjör. </font /></b /> 30.8.2004 00:01
Fangi strauk af Litla-Hrauni Fangi strauk frá Litla-Hrauni á sjöunda tímanum í kvöld og leitar fjölmennt lögreglulið hans nú. 30.8.2004 00:01
Annar skipverjanna látinn Annar skipverjanna á kanadísku skútunni sem sökk síðdegis vestur af landinu er látinn. Hinn er óslasaður en er enn á sjúkrahúsi. 30.8.2004 00:01
Eldur í fjölbýli við Austurbrún 6 Slökkvilið var fyrir stundu kallað að fjölbýlishúsinu við Austurbrún 6 í Reykjavík. Ekki liggja fyrir upplýsingar um hvort um mikinn eldsvoða er að ræða en allt tiltækt slökvilið er á staðnum. 30.8.2004 00:01
Gunnar G. Schram látinn Gunnar G. Schram lagaprófessor er látinn. Hann var 73 ára að aldri. Gunnar kvæntist Elísu Steinunni Jónsdóttur árið 1957 og eignuðust þau fjögur börn en fyrir átti Gunnar eitt barn. 30.8.2004 00:01
Fékk flösku í andlitið Tveir menn gistu fangageymslur lögreglunnar á Selfossi í nótt, annar fyrir að slá mann með flösku í andlitið en hinn fyrir ölvunarakstur. 29.8.2004 00:01
Mannrán vegna klæðnaðar stúlkna Forsætisráðherra Frakklands hefur kallað saman neyðarfund til að leita ráða um hvernig hægt er að frelsa tvo franska blaðamenn sem írakskur uppreisnarhópur hefur í haldi. Hópurinn krefst þess að hætt verði við að banna stúlkum að hylja hár sitt í skólum Frakklands en bannið á að taka gildi í næsta mánuði. 29.8.2004 00:01
Mældist á tæplega 200 km hraða Lögreglan á Húsavík stöðvaði í morgun mann sem ekið hafði á ofsahraða frá Akureyri að flugvellinum á Húsavík við Aðaldalshraun. Ökumaðurinn keyrði á 140 kílómetra hraða innanbæjar á Akureyri og hóf lögregla þá eftirför. 29.8.2004 00:01
Sprengdi sig á kjörstað Gríðarleg öryggisgæsla er vegna forsetakosninganna sem haldnar eru í Tsjetsjeníu í dag. Ein sprengja hefur þegar sprungið í höfuðborg landsins. 29.8.2004 00:01
Kerry meiri hetja segir Bush George Bush, forseti Bandaríkjanna, viðurkenndi í gær að ekki væri hægt að bera saman herþjónustu sína og andstæðings hans í forsetakjörinu, Johns Kerrys; Kerry hefði sýnt meiri hetjuskap. 29.8.2004 00:01
1 árs gamalt barn brenndist illa Eins árs gamalt barn í Reykjanesbæ brenndist illa og var flutt á slysadeild í Reykjavík í gær eftir að þriggja ára gamalt barn hafði skrúfað frá heitu vatni og lét renna í baðvask þar sem yngra barnið sat. Víkurfréttir greina frá þessu. 29.8.2004 00:01
Kverkatak Bjarkar á heiminum „Aldrei vanmeta innblásna þvermóðsku listamanna.“ Þannig hefst dómur Jons Pareles um Medúllu, nýjustu plötu Bjarkar, í sunnudagsblaði New York Times í dag. Greinin ber yfirskriftina „Björk tekur heiminn kverkataki.“ 29.8.2004 00:01
Forsetinn villti á sér heimildir Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sagði í upphafi vinum Dorritar Moussaief að hann væri stjórnunarsérfræðingur til að leyna því hver hann var í raun og veru. Þetta kemur fram í ítarlegri grein um Dorrit sem birtist í breska dagblaðinu <em>The Sunday Times</em> í dag og þar kennir ýmissa forvitnilegra grasa. 29.8.2004 00:01
Kvenfangar verr staddir Konur sem afplána fangelsisdóm eru almennt verr staddar en karlfangar. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn á félagslegri stöðu fanga á Íslandi sem Margrét Sæmundsdóttir, deildarstjóri hjá Fangelsismálastofnun, gerði en þetta er fyrsta könnun sinnar tegundar sem gerð er hér á landi. 29.8.2004 00:01
Skjálftahrina úti fyrir Siglufirði Jarðskjálftahrina hófst á föstudag um 22 kílómetra norðnorðaustur af Siglufirði samkvæmt tilkynningu frá Veðurstofu Íslands. Hrinan fór rólega af stað en frá klukkan eitt eftir miðnætti til klukkan tvö í gærdag náði hrinan hámarki. Þá mældust stærstu skjálftarnir í hrinunni til þessa 2,8 stig á Richter-kvarðanum. 29.8.2004 00:01
Fjöldi manna látinn í sprengingu Bílsprengja sprakk fyrir utan höfuðstöðvar samtaka flóttamanna í Kabúl, höfuðborg Afganistans, fyrr í dag. Fjöldi manna er látinn en ekki liggur fyrir á þessari stundu hve mannfallið er mikið. Vitni segja að vörubíl hafi verið ekið að byggingunni og hann hafi svo sprungið stuttu síðar. 29.8.2004 00:01
Hundruð þúsunda mótmæla í New York Búist er við að hundruð þúsunda muni taka þátt í mótmælaaðgerðum í New York í dag þar sem stefnu George Bush Bandaríkjaforseta verður mótmælt. Mótmælin eru þegar hafin en flokksráðstefna Repúblikanaflokksins hefst í borginni á morgun. 29.8.2004 00:01
Forstöðumaður UNICEF flytur erindi Dr. Cream Wright, forstöðumaður menntamála hjá UNICEF, mun gera grein fyrir menntaherferð stofnunarinnar í 25 þróunarlöndum sem eiga við sérstaklega mikla erfiðleika í þessum efnum að stríða í erindi sem hann flytur í Háskólanum á Akureyri á morgun. 29.8.2004 00:01
Sjö látnir í sprengjuárásum Að minnsta kosti þrír bandarískir lögreglukennarar og tveir afganskir lögreglumenn létust í sjálfsmorðsárásinni í Kabúl, höfuðborg Afganistans, í dag. Fregnir herma að talíbanskur skæruliði hafi verið við stýrið á vörubílnum sem var ekið að höfuðstöðvum samtaka flóttamanna í borginni og þar sprengdur upp. 29.8.2004 00:01
Brunnið á stórum hluta líkamans Eins árs barn liggur alvarlega brennt á gjörgæsludeild Landspítalans eftir að hafa lent í heitu vatni í Keflavík í gær. Að sögn sérfræðings líður barninu eftir atvikum. Það er ekki í bráðri lífshættu en verður áfram á gjörgæsludeild, enda illa brennt og það á stórum hluta líkamans. 29.8.2004 00:01
Múslimar fordæma mannránið Ríkisstjórn Frakklands og talsmenn múslima í landinu hvöttu í dag írakska mannræningja, sem hafa tvo franska blaðamenn í haldi, til að sleppa þeim. Tilgangur mannræningjanna er að fá frönsk stjórnvöld til að aflétta banni sem kveður á um að múslimastúlkum sé bannað að bera höfuðklúta í frönskum skólum. 29.8.2004 00:01
Tvöföld mismunun á landsbyggðinni Með því að mismuna fólki á landsbyggðinni með húsnæðislánum er verið að koma á tvöföldum mismuni segir í ályktun Byggðaþings samtakanna Landsbyggðin lifi sem lauk í dag að Hólum. Þar segir að þar sem fasteignamat sé yfirleitt lægra úti á landi sé fráleitt að bæta lægra lánshlutfalli við. 29.8.2004 00:01
Fellibylir herja um heiminn Hitabeltisstormurinn Gaston herjar nú á Suður-Karólínu fylki í Bandaríkjunum með tilheyrandi úrkomu. Engar fregnir hafa borist af mann- eða eignatjóni vegna stormsins en nokkuð dró úr krafti hans. Hins vegar óttast menn mjög fellibylinn Frances sem nú er að safna í sig krafti á hafi úti en ekki er útilokað að hann komi að landi á Flórída. 29.8.2004 00:01
Laðar ríka fólkið til Íslands Breska stórblaðið <em>The Sunday Times</em> birti í dag grein þar sem íslensku forsetafrúnni, Dorrit Moussaieff, er lýst sem gríðarlega áhrifamikilli konu sem noti sín víðtæku persónulegu sambönd Íslandi til framdráttar, meðal annars til að finna fjárfesta fyrir íslensk fyrirtæki. Í greininni er tilhugalífi Dorritar og Ólafs Ragnars einnig lýst á ítarlegan hátt. 29.8.2004 00:01
Vonast eftir bráðabirgðaleyfi Verkefnisstjórn hótelsins í Eimskipafélagshúsinu vonast eftir bráðabirgðaleyfi til að hefja framkvæmdir við bygginguna þann tíunda september ef byggingaleyfi liggur ekki fyrir. Helgi S. Gunnarsson hjá VSÓ ráðgjöf segist ekki telja annað en að slíkt leyfi eigi að vera auðsótt. 29.8.2004 00:01
Kostnaðarlækkun um 1,3 milljarða Kostnaður vegna sérfræðilækna myndi lækka um 1,3 milljarða króna að mati Ríkisendurskoðunar, ef Reykvíkingar notuðu þjónustuna í svipuðum mæli og Akureyringar. Formaður Læknafélagsins segir þeirri spurningu þó ósvarað hvort munurinn sé til góðs eða ills; heilbrigðisþjónusta snúist um fleira en peninga. 29.8.2004 00:01
Skotbardagi á skemmtistað Maður vopnaður veiðiriffli gekk berserksgang á skemmtistað í Silkeborg í gær og urðu tveir menn fyrir skotum, að því er fram kemur í danska dagblaðinu Politiken. 29.8.2004 00:01
Nauðlent í Aþenu SAS-flugvélin SK 3052, sem í gærmorgun hélt frá Aþenu til Kaupmannahafnar með 180 farþega um borð, varð að nauðlenda í Aþenu. 29.8.2004 00:01
Munch-ræningjar ófundnir Ekki hefur tekist að upplýsa hverjir rændu málverkum eftir Edvard Munch en rannsóknardeild norsku lögreglunnar grunar að sömu menn hafi framið bankarán í Osló á síðasta ári sem enn er óupplýst.</font /></b /> 29.8.2004 00:01
Mannfall í Grosní og Kabúl Einn maður sprengdi sig í loft upp fyrir utan kjörstað í höfuðborginni Grosní í Tsjetsjeníu í dag. Róstursamt hefur verið í aðdraganda forsetakosninganna en fyrir utan sprenginguna í dag hafa kosningarnar að mestu farið vel fram. Niðurstöðurnar þykja fyrirfram gefnar. 29.8.2004 00:01
Menntun flóttamanna viðurkennd Nú stendur til að menntun flóttamanna sem búsettir eru í Noregi verði viðurkennd þó að skírteini eða gögn þess til sönnunar skorti. 29.8.2004 00:01
15 ára brennuvargur 15 ára drengur var handtekinn í Vellinge í suður Svíþjóð í gær grunaður að íkveikju fleiri mannskæðra bruna og skógarelda. 29.8.2004 00:01